Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Þungar skattaálögur vinna gegn jarðstrengjavæðingu Skattaálögur stjórnvalda eru ein af ástæðum þess að jarðstrengir eru vart raunhæfur kostur til uppbyggingar flutningskerfis raforku, segir forstjóri Landsnets. Kostnaðarmunur á loftlínu og jarðstreng erlendis er lítill. 21.10.2013 06:30
Hauskúpa kollvarpar kenningum Kenningar um fjölda tegunda fornmanna standa völtum fótum eftir að heilleg hauskúpa sem fannst í Georgíu sýndi fram á mikinn mun á mönnum sömu tegundar. Áfall fyrir suma fræðimenn, segir mannfræðingur. Stendur ekki undir svona stórum fullyrðingum, segir annar. 21.10.2013 06:15
Á annað hundrað á útkallslista Hraunavina "Hraunavinir ætla að halda áfram varðstöðu í Gálgahrauni,“ segir Skúli Bjarnason, lögmaður náttúrverndarsamtakanna. Hann segir að Vegagerðin hafi tilkynnt Hraunavinum á fundi að hún myndi hefja framkvæmdir í Gálgahrauni og því hafi menn ákveðið að hafa fólk á vakt í hrauninu. 21.10.2013 06:15
Rándýrum reiðtygjum stolið Brotist var inn í hesthús við Mánagrund á fimmtudag og stolið þremur hnökkum og 20 beislum, þar af þremur mjög dýrum. 21.10.2013 06:00
Með þrjú kíló af amfetamíni Tæplega þrítugur maður hefur setið í gæsluvarðhaldi síðan hann kom til landsins frá Brussel 22. september síðastliðinn og tæp þrjú kíló af amfetamíni fundust vandlega falin í farangri hans. 21.10.2013 06:00
Krabbameinssjúklingar bíða vikum saman eftir fyrsta viðtali hjá lækni Læknum á lyflækningadeild krabbameina á Landspítalanum hefur fækkað um helming. Ástandið hefur ekki verið jafn alvarlegt í fjóra áratugi, segir yfirlæknir. Varahlutir í úrelt tæki eru keyptir á netinu til að spara. 21.10.2013 05:45
Rasmussen í vandræðum vegna hás ferðakostnaðar Lars Lökke Rasmussen, fyrrverandi forsætisráðherra Danmerkur, er í miklum fjölmiðlastormi í heimalandinu eftir að gríðarlegur ferðakostnaður af ferðalögum hans fyrir umhverfissamtök var gerður opinber. 20.10.2013 23:12
Neyðarblysi skotið á loft við Reykjavík Hjálparsveit skáta í Kópavogi og Björgunarsveitin Ársæll voru kallaðar út á tíunda tímanum í kvöld eftir að tilkynning barst um neyðarblys á lofti utan við Reykjavík. 20.10.2013 22:41
Stal bróðirinn heila John F. Kennedy? Því er haldið fram að bróðir John F. Kennedy hafi stolið heila forsetans úr þjóðskjalasafni Bandaríkjanna. 20.10.2013 22:01
Árni Páll: „Uppörvandi og mikil hvatning“ „Þetta er uppörvandi og mikil hvatning,“ segir Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar. Flokkurinn bætir við sig fylgi frá kosningum í vor og mælist nú með 19,7% fylgi samkvæmt könnun félagsvísindadeildar Háskóla Íslands. 20.10.2013 21:20
Eiturlyfjabarón skotinn til bana af manni í trúðabúning Eiturlyfjabarón í Mexíkó var skotinn til bana í barnaveislu af manni sem klæddur var í trúðabúning og sá um að skemmta börnunum. 20.10.2013 20:07
Sirkuskrakkar leika listir sínar Það er ekki daglegt brauð að sjá krakka ganga á stultum, jöggla hringjum og halda fjöðrum á lofti á nefinu á sér, en það er einmitt það sem við gerðum í dag. Hrund Þórsdóttir heimsótti Æskusirkusinn. 20.10.2013 20:00
Besti flokkurinn með 37% fylgi Besti flokkurinn er stærstur stjórnmálaflokka í Reykjavík ef marka má könnun sem Capacent framkvæmdi nýverið. Besti flokkurinn er með 37% fylgi í könnuninni og fær sjö borgarfulltrúa 20.10.2013 19:37
