Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Yfir 300 staðnir að hraðakstri á þriðjudagskvöld Meira en 300 ökumenn voru staðnir að hraðakstri í Reykjavík síðastliðið þriðjudagskvöld en þremur ómerktum lögreglubifreiðum var komið fyrir á Kringlumýrarbraut, Miklubraut og Sæbraut. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að reynslan hafi sýnt að notkun ómerktra lögreglubifreiða gefi gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldi leit að lausnum þar sem þeirra er þörf. 22.5.2009 11:35
Mörg mál brýnni en herbergjaskipan á Alþingi Gunnar Bragi Sveinsson, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, undrast þá athygli sem herbergjaskipan á Alþingi hefur fengið að undanförnu. Hann telur mun brýnna að stjórnarflokkarnir ræði mál sem varði heimilin og fyrirtækin í landinu. Gunnar viðurkennir að herbergið er tilfinningalega tengt Framsóknarflokknum. 22.5.2009 11:00
Dótturfélagið græðir milljónir úr stofunni Útgáfufélagið Frjáls miðlun, sem er í eigu dóttur Gunnars Birgissonar, bæjarstjóra Kópavogs og eiginmanns hennar, er með lögheimili á heimili þeirra hjóna. Gunnar hefur verið gagnrýndur harkalega fyrir að gera samninga við Frjálsa miðlun. Dóttir hans, Brynhildur Gunnarsdóttir og eiginmaður hennar, Guðjón Gísli Guðmundsson, eiga og reka félagið. 22.5.2009 10:58
Grímulaus hræðsluáróður útgerðarmanna Skúli Helgason, þingmaður Samfylkingarinnar, segir útgerðarmenn og talsmenn þeirra á Alþingi fara mikinn í varðstöðu fyrir óbreyttu fiskveiðistjórnarkerfi og beiti grímulausum hræðsluáróðri. 22.5.2009 10:06
Frjálshyggjufélagið telur ríkisafskipti hafa orsakað bankahrunið Yfirlýsingar og áætlanir ríkisstjórnarinnar benda til þess að enginn lærdómur hafi verið dreginn af efnahagshruninu, að mati Frjálshyggjufélagsins. „Í stað þess að afnema ríkisafskipti þau sem keyrðu Ísland hraðar en flest lönd í djúpa niðursveiflu, þá eigi að halda áfram á sömu braut, bara á enn meiri hraða,“ segir í ályktun frá félaginu. 22.5.2009 09:48
Dalai Lama flytur ávarp í Hallgrímskirkju Dalai Lama, handhafi Friðarverðlauna Nóbels og andlegur leiðtogi Tíbeta, mun flytja ávarp á samtrúarlegri friðarstund í Hallgrímskirkju í tilefni af heimsókn hans til landsins í byrjun næsta mánaðar. Það er Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, sem býður til friðarstundarinnar sem fer fram mánudaginn 1. júní og hefst klukkan 15. Fulltrúar kristinna kirkna og annarra trúarbragða lesa texta úr helgiritum, að fram kemur í tilkynningu. 22.5.2009 09:26
Á stolnum bíl í annarlegu ástandi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði karl og konu á stolnum bíl undir morgun og reyndust þau bæði í annarlegu ástandi. 22.5.2009 07:24
Fyrstu síldarfarmarnir væntanlegir til lands Fjölveiðiskipin Ásgrímur Halldórsson og Jóna Eðvalds eru væntanleg til Hafnar í Hornafirði klukkan tvö í dag með fyrstu síldarfarmana í ár, úr norsk-íslenska síldarstofninum. 22.5.2009 07:18
Kviknaði í gróðri í Heiðmörk Eldur kviknaði í gróðri í Heiðmörk undir kvöld í gær og sviðnuðu þar 500 til 600 fermetrar lands. Eldurinn var við svonefnda Maríuhella og var að breiða úr sér þegar slökkviliðið kom á vettvang, en því tókst að hefta útbreiðsluna og slökkva í sverðinum. 22.5.2009 07:15
Eldur í sumarbústað við Meðalfellsvatn Tvö börn og tveir fullorðnir forðuðu sér út þegar eldur kom upp í sumarbústað við Meðalfellsvatn í Kjós laust fyrir klukkan eitt í nótt. Fólkið hringdi á slökkviliðið en tókst að halda eldinum í skefjum með vatni úr garðslöngu á meðan beðið var eftir slökkviliðinu. 22.5.2009 07:04
