Fleiri fréttir

Fangi á Vernd sýknaður í peningafalsmáli

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur sýknað karlmann um tvítugt af ákæru um peningafölsun. Í ákærunni var manninum gert að sök að hafa greitt með tveimur fölsuðum fimm þúsund króna seðlum fyrir pítsur, sem sendar voru til mannsins þar sem hann var vistaður á áfangaheimilinu Vernd. Dómari taldi ekki sannað, að maðurinn hefði borgað með seðlunum.

Sýking breiðist út á síldarmiðum

Sýking hefur fundist í síldinni sem veiddist út af Keflavík í gær, eftir að sýkingar varð vart í Breiðafirði fyrir helgi. Sjómenn líkja þessu við áfall, enda getur það tekið stofninn nokkur ár að ná sér, þar sem öll sýkt síld drepst.

Vonast eftir niðurstöðu í dag

Formaður Kjararáðs vonast eftir því að niðurstaða liggi fyrir um launalækkun æðstu embættismanna ríkisins á fundi ráðsins í dag. „Ég er að gera mér vonir um það, en ég veit það ekki fyrr en að loknum fundi," segir Guðrún Zoega, formaður Kjararáðs.

Fimmtungur treystir Geir best

Geir H. Haarde, forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, nýtur mests stuðnings stjórnmálaleiðtoga þegar spurt er hvaða stjórnmálamanni kjósendur treysta best til þess að leiða næstu ríkisstjórn. Ríflega 18 prósent kjósenda treysta ekki neinum stjórnmálamanni til þess að leiða næstu ríkistjórn. Þetta kemur fram í skoðanakönnun sem Capacent Gallup gerði fyrir vefritið Smuguna.

Flestir nota enskar útgáfur af hugbúnaði

Í dag var hleypt af stokkunum átaki sem miðar að því að auka notkun íslenskra þýðinga í hugbúnaði. Mikill meirihluti landsmanna kýs að stunda tölvuvinnu sína í ensku stýrikerfisumhverfi þrátt fyrir að íslensk þýðing sé fáanleg án endurgjalds. „Okkar mál - íslenska“ er yfirskrift átaksins en að því standa Microsoft Íslandi, menntamálaráðuneytið og Íslensk málstöð.

Mikið um að vera á fullveldisdaginn

Fullveldisdeginum er fagnað víða um land í dag. Í Háskóla Íslands efnir rektor ásamt Stúdentaráði til sameiginlegrar samkoumu sem hófst núna klukkan tíu. Heimssýn, hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum efnir til hátíðar í Salnum í Kópavogi og við Háskólann á Akureyri er mikið um að vera.

Ögmundur vill kjósa um ESB aðild

Ögmundur Jónasson, þingflokksformaður Vinstri-grænna, vill að Íslendingar fái að kjósa um aðild að Evrópusambandinu. Í pistli á vefsíðu sinni segir Ögmundur að þörf sé á lýðræðislegri niðurstöðu um málið sama hvort tekin verði ákvörðun um inngöngu eða ekki.

Hvalkjötssölu fagnað

Farmanna- og fiskimannasamband Íslands hélt formannaráðstefnu fyrir helgi þar sem nokkrar ályktanrir voru samþykktar. Þar á meðal var því fagnað að náðst hafi samningar um sölu á hvalkjöti til Japans og var skorað á stjórnvöld að leggja áherslu á að stuðla að auknum viðskiptum milli þjóðanna á þessu sviði.

Vilja takmarka leiguframsal

Farmanna- og fiskimannasamband Íslands vill takmarka verulega leiguframsal innan fiskveiðiársins. ,,Leiga á aflaheimildum innan ársins er og mun verða megin ástæðan fyrir misferli við launauppgjör sjómanna á meðan hún er heimiluð. Afgerandi takmörkun á kvótaleigu innan fiskveiðiársins er mun stærra mál en svo að ásættanlegt sé fyrir sjómenn að ríkisstjórnarin láti kyrrt liggja árum saman," segir í ályktun formannaráðstefnu FFSÍ.

Stórhækkuð gjöld fyrir vistun hesta

Gjöld fyrir að vista hesta á höfuðborgarsvæðinu hafa hækkað gríðarlega frá því í fyrra og mörg dæmi eru um að fólk fækki hrossum sínum eða hætti alveg í hestamennsku.

Leit að rjúpnaskyttunni hafin

Hátt í áttatíu björgunarsveitarmenn hófu í morgun leit að rjúpnaskyttunni, sem saknað hefur verið í uppsveitum Árnessýslu síðan á laugardag. Sporhundarmenn eru með í för og tveir leitarmenn eru á hestum, sem

Í skoðun að breyta gjaldeyrislögunum

„Erlendir fjárfestar ætluðu flestir að fjármagna uppbyggingu okkar á næsta ári með hlutafé að langmestu leyti. Það er bannað samkvæmt gjaldeyrislögunum nú eins og ég skil þau,“ segir Vilhjálmur Þorsteinsson, stjórnarformaður Verne Holdings.

