Samgönguráðherra furðar sig á gagnrýni á Símasamninginn Lóa Pind Aldísardóttir skrifar 22. maí 2009 18:38
Kristján Möller samgönguráðherra furðar sig á síðbúinni gagnrýni netþjónustufyrirtækisins Emax á samningi við Símann um að koma háhraðanettenginu til afskekktra bæja. Emax fullyrðir að tæpur fjórðungur bæjanna sem Síminn ætlar að nettengja fyrir hátt í milljarð úr ríkissjóði séu þegar í dreifikerfi Emax. Ráðherra lofar engu um endurskoðun samningsins en kveðst ætla að skoða málið. Framkvæmdastjóri Emax sakaði samgönguráðherra um að sólunda hundruðum milljóna króna af fé skattborgara í fréttum okkar í gær með því að semja við Símann um að byggja upp háhraðanet fyrir bæi sem þegar eru á dreifikerfi Emax. Samningurinn var undirritaður síðla vetrar og ætlar Síminn að tengja um 1800 afskekkta bæi, fyrr rúmar 600 milljónir króna. Raunar upplýsti samgönguráðherra tveimur dögum eftir undirritun að líklega færi kostnaðurinn upp í milljarð. Af þessum 1800 bæjum geta 400 þegar keypt tengingu hjá Emax, segir framkvæmdastjóri fyrirtækisins og er ekki sáttur. Útboðsgögn í haust gerðu ráð fyrir að tengja um 1100 bæi en tæplega sjöhundruð var bætt inn í samninginn segir ráðherra eftir að ráðuneytinu barst sú vitneskja um áramót að áætlanir tveggja netþjónustufyrirtækja um að víkka út dreifikerfi sitt hafi ekki gengið eftir. Því hafi verið auglýst eftir fyrirtækjum sem vildu sinna þessum bæjum í janúar. Enginn hafi hins vegar svarað þeirri auglýsingu, hvorki Emax né önnur fyrirtæki. Ráðherra var inntur eftir því í samtali við fréttastofu í dag hvort þessar nýju upplýsingar frá Emax, sem benda til að ríkið muni verja tugum eða hundruðum milljóna eða meira í að nettengja bæi sem þegar geta keypt nettengingu, yrðu til þess að ráðherra endurskoðaði samninginn við Símann? Við munum fara yfir málið, segir ráðherra, en ekkert verði gert sem geti tafið að landsbyggðin fái háhraðatengingu sem hún hafi beðið alltof lengi eftir.
Mest lesið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Erlent Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Innlent Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Innlent Hvað segja veðbankarnir? Innlent Fleiri fréttir Hvað segja veðbankarnir? Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Sjá meira