Segir málatilbúnaðinn „árás“ „Þetta er náttúrlega eins og flest sem þaðan kemur; uppdikterað og margfaldað með pí,“ segir Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi, um frétt Ríkisútvarpsins í gær um að hann hygðist á fundi Sjálfstæðisfélags Kópavogs á morgun ræða greiðslur bæjarins til fyrirtækis dóttur hans. 22.5.2009 06:00
Dæmdar 19 milljónir „Þessi niðurstaða kemur okkur mjög á óvart. Við bjuggumst við því að málinu yrði vísað frá, þar sem við teljum manninn hafa orðið uppvísan að mjög vafasömum starfsháttum og gerst brotlegur við lög í starfi sínu fyrir félagið,“ segir Sigurður Grétar Ólafsson, formaður stjórnar Byggingafélags námsmanna. Félagið var á miðvikudag dæmt í Héraðsdómi Reykjavíkur til að greiða fyrrverandi framkvæmdastjóra laun í eitt ár. Sú upphæð, með orlofi, bílahlunnindum og mótframlagi í lífeyrissjóð, er rúmar nítján milljónir króna. Við það bætast dráttarvextir. 22.5.2009 06:00
Mikil gróska í rannsóknum AVS-sjóðurinn, sem styður verkefni til að auka virði sjávarfangs, veitti í ár 76 styrki að upphæð 325 milljónir króna. Alls bárust sjóðnum 160 umsóknir að upphæð 800 milljónir króna, sem gefur til kynna hversu mikil gróska er hér á landi í rannsóknum og þróun sem tengjast sjávarútvegi hér á landi. 22.5.2009 06:00
Röng skilaboð að fara ekki utan „Með fullri virðingu fyrir mikilvægi þess að rækta vinabæjartengsl þá hef ég lýst þeirri skoðun minni á fundum bæjarráðs að mér finnist það sérkennileg forgangsröðun að ætla að fara í ferð sem þessa í því efnahagsástandi sem nú er,“ segir Rósa Guðbjartsdóttir um ferð á vegum Hafnarfjarðarbæjar á vinabæjarmót í Uppsala í Svíþjóð. 22.5.2009 06:00
Íslendingar eiga Norðurlandamet í sykurneyslu Íslendingar neyta allra Norðurlandaþjóða mest af sykri á ári. Drykkja á sykruðum gosdrykkjum vegur þyngst, tæp fjörutíu prósent af allri sykurneyslunni. Íslendingar innbyrða að meðaltali 48,3 kíló af sykri á mann, en Svíar 41,8 kíló, Danir 37,6 kíló, Finnar 33,3 og Norðmenn 32,9 kíló. Þessar tölur eru miðaðar við árið 2007 nema hjá Svíum, sú tala er frá 2006. 22.5.2009 05:30
Fáum bráðum sænska dollara stjórnmál „Þetta er að mestu leyti komið í höfn,“ segir Steingrímur J. Sigfússon sem í fyrradag var í Stokkhólmi að ræða skilmála láns sem Svíar hyggjast veita Íslendingum til að styrkja gjaldeyrisforða landsins. Lánið er hluti 2,5 milljarða dollara lánapakka frá Svíum, Norðmönnum, Dönum og Finnum. 22.5.2009 05:00
Forgangsreinar verði fleiri Þrjátíu ný græn skref voru samþykkt í umhverfis- og samgönguráði Reykjavíkur á þriðjudagskvöld. Þar er meðal annars gert ráð fyrir fleiri forgangsreinum fyrir strætó og að búnir verði til sælureitir í öllum hverfum. 22.5.2009 04:30
Fjárlaganefnd fær yfirlit yfir útgjöld Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra segir tekjur ríkisins hafa verið nokkuð minni á þessu ári en ráð hafi verið fyrir gert. „Það er meiri samdráttur og heldur minni velta í samfélaginu,“ segir fjármálaráðherra. 22.5.2009 04:00
Beita makríl þrátt fyrir bann Veiðimenn sem virða ekki reglur virðast geta stundað iðju sína óáreittir við Þingvallavatn ef marka má fréttavefinn votnogveidi.is. 22.5.2009 04:00
Um 2.300 fá ekki vinnu hjá borginni „Reykjavíkurborg getur ekki ráðið alla sem eru atvinnulausir í borginni. Það segir sig sjálft. Borgin er hins vegar að reyna að gera sitt besta til að bregðast við vandanum,“ segir Hallur Páll Jónsson, mannauðsstjóri Reykjavíkurborgar. 22.5.2009 03:00
Tjaldasala með fyrra móti „Þetta er allt að fara af stað núna. Það er mikið spurt um verð á tjöldum og tilheyrandi og eitthvað keypt, og við sjáum fram á góða sölu í sumar,“ segir Sigurður Guðmundsson, afgreiðslumaður í ferða- og útivistarversluninni Everest. Flest bendir til að margir kjósi að ferðast innanlands í sumar. 22.5.2009 03:00
