Fleiri fréttir

Stórfellt tap fyrir að að taka stöðu með krónunni

Þeir sem tóku stöðu gegn krónunni horfa fram á stórfellt tap. Þetta á einnig við um þau fyrirtæki sem héldu uppi eðlilegum gengisvörnum. Jafnvirði hundruð milljarða króna vegna slíkra samninga er læst inni í gömlu bönkunum.

Haukur Bónusfánaflaggari laus úr haldi

Haukur Hilmarsson sem flaggaði Bónusfána á Alþingishúsinu í mótmælum fyrir hálfum mánuði og var handtekinn í gærkvöldi var sleppt lausum nú fyrir stundu. Fjölmennur hópur fólks hafði þá staðið fyri mótmælum fyrir utan lögreglustöðina við Hlemm og krafist þess að honum yrði sleppt.

Geir Jón: 400 til 500 mótmælendur þegar mest var

,,Við urðum að beita varnarúða gegn fólki sem var að ryðjast inn í húsið og hafði brotið gler í hurðum til að koma því út úr anddyrinu. En við beittum úðanum ekki gegn fjöldanum," sagði Geir Jón Þórisson, yfirlögregluþjónn, í samtali við Vísi.

Jón Sigurðsson klæddur í kjól

Neyðarstjórn kvenna stóð að gjörningi á Austurvelli í dag þar sem styttan af Jóni Sigurðssyni var klædd í kjól með þjóðlegu ívafi. Var það gert til að minna á að frá upphafi byggðar á Íslandi hafa konur ávallt verið helmingur þjóðarinnar.

Fortíðin þarf að víkja fyrir framtíðinni

Á næstu áratugum Íslendingum þurfa Íslendingar að vinna sig út úr hinum efnahagslega vanda og endurvinna traust á stofnunum samfélagsins, að mati Sigríðar Ingu Ingadóttur hagfræðings.

,,Við látum ekki kúga okkur"

Mótmælafundur fer nú fram á Austurvelli sjöunda laugardaginn í röð. Fólk var tekið að streyma að nú laust fyrir klukkan þrjú og Austurvöllur orðinn nokkuð þéttur. Bein útsending frá mótmælafundinum hófst á Vísi og í opinberi dagskrá Stöðvar 2 klukkan þrjú.

Mótmæla handtöku á flaggara

Hópur fólks hyggst mótmæla handtöku piltsins sem dró Bónusfánann að húni á Alþingishúsinu fyrir tveimur vikum, fyrir utan lögreglustöðina á Hverfisgötu um fjögurleytið í dag.

Framkvæmdastjóri Skjásins vill slá skjaldborg um RÚV

,,Fylgjum hjörtunum, sláum skjaldborg um hlutverk RÚV sem sjónvarps í almannaþágu og tryggjum um leið að samkeppni þrífist í sjónvarpi," segir Sigríður Margrét Oddsdóttir framkvæmdastjóri Skjásins.

Fagna jafnréttisviðurkenningu Stígamóta

Femínistafélag Íslands fagnar þeirri nýbreytni Stígamóta að veita árleg jafnréttisverðlaun í eigin nafni og óskar nýkrýndum verðlaunahöfum til hamingju með verðskuldaða viðurkenningu.

,,Fyrst kemur fólkið og svo flokkurinn"

Krafan um kosningar í vor endurrómar í Samfylkingunni enda á flokkurinn sér rætur í ríkri lýðræðishefð, að mati Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur formanns Samfylkingarinnar.

Sparifatasöfnun Rauða krossins fer fram í dag

Rauði krossinn hvetur alla til að kíkja inn í fataskápa sína og kanna hvort þar sé að finna vel með farin spariföt sem ekki standi til að nota aftur. Í dag er nefnilega sparifatasöfnun Rauða krossins, hún hófst klukkan ellefu og stendur til klukkan þrjú.

Mótmæli í beinni á Vísi og Stöð 2

Sjöunda laugardaginn í röð er boðað til mótmæla á Austurvelli í dag klukkan þrjú. Mótmálafundurinn verði í beinni útsendingu hér á Vísi og í opinni dagskrá á Stöð 2. Hægt er að horfa á fundinn hér.

Skíðasvæðið á Siglufirði opið alla helgina

,,Veðrið er ljómandi gott. Sunnangola og mínus þrjár gráður. Hér er nýtroðinn snjór og mjög gott síðafæri," segir Egill Rögnvaldsson umsjónamaður skíðasvæðis Siglfirðinga.

Líkur á sátt á Alþingi um skipan rannsóknarnefndar

Allar líkur eru á að samkomulag takist milli stjórnar og stjórnarandstöðu um skipan rannsóknarnefndar vegna bankahrunsins. Formenn stjórnarandstöðuflokkanna funduðu í morgun með forsætisráðherra og forseta alþingis um málið.

