Boðið upp á ókeypis tannlækningar í síðasta sinn 22. maí 2009 14:16 Mynd/Valgarður Gíslason
Tannlæknafélag Íslands og Tannlæknadeild Háskóla Íslands bjóða upp á ókeypis tannlækningar fyrir börn og unglinga í síðasta sinn í bili á morgun laugardag. Þetta verður í fjórða sinn sem barnafjölskyldum sem búa við kröpp kjör er boðið upp á fría tannlæknaþjónustu. Stefnt er að því að taka upp þráðinn í haust. Gríðarleg aðsókn hefur verið á Hjálparvakt tannlækna og seinustu tvö skipti hafa samtals yfir 120 börn og unglingar fengið fría tannlæknaþjónustu. Í bæði skiptin þurfti að vísa börnum frá þar sem langur biðlisti hafði myndast eftir klukkutíma og ekki var hægt að anna fleirum, þrátt fyrir að fleiri stólum hafi verið bætt við. Fjárhagslegar aðstæður margra heimila hafa breyst til hins verra á undanförnum mánuðum og því viðbúið að mörg heimili neyðist til að spara við sig þegar kemur að tannviðgerðum og eftirliti hjá börnum, að fram kemur í tilkynningu. „Þá er tannheilsa íslenskra barna sú versta á Norðurlöndum og íslensk börn eru að meðaltali með tvöfalt fleiri skemmdar tennur en börn á hinum Norðurlöndunum. Um 17% barna og unglinga á aldrinum 4-18 ára mæta ekki í reglubundið eftirlit hjá tannlækni, samkvæmt MUNNÍS rannsókninni sem framkvæmd var um allt land árið 2005.“ Þjónunstan verður veitt á milli klukkan 10 og 13 á morgun í húsnæði Tannlæknadeildar Háskóla Íslands, Læknagarði, að Vatnsmýrarvegi 16. Ekki er tekið við tímapöntunum en ráðstafanir eru gerðar til þess að biðtími verði ávallt hóflegur. Nánari upplýsingar eru veittar hjá Tannlæknadeild Háskóla Íslands í síma 525-4850.
Mest lesið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Erlent Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Innlent Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Innlent Hvað segja veðbankarnir? Innlent Fleiri fréttir Hvað segja veðbankarnir? Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Sjá meira