Kjarreldar í Ástralíu: "Fólk er hrætt" Óttast er að kjarreldar í Nýju Suður- Wales í Ástralíu færist í aukana á næstu dögum en hundruð heimila hafa þegar brunnið til grunna. Fólk er óttaslegið, segir íslensk kona sem þar býr. 20.10.2013 18:45
"Þrælkun er til staðar á Íslandi" Dæmi eru um þrælkun á Íslandi í dag, samkvæmt nýrri alþjóðlegri skýrslu. Framkvæmdastjóri Mannréttindaskrifstofu Íslands tekur undir þetta og þekkir til margra mála af því tagi. 20.10.2013 18:45
Níu tilkynnt um framboð hjá Sjálfstæðisflokknum í Reykjavík Níu einstaklingar hafa tilkynnt um framboð sitt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins fyrir borgarstjórnarkosningarnar næsta vor. 20.10.2013 18:44
Heilbrigðisráðherra hættir við byggingu hjúkrunarheimilis Heilbrigðisráðherra hefur tilkynnt Reykjavíkurborg að byggingu tæplega 90 hjúkrunarrýma fyrir aldraða í borginni hafi verið slegið á frest. 20.10.2013 18:14
Stjórnarandstaðan með meirihlutafylgi og Framsókn hrapar Framsóknarflokkurinn hefur tapað miklu fylgi frá kosningum og Samfylkingin mælist nú aftur annar stærsti stjórnmálaflokkurinn á Alþingi, samkvæmt nýrri könnun Félagsvísindastofnunar. 20.10.2013 17:41
Brynjar segir málflutning Margrétar ekki boðlegan "Mikið er aumt að sjá fólk gera lítið úr hæfni ráðherra með niðurlægjandi hætti. Það var lenska þegar fyrrverandi forsætisráðherra átti í hlut og nú skal það vera utanríkisríkisráðherra,“ skrifar Brynjar Níelsson. 20.10.2013 16:28
Íslensk kona varð fyrir leigubíl í Kaupmannahöfn og lést 26 ára gömul íslensk kona lét lífið eftir að hafa orðið fyrir leigubíl í Kaupmannahöfn í nótt. Lögreglan í Kaupmannahöfn rannsakar málið en ekki er vitað nákvæmlega með hvaða hætti slysið bar að. 20.10.2013 15:42
Hjálpa til við heimilisverkin í öllum húsum bæjarins "Við förum í öll hús á Vopnafirði,“ útskýrir Stefán Már og að hans sögn taka íbúar vel í uppátækið. 20.10.2013 14:27
410 metra breitt smástirni gæti skollið á Jörðina Úkraínskir stjörnufræðingar hafa uppgötvað fjögur hundruð og tíu metra breitt smástirni sem gæti skollið á Jörðinni þann tuttugasta og sjötta ágúst árið tvö þúsund þrjátíu og tvö. 20.10.2013 12:41
Nauðlending á Biskupstungnavegi Rétt fyrir hádegi nauðlenti lítil flugvél á Biskupstungnavegi rétt vestan við Einholtsveg og Kjóastaði. 20.10.2013 12:35
Óánægja innan BSRB með fjárlagafrumvarpið Stjórn BSRB lýsir yfir vonbrigðum sínum með fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar. Fyrstu verk nýrrar stjórnar voru að hafna milljarða tekjum frá útgerðinni og ferðaþjónustunni. 20.10.2013 12:22
Fá greitt fyrir óunna yfirvinnu og bílapeningar ofgreiddir Formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga segir launamun kynjanna hjá sveitarfélögunum óþolandi. Það séu væntanlega ákvarðanir yfirmanna hjá sveitarfélögunum sem skapi launamuninn og því verði að breyta. 20.10.2013 12:16
Enginn enn vitjað stúlkunnar litlu Yfirvöld í Grikklandi hafa hrundið af stað alþjóðlegri leit að ættingjum stúlkunnar. 20.10.2013 11:55
Gullfoss eitt af undrum veraldar Gullfoss er í fimmta sæti yfir athyglisverðustu staði veraldar. Þetta kemur fram á ferðavefnum Gogobot. 20.10.2013 11:22
Furðuhlutur var venjulegt neyðarblys Myndband af fljúgandi furðuhlut sem fellur frá himnum á Akureyri hefur vakið athygli í breskum fjölmiðlum. 20.10.2013 10:58
30 farast í sprengjuárás í Hama Að minnsta kosti 30 létust þegar bílasprengja sprakk í sýrlensku borginni Hama nú í morgun. 20.10.2013 10:24
