Fleiri fréttir

80 skátar settu nýtt met í heitum potti

Líklega var sett nýtt met í sundlauginni í Laugaskarði, Hveragerði í gær þegar 80 skátar yfirfylltu nuddpott laugarinnar sem venjulega rúmar aðeins 10 sundlaugargesti.

Er sæstrengur ígildi olíufundar?

Alþingi sest á næstunni yfir flókin álitamál er varða raforkusölu til Evrópu um sæstreng. Hvatt er til forrannsókna á næstu árum. Þó útiloka stjórnvöld ekki að hægja á frekari könnun verkefnisins. Bretar eru mjög áhugasamir og tilbúnir með mannskap og fjármagn.

450 borgarar hafi fallið í drónaárásum

Samkvæmt skýrsludrögum frá Sameinuðu þjóðunum er talið að um 450 óbreyttir borgarar hafi fallið í árásum sem Bandaríkjamenn hafa gert með ómönnuðum loftförum í baráttu sinni gegn hryðjuverkamönnum.

Horst Gorda mátti þola niðurlægingu

Horst Gorda fannst látinn á Klambratúni í síðustu viku. Hann var í kynleiðréttingarferli og barðist í tvö ár fyrir því að fá nafni sínu breytt í þjóðskrá og vera viðurkenndur sem karlmaður. Ráðgjafi telur að ekki ætti að hleypa fólki í ferlið án þess að tryggja að kerfið sé samstiga.

Blendin viðbrögð við tilfærslu frídaga

Þjóðkirkjan leggst gegn því að uppstigningardagur verði afnuminn sem almennur frídagur. Fólk verði að eiga þess kost að sækja kirkju á helgum dögum. Alþýðusambandið segir skiptar skoðanir meðal félagsmanna á tilfærslu frídaga.

Sumarbústaðaferð getur af sér annað dómsmál

Fyrrverandi yfirmaður hjá Isavia hefur stefnt félaginu vegna ólögmætrar uppsagnar og krefst tveggja milljóna í bætur. Honum var sagt upp eftir að konu voru dæmdar bætur vegna kynferðislegrar áreitni hans. Hæstiréttur sneri þeim dómi.

Neitar að hafa stungið mann í lærið

Ríkissaksóknari hefur gefið út ákæru á hendur 22 ára gömlum Reykvíkingi fyrir að stinga tvítugan mann tvívegis í lærið með hnífi við Mjóddina í Breiðholti 1. ágúst í fyrra.

Lögum um forföll á þingi er ekki fylgt

Einar K. Guðfinnsson, forseti Alþingis, segir að þingið gangi ekki sérstaklega á eftir því við þingmenn hvers vegna þeir boða forföll af þingi, jafnvel þótt þingskaparlög kveði á um að þingforseti skuli meta nauðsyn forfalla.

Gríðarlegur munur á útfararkostnaði ungbarna

Munur á kostnaði við útfarir ungbarna getur hlaupið á hundruðum þúsunda. Ung móðir segir útfararstofur misnota aðstöðu sína þar sem foreldrar, sem þurfi að jarða nýfædd börn sín, séu ekki í ástandi til að bera saman kostnað.

Vilja ekki sæti í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna

Sádi-Arabía hefur neitað að taka sæti í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna og sakar ráðið meðal annars um tvöfallt siðgæði og að hafa leyft ríkisstjórn Sýrlands að drepa eigin borgara með efnavopnum. Breyta þarf öryggisráðinu áður en Sádi-Arabía tekur þátt í því.

Heimamenn vilja útiloka síld frá Kolgrafafirði

Bæjarráð Grundarfjarðar skorar á Sigurð Inga Jóhannsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, að leyfa lokun Kolgrafafjarðar án tafar vegna hættu á frekari síldardauða í firðinum.

Finnur fyrir mikilli reiði í garð gerandans

Faðir ungar stúlku sem numin var á brott og brotið gegn henni kynferðislega segir að það hafi hvarflað að sér að lumbra á gerandanum. Hann viti þó að sú athöfn myndi ekki gera sig að betri manni.