Nokkrir bindislausir á þingi „Ég hef tekið eftir því að flestir eru enn þá með hálstau og ég er mjög ánægð með það. Persónulega finnst mér þingmennirnir flottari með bindi, en aðalatriðið er að þeir séu vel til hafðir. Og það eru þeir allir. Þeir eru glæsilegir á að líta úr forsetastólnum,“ segir Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis. Bindisskylda þingmanna var afnumin þegar þinghald hófst að loknum alþingiskosningum. 22.5.2009 03:00
Eigendur 400 félaga á huldu Ríkisskattstjóri vill upplýsingar frá íslenskum bönkum um eignarhald 400 félaga sem tengjast Íslendingum og eru skráð í erlendum skattavinjum. Að sögn Ríkisútvarpsins á að kanna hvort svikið hafi verið undan skatti í gegnum þessi félög. 22.5.2009 02:30
Rangt staðið að synjun leyfis Ákvörðun bæjarráðs sveitarfélagsins Ölfuss um að synja Lýsi hf. um leyfi fyrir uppsetningu óson- hreinsunartanka við fiskþurrkun fyrirtækisins í Þorlákshöfn hefur verið ógilt af úrskurðarnefnd skipulags- og byggingarmála. 22.5.2009 02:30
Skódinn eyddi 3,02 lítrum á hundraði „Þetta gekk frábærlega vel. Veðrið lék við áhorfendur og við erum auðvitað þakklát veðurguðunum fyrir það, því það skiptir miklu máli að ekki sé hávaðarok. Fjöldi keppenda var fullkominn, ekki of margir og ekki of fáir,“ segir Hugi Hreiðarsson, einn af forsvarsmönnum hinnar árlegu Sparaksturskeppni Atlantsolíu og Félags íslenskra bifreiðaeigenda sem haldin var í fyrradag. 22.5.2009 02:00
Reikna út verðmiða fyrir Heiðmörkina „Yfirleitt er því fleygt fram að náttúran á Íslandi sé ómetanleg. Hún er ómetanleg en við erum að meta þjónustuna sem hún veitir okkur. Á þessu er blæbrigðamunur. Streymi þjónustunnar getum við mælt en náttúran sjálf er augljóslega ómetanleg,“ segir Brynhildur Davíðsdóttir, dósent í umhverfis- og auðlindafræði við Háskóla Íslands. 22.5.2009 02:00
Banaslys á Hringbrautinni Ökumaður vélhjóls lést í umferðarslysi á mótum Hringbrautar og Birkimels, nálægt Þjóðarbókhlöðunni, um áttaleytið í gærkvöldi. 22.5.2009 01:00
Tilbúinn að gefa góð ráð ef formleg ósk berst Jón Bjarnason sjávarútvegsráðherra segir ósk sjávarútvegsstjóra Evrópusambandsins, um að Ísland aðstoði við endurskoðun sjávarútvegsstefnu sambandsins, sýna best hversu lítið erindi Íslendingar eiga þangað. 21.5.2009 19:14
Virkjunin sem átti að bjarga búrekstrinum orðin skuldahelsi Sauðfjárbóndi á Snæfellsnesi, sem ætlaði að tryggja búsetu á jörðinni með því að gerast raforkubóndi, situr uppi með himinháar skuldir vegna erlendrar lántöku. Hann segist hafa verið heimskur að láta etja sér út í þetta. 21.5.2009 19:28
Alvarlegt umferðarslys á Hringbraut Mjög alvarlegt umferðarslys varð á Hringbraut í Reykjavík skammt frá Þjóðarbókhlöðunni þegar bifhjól og bifreið rákust á. Lögreglan getur ekkert sagt til um málsatvik á þessu stigi, en rannsókn á slysinu er ekki lokið. 21.5.2009 20:53
Fleiri skip til rækjuveiða Hreyfing virðist vera komin á rækjuveiðar á ný eftir margra ára ördeyðu. Tvöfalt fleiri skip halda til veiða í ár miðað við síðasta ár og verið er að ræsa rækjuverksmiðjur á ný. 21.5.2009 19:41
Sea Voyager var fyrsta skemmtiferðaskipið Og fyrstu skemmtiferðaskip sumarsins eru komin. Fyrsta skipið, Sea Voyager, kom seint í gærkvöldi. 21.5.2009 19:24
Staðfestir viðræður borgarinnar við lífeyrissjóði Reykjavíkurborg á nú í viðræðum við lífeyrissjóði um 5 milljarða króna lán til mannaflsfrekra framkvæmda á þessu ári. Borgarstjóri segist vonast til að viðræður vegna lántöku skili árangri sem fyrst. Birgir Björn Sigurjónsson, fjármálastjóri Reykjavíkurborgar, staðfesti þetta í samtali við fréttastofu nú rétt fyrir fréttir. 21.5.2009 18:30
