Fleiri fréttir

Lögreglumenn vilja ekki að mótmælendur fái útrás á sér

Það leggst mjög illa í lögreglumenn að fólkið í landinu skuli fá útrás fyrir reiði sína á þeim, segir Snorri Magnússon, formaður Landssambands lögreglumanna. Hann segir að mótælin leggist illa í lögreglumenn. Hann bendir á að ástandið bitni ekkert síður á

Viðskiptaráð varar við skattahækkunum

Viðskiptaráð fagnar aðhaldssamri stefnu stjórnvalda í ríkisfjármálum enda sé um að ræða grundvallaratriði í endurreisn hagkerfisins. Miðað við væntanlega hagþróun næstu ára liggi fyrir að stjórnvöld eigi tvo kosti til að brúa þann fjárlagahalla sem þau standa frammi fyrir. Annað hvort að skera niður útgjöld eða auka skattheimtu umtalsvert. Viðskiptaráð telur mikilvægt að stjórnvöld velji fyrri leiðina.

Íslendingur í Feneyjum slapp vel úr flóði

Menn gengu um í vöðlum í Fenenyjum í gær vegna mikilla flóða. Þorvaldur Baldurs, sem hefur búið þar um skeið, segir að þó það flæði oft komist ástandið sjaldan í líkingu við það sem það var í gær. Þá hafi flóðið náð 156 sentimetra hæð.

Rannsóknarnefnd á gráu svæði

Lárentínus Kristjánsson, formaður Lögmannafélags Íslands segir skipan hæstaréttardómara í rannsóknarnefnd um bankahrunið á gráu svæði - og af slíku svæði eigi menn að forða sér. Dómsmálaráðherra deilir ekki áhyggjum manna af sjálfstæði Hæstaréttar.

Benjamín Þór: Mjög sáttur með frávísun

,,Ég er mjög sáttur með þessa niðurstöðu og ég vona að réttlætið sigri að lokum," segir Benjamín Þór Þorgrímsson líkamsræktarþjálfari um niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur að vísa frá tveimur ákærum á hendur honum.

Aðgerðaáætlun til bjargar fyrirtækjum kynnt

Geir H. Haarde forsætisráðherra og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra kynntu í dag á blaðamannafundi aðgerðaáætlun sem miðar að því að aðstoða fyrirtæki landsins í þeim þrengingum sem nú eru uppi. Aðgerðaráætlunin er í tólf liðum og þar er meðal annars opnað á langtímaeign lífeyrissjóða á fasteignum sem þeir hafa lánað fyrir. Auk þess lýsir ríkisstjórnin yfir vilja til að greiða fyrir uppgjöri við erlenda kröfuhafa með því að bjóða þeim hlutafé í nýju bönkunum. Þá er lagt til að bankarnir skipi sérstakan umboðsmann viðskiptavina og auk þess verður liðkað fyrir stofnun endurreisnarsjóðs, öflugs fjárfestingasjóðs atvinnu-lífsins með þátttöku lífeyrissjóða, banka og annarra fjárfesta, þar á meðal erlendra.

Ákærum gegn Benjamín Þór vísað frá dómi

Tveimur ákærum á hendur Benjamín Þór Þorgrímssyni líkamsræktarþjálfara var vísað frá í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Benjamín Þór var ákærður fyrir líkamsárás á Ragnar Ólaf Magnússon. Árásin var sýnd í Kompásþætti um handrukkanir á Íslandi í haust.

Kjararáð getur ekki lækkað launin

Kjararáð hefur hafnað beiðni ríkisstjórnarinnar um það að laun æðstu embættismanna verði lækkuð um 5 til 15 prósent. Í svari ráðsins kemur fram að við óbreyttar aðstæður sé ekki hægt að verða við beiðninni heldur þurfi lagabreyting að koma til. Þetta kom fram á blaðamannafundi sem Geir Haarde forsætisráðherra og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra héldu rétt í þessu. Geir sagði við sama tilefni að ríkisstjórnin sé búin að ákveða þessar aðgerðir og að því verði ekki breytt þrátt fyrir úrskurð kjararáðs. „Við munum finna aðrar leiðir,“ sagði Geir.

