Grunur um tvö svínaflensutilfelli í viðbót 24. maí 2009 11:35
Gert er ráð fyrir að niðurstöður rannsókna á sýnum vegna gruns um sex tilfelli inflúensu A (H1N1) liggi fyrir á morgun, mánudag. Viðkomandi einstaklingar tilheyra fjölskyldu mannsins sem greindist með inflúensuna fyrir helgi. Enginn viðkomandi er alvarlega veikur. Þetta kemur fram í tilkynningu frá sóttvarnalækni nú í dag. Það hafa því tvö tilfelli bæst við en í gær lék grunur á að fjórir fjölskyldumeðlimir mannsins hefðu smitast. Þá segir í tilkynningunni að sóttvarnalæknir hafi haldið fund í morgun með almannavarnardeild og ríkislögreglustjóra. Þar kom meðal annars fram að áfram sé í gildi hættustig hér á landi samkvæmt viðbragðsáætlun um inflúensufaraldur. Ekki sé talin ástæða til að fra á neyðarstig þrátt fyrir að staðfest hafi verið að inflúensan sé komin til Íslands, enda sú veikindin væg. „Tilkynningar um viðbúnað vegna inflúensunnar eru birtar á influensa.is, bæði á íslensku og ensku, og á almannavarnir.is. Þar er einnig að finna ýmsar upplýsingar um inflúensuna og ráðstafanir í því sambandi. Læknar og aðrir heilbrigðisstarfsmenn eru áfram hvattir til að senda sýni í greiningu á veirufræðideild Landspítalans frá sjúklingum með inflúensulík einkenni." Þá segir að á morgun verði haldinn sameiginlegur fundur sóttvarnalækna og lögreglustjóra á landinu öllu í Reykjavík. Sóttvarnalæknir og almannavarnadeild boðuðu til fundarins fyrir nokkru til að fjalla um gildandi viðbragðsáætlanir vegna farsótta og hlutverk hvers og eins í því sambandi. Samkvæmt upplýsingum Sóttvarnarstofnunar ESB voru í morgun staðfest tilfelli inflúensu A (H1N1) alls 12.433 í 46 ríkjum. Langflest tilfelli eru í Bandaríkjunum eða 6.552 en í þeirri tölu eru einnig líkleg flensutilfelli þar í landi. Alls hefur 91 sjúklingur látist af völdum veikinnar, þar af 80 í Mexíkó. Níu hafa látist í Bandaríkjunum, einn í Kanada og einn í Kosta Ríka.
Tengdar fréttir Býst við fleiri svínaflensutilfellum hér á landi Fyrsta tilfelli H1N1-flensu, svokallaðri svínaflensu, hefur verið staðfest hér á landi. Sóttvarnalæknir gerir fastlega ráð fyrir að fjöldi Íslendinga greinist með flensuna á næstu vikum og mánuðum. Smitið barst hingað frá Bandaríkjunum og beðið er niðurstöðu rannsókna á fjórum einstaklingum til vibótar. 23. maí 2009 18:30 Svínaflensan komin til Íslands Fyrsta tilfellið af H1N1, betur þekkt sem svínaflensa, hefur greinst á Íslandi grunur leikur á að fjórir til viðbótar séu smitaðir. Þetta kemur fram í tilkynningu frá sóttvarnalækni. Þá segir að viðkomandi tilfelli séu á höfuðborgarsvæðinu og á Suðurlandi. 23. maí 2009 11:45 Mest lesið „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Fleiri fréttir Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Lögreglan bauð fimmtugum Íslendingi „gistingu með öllu inniföldu“ í fangaklefa Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Sjá meira
Býst við fleiri svínaflensutilfellum hér á landi Fyrsta tilfelli H1N1-flensu, svokallaðri svínaflensu, hefur verið staðfest hér á landi. Sóttvarnalæknir gerir fastlega ráð fyrir að fjöldi Íslendinga greinist með flensuna á næstu vikum og mánuðum. Smitið barst hingað frá Bandaríkjunum og beðið er niðurstöðu rannsókna á fjórum einstaklingum til vibótar. 23. maí 2009 18:30
Svínaflensan komin til Íslands Fyrsta tilfellið af H1N1, betur þekkt sem svínaflensa, hefur greinst á Íslandi grunur leikur á að fjórir til viðbótar séu smitaðir. Þetta kemur fram í tilkynningu frá sóttvarnalækni. Þá segir að viðkomandi tilfelli séu á höfuðborgarsvæðinu og á Suðurlandi. 23. maí 2009 11:45