Innlent

Bjartsýnn á hagstæða niðurstöðu aðildarviðræðna

Utanríkisráðherra telur víst að umræður um breyttar áherslur í sjávarútvegsmálum innan Evrópusambandsins muni styrkja sjónarmið Íslendinga komi til aðildarviðræðna.

Joe Borg, yfirmaður sjávarútvegsmála í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, óskaði eftir aðstoð Íslendinga við mótun nýrrar fiskveiðistefnu sambandsins í fréttablaðsgrein í gær.

Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, segir þetta sýna svo ekki verði um villst að Íslendingar geti haft áhrif á fiskveiðistjórnun sambandsins og styrki ennfremur áherslur Íslendinga í sjávarútvegsmálum komi til aðildarviðræðna.

Össur bendir á að Íslendingar hafi ólíkt Evrópusambandinu náð að stunda fiskveiðar með sjálfbærum hætti. Innan ESB sé nú vaxandi áhugi á því að draga úr miðstýringarvaldi í fiskveiðimálum.

"Ég verð var við það í samtölum við þá sem þar stýra málum að þeir telja nú að það sé ákveðin reynsla komin á að núverandi kerfi gengur ekki alveg. Nú vilja menn færa valdið út, í þessu tilviki til strandsvæðanna og þeirra sem búa í grennd við auðlindina í hafinu," segir Össur.

Össur er bjartsýnn á að Íslendingar nái viðunandi samningum við ESB varðandi sjávarútvegsmál.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×