14 ára piltar brutust inn og stálu bílum

Brotist var inn á bifreiðaverkstæðið Ásinn á Akranesi á laugardagskvöldið og þaðan var lyklum stolið af bifreiðum sem stóðu fyrir utan verkstæðið. Þar var á ferðinni 14 ára gamall piltur. Sá valdi sér bíl og ók á brott og bauð jafnöldrum sínum í bíltúr. Ökuferðinni lauk með því að þeir óku á og stórskemmdu bifreiðina.

Auglýsingamál RÚV fái ekki flýtimeðferð

Stjórn Sambands íslenskra auglýsingastofa írekar þá skoðun að ákvarðanir um aðkomu Ríkisútvarpsins að auglýsingamarkaði séu teknar með langtímasjónarmið í huga og ekki teknar í flýti.

Steingrímur J. biður blinda og heyrnarlausa afsökunar

Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs, hefur óskað eftir að fá birta afsökunarbeiðni vegna ummæla sem hann lét falla á Vísi í gær. Þar var hann spurður út í þjóðarpúls Gallups og þær góðu undirtektir sem Vinstri grænir hafa fengið að undanförnu. Í lok viðtalsins sagði hann stjórnvöld verða að hlusta á kröfuna um kosningar. Þeir sem ekki gerðu það væru bæði blindir og heyrnarlausir. Steingrímur hefur nú sent afsökunarbeiðni þar sem orðanotkunin væri óviðeigandi.

Grindhvalakjöt varasamt segir landlæknir Færeyja

Færeyingar eru slegnir yfir þeim tilmælum landlæknis eyjanna að hætta helst alveg að bragða á grindhvalakjöti, sem hefur verið mikilvæg uppistaða í fæðu eyjaskeggja í aldanna rás.

Ók á staur í hálku

Þrír slösuðust, en enginn þó alvarlega, þegar ökumaður missti stjórn á bíl sínum í flughálku á Hvaleyrarbraut í Hafnarfirði laust upp úr miðnætti og hafnaði á ljósastaur.

Rjúpnaskyttunnar leitað áfram í dag

Leit að rjúpnaskyttunni, sem saknað hefur verið í uppsveitum Árnessýslu frá því á laugardag, verður fram haldið í birtingu. Hátt í hundrað manns tóku þátt í leitinni í gær, en engar vísbendingar fundust um ferðir mannsins.

Hafró beitir skyndilokun á síldveiðar

Enn eitt reiðarslagið dundi á síldveiðiflotanum í gærkvöldi þegar Hafrannsóknarstofnun beitti skyndilokun á stóru svæði í sunnanverðum Faxaflóa, út af Njarðvík og Keflavík, og einnig skyndilokun á síldveiðisvæðinu við Vestmannaeyjar, þar sem skip voru farin að fá stór köst.

Hreinn Loftsson vill kaupa Morgunblaðið

Hreinn Loftsson stjórnarformaður og aðaleigandi Birtíngs segir marga kosti fylgja sameiningu félagsins og Árvakurs. Hann staðfestir í samtali við Vísi að Birtíngur hafi óskað eftir viðræðum við lánardrottna Árvakurs um möguleg kaup á útgáfu Morgunblaðsins. Hreinn segir að góður árangur hafi náðst í hagræðingu og sparnaði hjá Birtínig undanfarið.

Segir málefnanlegar innistæður fyrir miklu fylgi Vg

Steingrímur J. Sigfússon formaður Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs segir niðurstöður þjóðarpúls Gallups ekkert koma sér sérstaklega á óvart. Flokkur Steingríms mælist með mest fylgi allra flokka, á sama tíma og fylgi stjórnarflokkanna hrynur. Hann segir þann sem ekki sjái kröfu þjóðarinnar um breytingar bæði blindan og heyrnarlausan.