Fljúgandi bíll á markað 2015

Hinn hefðbundni einkabíll gæti átt von á mikilli samkeppni frá og með árinu 2015. Þá mun koma á markað bíll sem keyrir um stæti líkt og hefðbundinn bíll en er gæddur þeim eiginleikum að geta flogið.

Keyptu hlut í N1 fyrir 2,5 milljarða

Hópur fjárfesta hefur nýtt kauprétt að 18% hlutafjár í N1 hf. Kaupverð hlutanna er 2.547 milljónir króna eða sem nemur 14,15 krónum á hlut.

"Barnalæsing" á snjallsíma

Nú er hægt að fá app sem er nokkurs konar barnalæsing á snjallsíma og veitir börnum vernd. Með appinu geta foreldrar takmarkað snjallsímanotkun eða stýrt henni í samráði við börnin.

Eyðilögðu 200 milljón ára gamla bergmyndun

Þrír menn gætu átt yfir höfði sér ákæru eftir að þeir eyðilögðu 200 milljón ára bergmyndun í þjóðgarði í Utah, í Bandaríkjunum. Í þjóðgarðinum Goblin Valley er mikið um bergmyndun sem myndaðist á Júra-tímabilinu.

Verða að gifta samkynhneigða

Stjórnlagadómstóll í Frakklandi hefur komist að þeirri niðurstöðu að embætismenn geti ekki neitað að gefa saman fólk af sama kyni.

Listamenn verja hagsmuni þeirra sem níðast á þeim

„Listamenn virðast vera orðnir svo vanir því að láta taka sig ósmurt í afturendann af nú úreldum og gagnslausum milliliðum að listamenn eru farnir að verja sömu hagsmuni og hafa alltaf tekið bróðurpartinn af vinnu þeirra,“ segir Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata í svari sínu við grein Bubba Morthens.

Starfsgreinasambandið krefur ríkisstjórnina um efndir

Þing Starfsgreinasambandsins sem lauk á Akureyri í dag leggur áherslu á að í komandi kjarasamningum verði ríkisstjórnin krafin um efndir á fyrirheitum sem gefin voru í kosningabaráttunni sl. vor og bæta eiga hag heimilanna.

Utanríkisráðherra fær það óþvegið

Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra er ekki hátt skrifaður í bókum Margrétar Tryggvadóttir, fyrrverandi alþingiskonu, sem sendir honum kaldar kveðjur í nýjum pistli.

Vilja endurskoða fjölda trúarfrídaga

Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir frídaga of marga nú þegar, við séum með verulegt magn af trúarfrídögum, á sama tíma og við búum við trúfrelsi.

Fangar komnir á undan í nettækninni

Aðgengi fanga að tölvum og neti verður takmarkað verulega vegna misnotkunar fanga á þeim kosti. Tölvur hafa verið gerðar upptækar auk netpunga en Margrét Frímannsdóttir segir tæknina alltaf vera komna á undan þeim.

„Algjörlega ábyrgðarlaust“

Júlíus Vífill Ingvarsson segir meirihlutann nota afgreiðslu á stækkun flugstjórnarmiðstöðvar til að semja við ríkið um framtíð flugvallarins.

Pólitísk samstaða um breytingar á frídögum

Björt framtíð hefur lagt fram frumvarp á Alþingi sem kveður á um breytingar á frídögum þar sem frídagar í miðri viku færast að helgum og sumir frídagar sem lenda á helgum verða mánudaginn eftir.

Lasergeisla beint að flugvél

Tvær tilkynningar bárust lögreglu nýverið um að grænum lasergeisla hefði verið beint að fólki.

Tekinn með 3 kíló af amfetamíni

Karlmaður á þrítugsaldri situr nú í gæsluvarðhaldi eftir að hafa reynt að smygla miklu magni af amfetamíni til landsins.

Blómstrandi rós á Digranesheiði

"Það undrast þetta allir sem koma hérna að sjá blómin í fullum skrúða,“ segir Pálmi Sveinsson í Digranesheiði 33 í Kópavogi þar sem rós er nú blómstrandi þótt komið sé fram yfir miðjan október.

Sjá næstu 50 fréttir