Enginn enn vitjað stúlkunnar litlu Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 20. október 2013 11:55 Ljóshærða, bláeygða stúlkan var ekki talin líkjast sígaunaparinu sem héldu því fram að hún væri dóttir þeirra.
Lögreglan lýsir enn eftir foreldrum fjögurra ára gamallar stúlku sem fannst á fimmtudaginn í Grikklandi. Hún var þá í umsjá sígaunapars en lögregla sem kom inn á heimili þeirra fylltist grunsemdum þegar augljóst var að stúlkan líktist ekkert parinu sem sögðust vera foreldrar hennar. Yfirvöld í Grikklandi hafa heitið því að hjálpa stúlkunni. Hún var tekin frá parinu og sett í umsjá góðgerðarsamtaka sem heita „The Smile of the Child“ eða Bros barnsins og hún hefur fengið sálfræðilega aðstoð frá sálfræðingi sem starfar hjá lögreglunni. DNA próf leiddu í ljós að hún var í reynd ekki skyld parinu. Góðgerðarsamtökin hafa gagnrýnt löggjöf um skráningu barna í Grikklandi. Segjast þau hafa orðið orðlaus þegar kom í ljós hversu auðvelt er að skrá barn sem sitt eigið. Aðeins þarf að koma með yfirlýsingu sem studd er framburði tveggja vitna. Ef einhver hefur upplýsingar um uppruna stúlkunnar ljóshærðu er sá hinn sami beðinn að hringja í Beina línu fyrir týnd börn eða hafa samband við Bros barnsins. Interpol er einnig komið í málið og vonast er til þess að með hjálp þeirra verði hægt að leysa það farsællega. Lögfræðingur parsins segir þau hafa tekið stúlkuna af manngæsku sinni í sína umsjá frá þriðja aðila. Þau hafa verið ákærð fyrir mannrán.
Mest lesið Skilti sem átti að fæla burt ferðamenn hefur öfug áhrif Innlent Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Erlent Gerir aðra atlögu að Lagarfljóti um helgina Innlent Sögusagnir farið af stað þegar hann sást á fundinum Innlent „Við hefðum viljað samráð frekar en samtal“ Innlent Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Erlent „Klukkan tifar“ Innlent Íbúar flúðu undan tónlistarhátíð Bjarkar Innlent Flaggskip kólumbíska sjóhersins býður almenningi um borð Innlent Bændur í baráttuhug á leið í herferð um landið Innlent Fleiri fréttir Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“ Biður hæstarétt um grænt ljós á veislusalinn „Óumflýjanlegt“ að sjúkdómar blossi aftur upp vegna aðgerða Bandaríkjanna Í basli með að finna nýjan sendiherra í Washington DC Trump skipar sjóhernum að notast aftur við gufu Gróður brennur beggja vegna Ermarsunds Sektaður fyrir að nota þokulúður til að vekja ísbjörn Búa sig undir annað áhlaup á Ceuta Fara fjallabaksleið til að koma nafni Trump á Kennedy-miðstöðina Farage sigraði en Ruslatunnufés greifi hlaut fjórðung atkvæða Komu í veg fyrir launmorð á Bandaríkjamanni í Varsjá Hafa áhyggjur af geðheilsu þúsunda sjóliða Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Mangione sagður ætla að játa Mannskæð sprenging í stærstu höfn Evrópu Sagður hafa setið fyrir foreldrum sínum áður en hann myrti þau Senda inn liðsauka þar sem landtökumenn sitja um heimili Palestínumanna Handtóku og ákærðu baráttukonu gegn Kú Klúx Klan Stefna Trump vegna sölu á samfélagsmiðlafærslum hans Olíuborunum á Grænlandi frestað eftir viðræður við stjórnvöld Leavitt hættir hjá Trump ICE-liðar fá rafmagnshanska Létu sprengjum rigna á rússneska flotastöð við Svartahaf Ófrjósemi: Gervigreindin notuð til að finna sáðfrumur í geldsæði Farage etur kappi við grínara og aðra furðufugla Blaðamenn og aðrir farþegar notaðir sem tálbeita? Þúsunda saknað og tíminn að renna út Stríðsfangar barðir og beittir kynferðislegu ofbeldi Sjá meira