Félag fréttamanna: Afþakka fréttalestur útvarpsstjóra

Almennur fundur Félags fréttamanna fordæmir uppsagnir á fréttasviði Ríkisútvarpsins um mánaðamótin. Fundurinn krefst þess að uppsagnirnar verði dregnar til baka. Nú, þegar aldrei hefur verið nauðsynlegra að halda úti öflugri fréttaþjónustu er ráðist að grunnstarfsemi- og lögbundnum skyldum Ríkisútvarpsins með uppsögnum.

Segir mótmælin hafa verið fámenn í dag

Björn Bjarnason dómsmálaráðherra segir að gangan niður Laugaveg í dag hafi verið ákaflega fámenn. Aðeins nokkur hundruð manns hafi sinnt kallinu um þjóðfund á Arnarhóli. Hann segir trúverðugleika fjölmiðlamanna bíða hnekki, þegar þeir leitast við að mikla fjölda þátttakenda í mótmælum.

Sálfræðinemar opna hjálparsíðu fyrir börn og unglinga

BA nemendur í sálfræði við Háskóla Íslands hafa opnað hjálparsíðu sem ætluð er börnum og unglingum hér á Vísi. Hugmyndin kemur frá nemendunum sjálfum sem datt í hug að halda síðunni úti meðfram námi. Auður Sjöfn Þórisdóttir er ein þeirra sem standa að baki síðunni.

Leit að rjúpnaskyttu hætt

Leit að rjúpnaskyttu sem saknað er í Árnessýslu hefur enn engan árangur borið. Um 80-100 manns frá björgunarsveitum Slysavarnafélagsins Landsbjargar tóku þátt í henni í dag. Síðustu leitarhóparnir eru væntalegir í hús eftir u.þ.b. klukkustund og verður þá leitinni hætt þar sem myrkur hamlar leit.

Lög um gjaldeyrishöft skelfileg mistök

Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir setningu laga um gjaldeyrishöft skelfileg mistök og afnema beri lögin hið snarasta. Þau muni hafa þveröfug áhrif miðað við tilgang þeirra og leiði til þess að gjaldeyrir skili sér ekki til landsins.

Segir meirihluta sjálfstæðismanna á móti evrópusambandsaðild

Hinn þögli meirihluti sjálfstæðismanna er á móti evrópusambansdaðild. Þetta segir fyrrverandi ritsjóri Morgunblaðsins en hann flutti erindi á fundi Heimssýnar í dag. Hann segist ekki eiga von á stefnubreytingu í Valhöll eftir Landsfundinn í Janúar.

Vinstri grænir orðnir stærstir allra flokka

Vinstrihreyfingin grænt framboð mælist með mesta fylgi allra stjórnmálaflokka í nóvember samkvæmt Þjóðarpúlsi Gallups. Þetta kom fram í kvöldfréttum á Rúv nú í kvöld. Ríkisstjórnin hefur ekki verið með minna fylgi síðan árið 1993.

Síldveiðar við Ísland í uppnámi

Síldveiðar við Ísland eru í uppnámi. Ef allt fer á versta veg blasir milljarðatjón við sjávarútveginum og tugir uppsagna við síldarvinnslu vofa yfir. Áfall, segir sjávarútvegsráðherra en segir ekki tímabært að ræða aukakvóta til að veiða upp sýktu síldina. Lóa Pind Aldísardóttir hitti menn á leið út af krísufundi hjá Hafrannsóknarstofnun nú síðdegis.

Mótmælendur farnir úr Seðlabankanum

Geir Jón Þórisson yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu segir að allt sé með rólegasta móti í Seðlabankanum. Talsverður fjöldi mótmælenda kom sér fyrir í anddyri bankans seinni partinn í dag og neitaði að yfirgefa svæðið fyrr en seðlabankastjóri kæmi og talaði við hópinn.