Neyðarástand vegna kjarrelda í Ástralíu Óttast er að kjarreldrar í Nýja Suður-Wales í Ástralíu færist í aukana á næstu dögum. 20.10.2013 10:11
Rúmar 30 milljónir uppá Skaga Tveir skiptu með sér fyrsta vinning í sexföldum potti í lottóinu í gærkvöldi og hlaut hvor um sig rúmlega 31 milljón króna. 20.10.2013 09:56
Lögregla lagði hald á 90 e-töflur í nótt Líklegt er að lyfin hafi verið ætluð til sölu. 20.10.2013 09:42
Húskettir leggja undir sig japanska eyju Það mætti nú segja að þetta sé eyja sem stjórnað er af köttum. 19.10.2013 22:01
Titanic-fiðla fer fyrir metfé Fiðlan, sú hin sama og leikið var á þegar Titanic sökk, var seld í dag á uppboði og fór fiðlan á rúmar 175 milljónir króna. 19.10.2013 21:48
Átta ára börn spila harðbannaðan tölvuleik Í mest selda tölvuleik í heimi eru ofbeldi, vændi og eiturlyfjanotkun daglegt brauð. Kennurum í Stykkishólmi blöskraði að börn niður í átta ára aldur spiluðu leikinn og sendu því bréf til foreldra. Börn hafa skiptar skoðanir á leiknum, eins og Hrund Þórsdóttir komst að í dag. 19.10.2013 20:00
Pólverjar kaupa íslenskar gærur og selja þær svo aftur til Íslands Einn stærsti kaupandi íslenskra lambaskinna í útlöndum vinnur úr gærunum í verksmiðju í Póllandi og selur hluta þeirra svo aftur til Íslands sem fullunna vöru. 19.10.2013 19:16
Ríkið ofrukkaði meðlag Ríkið hefur hugsanlega ofrukkað alla meðlagsgreiðendur um mánuðinn þegar börn þeirra ná 18 ára aldri, en þá lýkur framfærsluskyldu samkvæmt lögum. Meðlagsgreiðandi sem lét á þetta reyna fékk meðlag endurgreitt. 19.10.2013 19:00
Staða barna með málþroskaraskanir: "Tjáskipti eru mannréttindi" Talmeinafræðingur segir marga í sinni stétt reiðubúna að færa þjónustu við börn með málþroskaraskanir inn í skóla og leikskóla, en til að það geti gerst þurfi að tækla ýmis úrlausnaratriði. Enginn heldur utan um þjónustu við þessi börn og biðtími eftir henni er rúmlega ár. 19.10.2013 18:45
Hallarbylting í Öryrkjabandalaginu Ellen Calmon var í dag kjörin nýr formaður Öryrkjabandalags Íslands. Hún bauð sig fram gegn Guðmundi Magnússyni, sitjandi formanni og hafði betur. 19.10.2013 16:51
Biskup vígir nýtt orgel í Vídalínskirkju Frú Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands, mun á morgun vígja nýtt orgel og predika við hátíðlega athöfn í Vídalínskirkju í Garðabæ. 19.10.2013 15:43
20 metra löng afmælisterta Tölvulistinn fagnar 20 ára afmæli sínu um helgina. Af því tilefni tók bakaði Hafliði Ragnarsson úr Mosfellsbakaríi 20 metra afmælistertu fyrir um 2.000 manns sem búist er við að líti við í verslun Tölvulistans að Suðurlandsbraut 26. 19.10.2013 15:33
Berlusconi í bann frá ítölskum stjórnmálum Silvio Berlusconi, fyrrverandi forsætisráðherra Ítalíu hefur verið bannað að taka þátt í stjórnmálum eða gegna opinberu embætti í tvö ár. 19.10.2013 15:00
Guðlaugur vill skilanefnd yfir Íbúðalánasjóð Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, telur að nauðsynlegt sé að setja slitanefnd yfir Íbúðalánasjóð. Hann viðrar einnig hugmyndir um sameiningu sjóðsins við Landsbankann. 19.10.2013 14:49
Bílvelta í Kömbunum Bíll valt í Kömbunum. Lögreglan og sjúkraflutingamenn eru mættir á staðinn. Óljóst með meiðsli fólks. 19.10.2013 14:32
Vilhjálmur undrast orð fjármálaráðherra Ríkisstjórnin verður ekki langlíf ef ekki verður staðið við kosningaloforð um lausn á skuldavanda heimilanna, segir formaður Verkalýðsfélags Akraness. 19.10.2013 14:03