Tæplega 50 þúsund manns synt til Ceuta á einum sólarhring Hólmfríður Gísladóttir skrifar 31. júlí 2026 07:27 Þúsundir manns hafa synt til Ceuta frá Marokkó á aðeins nokkrum klukkustundum. AP/Antonio Sempere Stjórnvöld á Spáni hafa ákveðið að senda lögreglu og hermenn til borgarinnar Ceuta eftir að 49 þúsundir einstaklingar syntu þangað frá Marokkó á einum sólahring. Samkvæmt erlendum miðlum er aðallega um að ræða fullorðna karlmenn en talið er að um 7.000 séu undir lögaldri.
Borgaryfirvöld hafa þrýst á stjórnvöld að lýsa yfir neyðarástandi. Um 83.600 búa í borginni. Innanríkisráðuneytið segir það hins vegar aðeins gert þegar um er að ræða náttúruhamfarir eða kjarnorkuógn. Forsætisráðherrann Pedro Sánchez segir stjórnvöld hins vegar myndu bregðast við af fullum þunga og að unnið væri að málinu í samvinnu við yfirvöld í Marokkó. Ceuta er sjálfstjórnarsvæði sem tilheyrir Spáni. Það og borgin Melilla, sem einnig heyrir undir Spán, eru einu svæðin innan Evrópusambandsins sem hafa landamæri að Afríku. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem uppákoma sem þessi á sér stað en árið 2021 komu 8.000 manns til borgarinnar á aðeins tveimur dögum. Aðsóknin nú kemur á hæla dóms Hæstaréttar fyrr í mánuðinum en samkvæmt honum er yfirvöldum ekki heimilt að senda fólk til baka án meðferðar þegar það kemur sjóleiðina. Ceuta er sjálfstjórnarsvæði Spánar nyrst í Afríku.Google Maps Yfirmaður samtaka lögreglumanna í Ceuta segir algjöra kaos ríkja á svæðinu. Um sé að ræða þúsundir einstaklinga og að landamærin séu í raun „hrunin“. Þá hefur komið fram í erlendum miðlum að móttökumiðstöðvar séu yfirfullar og hundruðir hafi sofið á götum borgarinnar í nótt. Að minnsta kosti níu hafa fundist látnir. Spænsk stjórnvöld hafa verið harðlega gagnrýnd fyrir að veita um hálfri milljón hælisleitenda tímabundin dvalarleyfi. Stjórnvöld á Ítalíu hafa brugðist harkalega við þróun mála og kallað eftir því að Spáni verði úthýst úr Schengen samstarfinu.
Spánn Marokkó Evrópusambandið Mest lesið Réðust á fleiri olíuflutningaskip Erlent Töluðu saman í klukkutíma Erlent Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Innlent „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Innlent Aðeins um 28 prósent innflytjenda með grunnfærni í lesskilningi Innlent „Það kostar peninga að afla peninga“ Innlent Skutu tugum eldflauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu Erlent Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna Innlent Ekki þurfi mikið til að EES-samningurinn rakni upp Innlent Rukka meira fyrir aksturinn og sérstaklega fyrir veginn Innlent Fleiri fréttir Réðust á fleiri olíuflutningaskip Skutu tugum eldflauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu Töluðu saman í klukkutíma Handtaka grunaðan spellvirkja í Þýskalandi Fordæma útförina sem „Slátrarinn“ fékk í Serbíu Grípa saman til aðgerða gegn ísraelskum landtökumönnum Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Dýrmætum listaverkum stolið af safni Renoir Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Kim fjölgar herskipum sínum Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Klerkastjórnin missir tökin Rússar svara fyrir sig Ísland á Ameríkukorti Trumps Stöðnun og dýrtíð að baki stórsigri AfD Kanslarinn segir sigur AfD draga dilk á eftir sér Svíþjóðardemókrati í leyfi vegna Rússaáróðurs og hreinsanir á vinstri vængnum Útlit fyrir fyrstu fjarhægristjórnina frá endalokum nasismans Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Ýmislegt bendi til stjórnarskipta í Svíþjóð Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Gengið til tímamótakosninga í Þýskalandi Funda um framgang stríðsins: „Þeir eru á ómögulega slæmum stað“ Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Sjá meira