Stavanger og Dusseldorf nýir áfangastaðir Icelandair næsta sumar

Icelandair kynnir um þessar mundir áætlun félagsins fyrir næsta sumar. Alls verður flogið til 23 áfangastaða og allt að 136 flug á viku. Meðal nýjunga er reglulegt flug til Stavanger í Noregi og Dusseldorf í Þýskalandi. Þá verður tíðni aukin í flugi til Toronto í Kanada frá því sem verið hefur, en í heild er um að ræða minni flugáætlun en á síðasta sumri og flug til Orlando í Florida í Bandaríkjunum verður fellt niður næsta sumar.

Framsóknarkonur fagna nýjum konum

Landssamband Framsóknarkvenna (LFK) fagnar því að tvær nýjar þingkonur hafa bæst við þingflokk Framsóknarflokksins, þær Helga Sigrún Harðardóttir og Eygló Harðardóttir.

Rólegra við Seðlabankann

Sextíu til sjötíu manns sitja nú inni í anddyri Seðlabankans og neita að yfirgefa svæðið. Mikill hiti var í fólki áðan og hótaði lögreglan því að beita varnarúða ef það hefði sig ekki á brott. Að sögn sjónarvotta er meiri ró yfir fólki nú en fólkið krefst þess að Davíð Oddsson seðlabankastjóri hverfi úr embætti.

Laun lækkuð um 20 prósent hjá toppunum

,,Við byrjuðum á okkur. Það er eðlilegt því einhvers staðar þarf að byrja," segir Eyjólfur Árni Rafnsson, forstjóri Mannvits, en laun hjá æðstu stjórnendum fyrirtækisins hafa verið lækkuð um 20%.

Áhlaup á Seðlabankann - Varnarúða hótað

Rétt í þessu var gert áhlaup á Seðlabanka Íslands. Á annað hundrað manns eru við bygginguna og ruddust tugir þeirra inn í stofnunina. Hópurinn vill fá að ræða við Davíð Oddsson, seðlabankastjóra.

Hitaveitu Suðurnesja skipt í tvö fyrirtæki

Hluthafafundur Hitaveitu Suðurnesja hf ákvað í dag að skipta fyrirtækinu upp í tvö aðskilin fyrirtæki og var áætlun þar að lútandi samþykkt á fundinum. Í þessari ákvörðun felst að veitukerfi fyrir raforku, hitaveitu og ferskvatn verða í sérstöku félagi, en framleiðslan og sala raforku verður í öðru félagi.

Jóhanna fær Barnamenningarverðlaunin

Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra hlýtur Barnamenningarverðlaun Velferðasjóðs barna í ár. Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar og stjórnarmaður í sjóðnum, afhenti Jóhönnu verðlaunin við hátíðlega athöfn í Iðnó í dag. Þá var einnig úthlutað styrkjum til málefna er varðar börn fyrir alls um 8 milljónir króna.

Þúsundir á þjóðfundi

Boðaður þjóðfundur Borgarahreyfingarinnar hófst klukkan þrjú í dag og má gera ráð að hið minnsta tvö þúsund manns séu mætt á Arnarhól.

Vinnu við fjárlagafrumvarp miðar vel

Stefnt er að því að fjárlaganefnd Alþingis ljúki við umfjöllun um fjárlagafrumvarpið um næstu helgi. Önnur umræða um málið geti svo hafist 10. eða 11. desember. Þetta segir Gunnar Svavarsson, formaður fjárlaganefndar. Hann segir að nefndin sé að taka á móti gestum þessa dagana og fara yfir málin með fulltrúum ráðuneytanna. Sú vinna gangi vel.

Bankarnir komu að forsetabókinni

Viðskiptabankarnir þrír Kaupþing, Glitnir og Landsbankinn komu allir fjárhagslega að nýútkominni bók Guðjóns Friðrikssonar, ævisagnaritara, Sögu af forseta.

LÍÚ telur brýnt að efla starfsemi Landhelgisgæslunnar

Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ segir að fréttir af ítrekuðum meintum ólöglegum veiðum færeyskra skipa í íslenskri lögsögu sýna betur en nokkuð annað hve brýnt er að efla starfsemi Landhelgisgæslunnar.

Sjá næstu 50 fréttir