Flaggari handtekinn í Alþingishúsinu í gær

Annar þeirra sem flaggaði Bónusfána á Alþingishúsinu í mótmælum fyrir hálfum mánuði var handtekinn í gærkvöldi. Lögregla greip manninn þar sem hann var í vísindaferð með háskólafélögum á Alþingi. Honum var umsvifalaust gert að afplána eldri dóm án lögbundins fyrirvara og það degi fyrir boðuð mótmæli í miðbænum.

Vill að erlendir bankar eignist hlut í þeim íslensku

Fjármálaráðherra segir æskilegt að þeir erlendu bankar sem eiga inni fjármuni hjá íslensku bönkunum eignist hlut í þeim. Að hans mati getur þetta ekki gerst nógu hratt en viðræður eru þegar hafnar.

Össur: Olía mun gera Ísland að ríkustu þjóð í heimi

Grunnurinn í íslensku atvinnulífi er sterkur. Það er ástæðan fyrir því að Ísland mun ná sér miklu fyrr upp úr djúpri kreppu sem bankahrunið hratt af stað, að mati Össur Skarphéðinssonar iðnaðarráðherra.

Mótmælt á Austurvelli í dag

Í dag fara fram sjöundu skipulögðu mótmælin á vegum Raddir fólksins á Austurvelli frá því fjármálakreppan reið yfir. Mótmælendum hefur heldur fjölgað frá því þau hófust fyrir sjö vikum en síðast liðinn laugardag er talið að á bilinu sex til sjö þúsund manns hafi komið saman á Austurvelli Mótmælin í dag hefjast klukkan þrjú.

Hefja viðræður við hálaunahópa hjá ríkinu um launalækkun

Ríkisstjórnin mun á næstu dögum hefja viðræður við fulltrúa hálaunahópa hjá ríkinu um tímabundna launalækkun þeirra til samræmis við þá launalækkun sem ríkisstjórnin óskaði eftir við Kjararáð í gær að komi til framkvæmda hjá æðstu ráðamönnum þjóðarinnar á næsta ári.

Talsverð ölvun á höfuðborgarsvæðinu - Nokkrir stútar teknir

Töluvert var um ölvun á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Fjórir voru teknir grunaðir um ölvunarakstur og þá komu tvær líkamsárásir inn á borð lögreglu sem voru þó ekki alvarlegar. Að sögn lögreglu gekk nóttin vel þrátt fyrir mikla ölvun í miðbænum og í heimahúsum.

„Ertu að rífast við mig drengur?“

G. Pétur Matthíasson fyrrverandi fréttamaður á RÚV birti nú í kvöld á blogginu sínu viðtal sem hann tók við Geir H. Haarde forsætisráðherra í byrjun árs 2007.

Margdæmdur íslenskur níðingur dæmdur í Noregi

Margdæmdur íslenskur barnaníðingur var fyrr í mánuðinum dæmdur í þriggja ára og níu mánaða fangelsi í noregi fyrir að reyna að nauðga tíu ára stúlku í lok febrúar á þessu ári.

Jónas Fr. þarf að vernda fyrir fjölmiðlum

Vernda þarf Jónas Fr. Jónsson forstöðumann fjármálaeftirlitsins fyrir fjölmiðlum og sýna þeim að ríkisstjórnin sé stolt og sýni frumkvæði. Þetta er meðal þess sem kemur fram í aðgerðaráætlun sem Norðmaðurinn Bjorn Richard Johansen vann fyrir forsætisráðherra og fjallað var ítarlega um í kvöldfréttum RÚV og Kastljósinu.

Nærri 350 tilkynningar um kynferðisbrot í fyrra

Nærri 350 tilkynningar um kynferðisbrot, þar af 90 um nauðganir, bárust lögreglunni á síðasta ári. Eru þetta 14 prósentum fleiri brot en að meðaltali árin 2002-2006. Alls voru 346 málin kærð og var um að ræða 265 einstaklinga en langstærstur hluti þeirra var karlar. Þetta kemur fram í afbrotatölfræði Ríkislögreglustjóra fyrir síðasta ár.

Svartir tímar framundan hjá innflutningsfyrirtækjum

Lán innflutningsfyrirtækja hafa hækkað um 150 prósent á einu ári. Öll þurfa þau að staðgreiða vörur frá útlöndum og framundan eru svartir tímar, segir framkvæmdastjóri Félags íslenskra stórkaupmanna. Hann segir ríkið verða að skipta um gjaldmiðil.

