Fá greitt fyrir óunna yfirvinnu og bílapeningar ofgreiddir Heimir Már Pétursson skrifar 20. október 2013 12:16 Halldór Halldórsson er óánægður með launamun kynjanna hjá sveitarfélögunum. Mynd/GVA
Formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga segir launamun kynjanna hjá sveitarfélögunum óþolandi. Það séu væntanlega ákvarðanir yfirmanna hjá sveitarfélögunum sem skapi launamuninn og því verði að breyta. Samkvæmt könnunum samtaka launafólks er launamunur karla og kvenna mestur hjá sveitarfélögunum. Halldór Halldórssson formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga sagði í þættinum á Sprengisandi á Bylgjunni í morgun að þetta væri því miður staðreynd.„Það er alveg með ólíkindum að hann skuli vera til staðar eftir alla þá vinnu og alla þá baráttu sem búið er að leggja í. Maður skilur það bara ekki. Stjórnendur verða að líta sér nær í þessum efnum. Einhverjir ákveða það og taka þær ákvarðanir sem verða til þess að þessi launamunur kemur fram,“ sagði Halldór.Þetta séu væntanlega ákvarðanir um bílapeninga sem karlar fái frekar greidda en konur og jafnvel fasta yfirvinnu. Hann hafi hvatt sveitarfélögin til að skoða þetta í sínum launakerfum beint og laga þetta.Í sumum tilfellum sé um að ræða greiðslur fyrir óunna yfirvinnu og bílapeningar greiddir fyrir meiri akstur en í raun er ekinn.„Mér sýnist að eins og til dæmis hjá Reykjavíkurborg að þá eigi að fara þá leið að skera niður yfirvinnu og svoleiðis. Það þýðir það að karlar munu lækka í launum. Ef ég skil þetta rétt.“„Það er samt sem áður að það er ekki skynsamlegt að fara í miklar launahækkanir á alla línuna núna. Það er bara ekki skynsamlegt. Því að ef það yrði farið í miklar launahækkanir núna á alla línuna þá búum við til verðbólgu sem étur það upp og rúmlega það,“ fullyrti Halldór í Sprengisandinum í morgun.
Mest lesið Kosningavaktin 2026: Kjördagur genginn í garð Innlent Kosningaspá Vísis: Nýr möguleiki opnast til hægri Innlent Fyrrverandi sendiherra skiptir óvænt um skoðun Innlent Deilt um orð Hildar um „súkkulaðikleinuna“ Sönnu Innlent Enginn augljós meirihluti á vinstri vængnum Innlent Skoða að gefa bandamönnum Trumps tvö hundruð milljarða Erlent „Ég veit ekki alveg hvernig stendur á þessu“ Innlent Felldu næstæðsta ISIS-liða heims: „Hélt að hann gæti falið sig í Afríku“ Erlent Bríet krefur Pálma Ragnar um átta milljónir króna Innlent Björg útilokar samstarf með Miðflokknum og Einar vill forðast það Innlent Fleiri fréttir Eftirlitsmenn á vegum Evrópuráðsins fylgjast með kosningunum Deilt um orð Hildar um „súkkulaðikleinuna“ Sönnu Svona nýttu oddvitarnir sínar tuttugu sekúndur Enginn augljós meirihluti á vinstri vængnum Kjördagur runninn upp Fyrrverandi sendiherra skiptir óvænt um skoðun Kosningaspá Vísis: Nýr möguleiki opnast til hægri Kosningavaktin 2026: Kjördagur genginn í garð Nýjustu tölur í Reykjavík Nýjustu tölur í Kópavogi Nýjustu tölur í Hafnarfirði Nýjustu tölur úr Garðabæ Nýjustu tölur í Reykjanesbæ Nýjustu tölur á Akureyri Nýjustu tölur í Árborg Nýjustu tölur í Mosfellsbæ Nýjustu tölur á Akranesi Nýjustu tölur í Múlaþingi Nýjustu tölur í Fjarðabyggð Nýjustu tölur í Vestmannaeyjum Nýjustu tölur í Skagafirði Nýjustu tölur í sameinuðu sveitarfélagi Borgarbyggðar og Skorradalshrepps Nýjustu tölur í Ísafjarðarbæ Nýjustu tölur í Hveragerði Nýjustu tölur í Norðurþingi Nýjustu tölur í Ölfusi Nýjustu tölur í Sveitarfélaginu Hornafirði Nýjustu tölur í Fjallabyggð Nýjustu tölur í Rangárþingi ytra Nýjustu tölur úr Rangárþingi eystra Sjá meira