Innlent

Samkeppniseftirlitið gerði húsleitir hjá hótelkeðjum

Hótel Loftleiðir.
Hótel Loftleiðir.
Samkeppniseftirlitið fór í húsleitir hjá nokkrum hótelkeðjum hér á landi síðast liðinn miðvikudag. Samkvæmt heimildum fréttastofu voru aðgerðirnar liður í rannsókn sem er langt á veg komin og varðar ferðaþjónustuna. Rannsóknin snýr að því hvort umræddir aðilar séu þátttakendur í samkeppnislagabrotum en rannsóknin hefur staðið yfir í þónokkurn tíma og tengist húsleit sem gerð var hjá samtökum ferðaþjónustunnar þann 2.mars 2007.

Meðal annars var gerð húsleit hjá Icelandair hotels en sú keðja rekur fjöldann allan af hótelum hér á landi, meðal annars Hótel Loftleiði. Þar voru aðilar frá Samkeppniseftirlitinu að afla gagna í nokkrar klukkustundir.

Páll Gunnar Pálsson forstjóri Samkeppniseftirlitsins vildi ekki tjá sig um málið í samtali við fréttastofu. Ekki náðist í forsvarsmenn Icelandair hotels við vinnslu fréttarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×