Ríkisstjórnin vill lækka laun æðstu embættismanna ríkisins

Geir H. Haarde forsætisráðherra hefur skrifað bréf til kjararáðs og óskað eftir því að laun þeirra sem heyra undir kjararáð verði endurskoðuð og ákveðið tímabundið að lækka laun þeirra sem heyra undir ráðið. Þeir sem heyra undir kjararáð eru forseti Íslands, alþingismenn, ráðherrar, hæstaréttardómarar og héraðsdómara, auk forstöðumenn helstu ríkisstofnana.

Ekið á vegfaranda hjá Suðurveri

Ekið var á gangandi vegfaranda á Kringlumýrarbraut gegnt suðurveri rétt í þessu. Lögregla er á leið á staðinn, en að svo stöddu liggja engar upplýsingar fyrir um líðan hins slasaða.

Elding fær umhverfisverðlaun

Umhverfisverðlaun Ferðamálastofu voru afhent í 14 sinn í gær. Þau komu í hlut Hvalaskoðun Reykjavík ehf. / Elding fyrir „markvissa stefnu og fyrir að hafa sett sér það markmið að vinna að stöðugum úrbótum í umhverfismálum,“ að því er segir í tilkynningu.

Nokkrir hafa áhuga á Kaupþingi í Lúxemborg

Nokkur félög hafa lýst yfir áhuga á að kaupa starfsemi Kaupþings í Lúxemborg. Frá þessu greindi Yves Leterme, forsætisráðherra Belgíu, á blaðamannafundi í dag eftir fund með belgískum innistæðueigendum sem áttu fé hjá Kaupþingi í Lúxemborg.

Frumvarp til að greiða fyrir bílasölu úr landi lagt fram á Alþingi

Fjármálaráðherra hefur lagt fram á Alþingi frumvarp um breytingar á lögum um vörugjald af ökutækjum og lögum um virðisaukaskatt. Með frumvarpinu er lagt til að heimilað verði fram í apríl á næsta ári að endurgreiða virðisaukaskatt og vörugjald af notuðum ökutækjum sem flutt eru úr landi.

Dæmdir fyrir stórfelldan þjófnað í Reykjanesbæ

Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt þrjár karlmenn á aldrinum 22 til 34 ára í samtals 14 mánaða fangelsi fyrir stórfelldan þjófnað og fjórða manninn í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir hylma yfir með þeim með því að geyma þýfið í íbúð sinni.

Misvísandi skilaboð kalla á vantrauststillögu

„Í ljósi misvísandi skilaboða þingmanna Samfylkingarinnar er eðlilegt að stjórnarandstaðan kanni það hversu sterkan meirihluta á þingi stjórnin hafi,“ segir Baldur Þórhallsson, prófessor í stjórnmálafræði, um vantrauststillöguna sem formenn stjórnarandstöðuflokkanna lögðu fram á Alþingi í dag.

Hvað sagði Davíð við Steinunni Valdísi?

Steinunn Valdís Óskarsdóttir, þingmaður og fyrrverandi borgarstjóri veltir því nú fyrir sér hvort hún eigi að „upplýsa samskipti sín við fyrrverandi forsætisráðherra eftir umdeilda ræðu á Austurvelli 17. júní 2002 um mannréttindi." Þetta kemur fram á Facebook síðu Steinunnar Valdísar. Þegar Vísir hafði samband við Steinunni vildi hún ekkert meira segja um málið að svo stöddu, hún myndi segja frá þessum samskiptum þegar sér hentaði.

Reiddi hátt til höggs

Héraðsdómur Norðurlands vestra hefur dæmt 19 ára pilt í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa slegið annan mann með járnáhaldi þannig að hann hlaut djúpt sár á framhaldlegg.

Svíar samþykkja Lissabon-sáttmálann

Sænska þingið staðfesti í gærkvöldi Lissabon-sáttmálann umdeilda og varð Svíþjóð þar með tuttugasta og fjórða Evrópusambandsríkið til að gera það.

Þjóðleikhúsið sníði sér stakk eftir vexti

Brýnt er að Þjóðleikhúsið haldi rekstri sínum innan fjárlaga og sníði sér stakk eftir vexti. Þetta er meðal þess sem fram kemur í stjórnsýsluúttekt Ríkisendurskoðunar á leikhúsinu.

Telur ekki að Sjálfstæðisflokkurinn verði fyrir skaða til langs tíma

Geir H. Haarde forsætisráðherra telur ekki að Sjálfstæðisflokkurinn verði fyrir skaða, sé til langs tíma litið, þótt gremja fólks bitni að einhverju leyti á flokknum um stund. Nokkuð hefur verið um úrsagnir úr flokknum sem rekja má til aðgerða stjórnvalda í bankakreppunni.

Sjá næstu 50 fréttir