Erlent

410 metra breitt smástirni gæti skollið á Jörðina

Líkurnar eru litlar sem engar á því að smástirnið hæfi jörðina
Líkurnar eru litlar sem engar á því að smástirnið hæfi jörðina
Úkraínskir stjörnufræðingar hafa uppgötvað fjögur hundruð og tíu metra breitt smástirni sem gæti skollið á Jörðinni þann tuttugasta og sjötta ágúst árið tvö þúsund þrjátíu og tvö. 

Líkurnar á árekstri eru litlar sem engar samkvæmt nýjustu mælingum, eða einn á moti sextíu og þrjú þúsund. Enn er margt á huldu um smástirnið og svo gæti farið að líkur á árekstri hækki nokkuð á næstu árum. Uppgötvun stjörnufræðinganna hefur vakið mikla athygli og hafa teymi stjörnufræðinga vítt og breitt um heiminn staðfest niðurstöður þeirra. Varaforsætisráðherra Rússlands, Dmitry Rogozin, sagði í gær að rússneska geimvísindastofnunin myndi setja saman áætlun um hvernig væri best að takast á við mögulegan árekstur. Um tvö þúsund og fimm hundruð megatonn af orku myndu losna úr læðingi við árekstur smástirnisins og Jarðar. Slík sprenging yrði fimmtíu sinnum öflugri en stærsta kjarnasprengja sögunnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×