Slasaðist á mótorkrosshjóli Karlmaður um fertugt slasaðist þegar að hann féll á mótorkrosshjóli sínu í Grímsnesi, skammt frá bænum Rofabæ. Björgunarsveitir, um hálffimmleytið í dag. Lögreglan á Selfossi segir að grunur leiki á að hann sé með hryggáverka en ekki er víst hversu alvarlegir þeir eru. Sjúkrabifreið er kominn að manninum og mun flytja hann til skoðunar á slysadeild. 21.5.2009 18:23
Vill láta kanna hvað hvert stöðugildi við byggingu TRH kostar Það væri áhugavert að kanna hvað hvert stöðugildi við byggingu Tónlistar- og ráðstefnuhússins í Reykjavík kostar, segir Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Borgarahreyfingarinnar. 21.5.2009 17:15
Framsóknarmenn styðja ekki ESB tillöguna Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður Framsóknarflokksins, segir að þingmenn Framsóknarflokksins muni ekki styðja 21.5.2009 16:55
Lést eftir vinnuslys Pilturinn sem slasaðist þegar hann var við byggingarvinnu við grunnskólann í Garði að morgni síðastliðins þriðjudags lést á Landspítalanum í gærdag. Hann hét Kristján Falur Hlynsson og var átján ára gamall. Kristján var til heimilis að Hlíðarvegi 70 í Ytri Njarðvík. Hann lætur eftir sig foreldra og bróður. 21.5.2009 16:37
Andarvarpið á Reykjavíkurtjörn gæti heppnast betur Vísbendingar eru um að varp andarfugla við Reykjavíkurtjörn muni heppnast betur í sumar en á fyrri árum, að mati Gunnars Þórs Hallgrímssonar líffræðings. 21.5.2009 15:03
Óttast að forsendur fjárlaga séu brostnar Birkir Jón Jónsson, þingmaður Framsóknarflokksins, óttast að forsendur fjárlaga fyrir árið 2009 séu brostnar. Fjárlögin voru samþykkt skömmu áður en hlé var gert 21.5.2009 13:04
Segir Gunnar njóta víðtæks stuðnings meðal sjálfstæðismanna Formaður Sjálfstæðisfélags Kópavogs segir Gunnar Birgsson bæjarstjóra njóta víðtæks stuðnings meðal sjálfstæðismanna í bænum og ekki var minnst orði á umdeilt viðskiptamál dóttur hans á fulltrúaráðsfundi sjálfstæðisfélaganna í Kópavogi í gærkvöldi. 21.5.2009 12:04
Styrkja Nýsköpunarsjóð námsmanna Katrín Jakobsdóttir, ráðherra mennta- og menningarmála, og Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra, hafa styrkt Nýsköpunarsjóð námsmanna um samtals 15 milljónir króna. Um er að ræða fimm milljónir frá ráðuneyti mennta- og menningarmála og tíu milljónir frá iðnaðarráðuneyti. 21.5.2009 10:52
Vill aðstoð Íslendinga við að móta sjávarútvegsstefnu ESB Æðsti yfirmaður sjávarútsvegmála Evrópusambandsins lýsir sérstaklega eftir aðstoð frá Íslendingum við mótun nýrrar sjávarútvegsstefnu sambandsins. 21.5.2009 09:57
Bifhjólamaður ók á 95 kílómetra hraða yfir hámarki Bifhjólamaður mældist á 175 kílómetra hraða á Vesturlandsvegi við Grafarholt, þar sem hámarkshraði er 80 kílómetrar á klukkustund um hálfníuleytiið í gærkvöldi. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir að töluverður erill hafi verið í miðbænum í nótt. 21.5.2009 09:35
Bílvelta á Norðurlandsvegi Bílvelta varð á Norðurlandsvegi á móts við bæinn Höskuldsstaði í Akrahreppi um klukkan hálfníu í kvöld. Ökumaður og tvö ung börn sem voru í bifreiðinni sluppu með minniháttar skrámur, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. 21.5.2009 00:37
Búið að slökkva eldinn Búið er að slökkva eld sem kom upp í Húsaskóla á tíunda tímanum í kvöld. Eldurinn læsti sig í klæðningu hússins og er hún töluvert skemmd samkvæmt upplýsingum fá slökkviliðinu. Verið er að reykræsta bókasafnið, sem er á annarri hæð hússins, en talið er að minniháttar skemmdir gætu hafa orðið þar af völdum 20.5.2009 22:10