Innlent

Flugslys vegna vindhviðu

Slysið varð skammt frá Flúðum. Mynd/ Stefán.
Slysið varð skammt frá Flúðum. Mynd/ Stefán.
Tveggja hreyfla flugvél endaði ofan í skurði við flugvöllinn á Flúðum eftir hádegi.

Samkvæmt lögreglunni á Selfossi hafði flugmaður verið að æfa lendingar þegar flugvélin lenti í sterkri vindhviðu.

Einn maður var í vélinni og slapp hann ómeiddur. Málinu hefur verið vísað til rannsóknarnefndar flugslysa.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×