Innlent

Meiri reiði í fólki nú en í Búsáhaldabyltingunni

Þór Saari þingmaður Borgarahreyfingarinnar.
Þór Saari þingmaður Borgarahreyfingarinnar.
Þór Saari þingmaður Borgarahreyfingarinnar tók sæti á Alþingi nú eftir kosningar. Hann var virkur þátttakandi í hinni svokölluðu Búsáhaldabyltingu og má segja að hún hafi komið honum inn á þing. Hann segir að fólk hringi í sig oft á dag uppfullt af reiði og sé tilbúið til þess að gera hvað sem er. Hann segir meiri reiði í fólki nú en í Búsáhaldabyltingunni.

Þór Saari var gestur á Sprengisandi á Bylgjunni nú í morgun. Þar sagðist hann hafa farið á samstöðufund á Austurvelli í gær og það hefði verið eins og að mæta á ættarmót, hann hefði þekkt marga. Áberandi hefði verið hversu mikil reiði væri í fólki og margir sem misst hefðu allt töluðu um að grípa til ofbeldis.

„Það er ekki verið að gera nægilega mikið til þess að hjálpa almenningi," sagði Þór. Hann sagði síðan að það hefðu verið miklu fleiri en Davíð Oddsson sem tóku ákvarðanir og vissi í hvað stefndi en lét ekki vita. „Skyldur embættismanna við almenning í landinu eru engar."

Hann sagði mikla tortryggni vera í samfélaginu sem þyrfti að vinna bug á. „Það er búið að rústa öllu kerfinu og það er ekkert verið að gera til þess að byggja upp traust hér. Hagmunatengsl og fjárhagslegtengsl hafa ráðið hér ferðinni og almannahagsmunir hafa verið látnir sitja á hakanum. Nú er þorri almennings orðinn meðvitaður um þetta og ef þetta verður ekki gert með öðrum hætti í framhaldinu þá held ég að við munum búa í einhverskonar afskræmdu samfélagi, þar sem ríkir tortryggni á báða bóga og það mun aldrei gróa um heilt."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×