Rándýrum reiðtygjum stolið 21. október 2013 06:00 Reiðtygjum að verðmæti þriggja milljóna króna var rænt í innbroti í hesthús á Mánagrund í Reykjanesbæ. Mynd/Víkurfréttir „
Þetta er tilfinnanlegt tjón fyrir okkur. Það var stolið frá okkur reiðtygjum fyrir um þrjár milljónir króna. Á einu bretti hvarf 30 ára útgerð,“ segir Gunnar Maríusson, hestamaður í Keflavík. Brotist var inn í hesthús Gunnars, sem stendur við Mánagrund, á fimmtudag og stolið þremur hnökkum og 20 beislum, þar af þremur mjög dýrum. Hann segir að þau séu sjö í fjölskyldunni og öll í hestamennsku. Dætur hans hafi verið að keppa á mótum og þau því átt góðan keppnisbúnað. Fyrir tveimur árum var brotist inn hjá Gunnari og þá var þremur dýrum hnökkum stolið. Gunnar segir þjófarnir hafi spennt upp hurð og látið greipar sópa um reiðtygin. Þeir hafi vitað nákvæmlega hvað þeir ætluðu að taka því ekki hafi verið hreyft við neinu öðru eða rótað til. Þeir sem geta gefið upplýsingar um málið eru beðnir að hafa samband við lögregluna í síma 420-1800.
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Innlent Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Sjá meira