Geir skrifar vinaþjóðum

Geir H. Haarde forsætisráðherra ritar opið bréf til þjóða sem styðja við efnahagsáætlun stjórnvalda og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Bréfið birtist í dagblöðum í viðeigandi ríkjum í dag.

Er bjartsýnn á að lausn finnist

„Ég hef fulla trú á því að stjórnvöld og Seðlabankinn finni lausnir sem fyrst til að koma nær eðlilegum gjaldeyrisviðskiptum í gang á ný. Lög á gjaldeyrisviðskipti geta ekki verið til langframa,“ segir Hörður Arnarson, forstjóri Marel Food Systems, um nýsettar hömlur á gjaldeyrisviðskipti sem samþykktar voru á Alþingi aðfaranótt föstudags. Hann segir erfitt að koma gjaldeyrisviðskiptum í gang á ný en gerir ráð fyrir því að lögin gildi í stuttan tíma.

Ferðamenn hafa neitað að borga

Ferðamenn tíma sumir hverjir ekki lengur að fara í dýrari ferðir innanlands vegna þess hversu mjög landið hefur verið markaðssett sem ódýr áfangastaður. Þetta segir Kristján Kristjánsson hjá ferðaþjónustunni Mountain Taxi.

Samstaða á erfiðum tímum

Boðað hefur verið til veglegra hátíðarhalda í London í dag til að minnast 90 ára fullveldis Íslands. Það er Íslendingafélagið í London sem stendur fyrir hátíðarhöldunum ásamt sendiráði Íslands og íslenska söfnuðinum í London.

Álag hjá Vinnumálastofnun

Stríður straumur hefur verið inn á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar við Engjateig í Reykjavík frá því í byrjun október. Hugrún Jóhannesdóttir, forstöðumaður skrifstofunnar, segir að straumurinn hafi verið afskaplega mikill og álagið líka.

Sjö hæða hótel á áætlun

Fjármögnun byggingar sjö hæða hótels, annarra nýbygginga og upphitaðs torgs á svokölluðum Hljómalindarreit er ekki tryggð. Framkvæmdirnar eru þó enn á áætlun. „Við tókum ákvörðun um að fá deiliskipulagið samþykkt áður en við færum að huga að fjármögnun,“ segir Hanna G. Benediktsdóttir, fjármálastjóri Festa ehf., sem standa fyrir framkvæmdunum.

Á veiðum 50 metra frá landi

Fjögur skip voru að síldveiðum að segja má við bryggjusporðinn í Keflavíkurhöfn í gær. Álsey VE og Birtingur NK fengu fullfermi, en Súlan EA og Margrét EA lögðust að bryggju í Keflavík í gærkvöldi og er ætlunin að halda veiðum áfram í dag.

Hesthús á Ólafsfirði vekja áhyggjur íbúa

Fyrirhugað hesthúsahverfi í Ólafsfirði mætir harðri andspyrnu margra á staðnum. Núverandi hesthúsahverfi í Ólafsfirði stendur nokkuð fyrir innan kauptúnið. Samkvæmt nýju deiliskipulagi, sem meirihluti skipulags- og umhverfisnefnda Fjallabyggðar samþykkti, verður hverfið flutt vegna snjóflóðahættu að suðurenda flugbrautarinnar. Þar á það að standa um 400 metra frá íbúabyggðinni.

Íslenskt hvalkjöt á markað

Íslenskt hvalkjöt er komið á markað í Japan, að því er fram kemur í frétt á vef ABC-fréttaveitunnar. Langreyðarkjötið, 65 tonn, hefur legið í frystigeymslu síðan í byrjun júní á þessu ári, þegar það var flutt til Japans. Það var veitt haustið 2006.

Heimild til að aflétta bankaleynd til staðar

Bankaleynd er háð takmörkunum og lagaramminn veitir nú þegar ýmsar heimildir til að aflétta henni. Oddný Mjöll Arnardóttir, prófessor við Háskólann í Reykjavík, HR, bendir á að upplýsingar um fjárhagsmál séu ekki skilgreindar sem sérstaklega viðkvæmar persónuupplýsingar í lögum um persónuvernd. Mörg lagasetningin í þjóðfélaginu undanfarið höggvi nær réttindum borgaranna en lög sem væru sett til að afnema höft á upplýsingagjöf, til dæmis til rannsóknarnefndar.

Staðinn vörður um innviðina

Nýju embætti héraðssaksóknara verður ekki komið á laggirnar fyrr en í byrjun árs 2010, þar sem ákveðið hefur verið að ráðast ekki í nýjan kostnað í ríkisrekstri. Þetta kom fram í máli Björns Bjarnasonar dómsmálaráðherra á aðalfundi Dómarafélags Íslands á föstudag.

Sjá næstu 50 fréttir