Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Laugavegshlaupinu er lokið Sextánda Laugavegshlaupinu lauk rétt fyrir sjö leytið í kvöld. 301 hlaupari var ræstur í morgun og 289 hlauparar luku hlaupinu sem er 55 kílómetra langt. Allir hlauparar voru ánægðir með að ekki var eins heitt í veðri og búið var að spá. 14.7.2012 19:50
Fornar beinagrindur í miðri Mexíkóborg Fornleifafræðingar í Mexíkó hafa fundið fimmtán beinagrindur í grafreit sem talinn er vera frá tímum Asteka. Grafreiturinn fannst á byggingarsvæði í miðri Mexíkóborg. 14.7.2012 19:30
Mótmælin harðna á Spáni Spænska óeirðalögreglan beitti í nótt táragasi gegn mótmælendum sem hafa gengið um götur höfuðborgarinnar í landinu síðasta sólarhringinn og krafið þarlend stjórnvöld um að falla frá niðurskurðaráætlunum. 14.7.2012 19:20
Hillary Clinton styður Mohammed Mursi Hillary Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, átti fund með nýkjörnum forseta Egyptalands, Mohammed Mursi, í dag. Eftir fundinn ítrekar hún að Bandaríkin styðji algera skiptingu yfir í lýðræði í landinu. 14.7.2012 18:21
Starfsmenn Sameinuðu Þjóðanna á vettvang fjöldamorðanna Starfsmenn Sameinuðu Þjóðanna eru komnir til þorpsins Tremseh í Sýrlandi þar sem fjöldamorð áttu sér stað á fimmtudaginn. Þeir eru þangað komnir til að taka út ástandið á svæðinu. 14.7.2012 17:46
Stefnir í metsumar í hvalaskoðun Það stefnir í metsumar í ár hjá hvalaskoðunarfyrirtækinu Eldingu sem gerir út frá Reykjavíkurhöfn. Sé bara horft á sumarið er útlit fyrir 20% aukningu frá því í fyrra. Sé veturinn tekinn með í reikninginn blasir við 40-50% aukning en veturinn var sérlega góður í ár. 14.7.2012 17:18
Ralph Lauren: Ólympíubúningurinn verður saumaður heima Fatahönnuðurinn Ralph Lauren hefur lofað að bandarískir ólympíufarar verði í fötum sem saumuð eru í Bandaríkjunum á næsta ári eftir að kom á daginn að föt íþróttamannanna í ár eru í raun saumuð í Kína. 14.7.2012 16:09
Umferðarslys við Blönduós Umferðarslys varð í umdæmi lögreglunnar á Blönduósi fyrir skömmu. Samkvæmt upplýsingum lögreglu er slysið talið alvarlegt en einn hefur verið fluttur á sjúkrahús til aðhlynningar. 14.7.2012 15:53
Íslenski tuktuk-inn klikkaði á fyrsta degi Íslenski tuktuk-inn sem þakinn er auglýsingum frá Nova gafst upp í brekkunni á neðsta hluta Hverfisgötu á fyrsta deginum sem hann eyðir á götum borgarinnar. 14.7.2012 15:30
Stúlkan sem varð undir heyböggum er látin Danska stúlkan sem slasaðist illa þegar stórir heybaggar, fjögur hundruð kíló að þyngd, hrundu yfir hana og systur hennar á bóndabæ á Jótlandi á fimmtudag er látin. Stúlkan, sem var sex ára, var stödd í hesthúsi ásamt systrum sínum tveim þegar slysið átti sér. Hinar stúlkurnar voru níu og þrettán ára en þær voru úrskurðaðar látnar skömmu eftir slysið. 14.7.2012 15:09
Flóð valda spjöllum og manntjóni Um fjögur hundruð þúsund íbúar á eyjunni Kyushu í Japan hafa þurft að yfirgefa hemili sín vegna mikilla flóða. Að minnsta kosti tuttugu hafa látið lífið og níu er saknað. Mikil úrkoma hefur verið á svæðinu síðustu daga og hafa aurskriður og flóð valdið miklum skemmdum á mannvirkjum. 14.7.2012 15:04
Ný íslandsmet í bæði karla- og kvennaflokki Fyrstu hlauparar eru komnir í mark í Laugavegshlaupinu og fyrir liggur að tvö íslandsmet voru sett, bæði í karla og kvennahlaupi. 14.7.2012 14:47
Ungar knattspyrnustúlkur á keppnisskóm Um helgina reimar yngsta kynslóð knattspyrnukvenna á sig takkaskóna og reynir mátt sinn og meginn á fótboltavellinum. Símamótið fer fram í Kópavogi en þar etja 5., 6. og 7. flokkur kvenna kappi. Mótið hófst með skrúðgöngu á fimmtudag en keppni hófst í gær. Mótsslit verða síðdegis á morgun. 14.7.2012 14:34
Sól og partí á Eistnaflugi Um þrettán hundruð manns eru nú saman komnir á tónlistarhátíðinni Eistnaflugi á Neskaupstað að mati lögreglu. Stefán Magnússon, framkvæmdastjóri hátíðarinnar segir framúrskarandi stemningu á svæðinu og veðrið með eindæmum gott. "Hér er sól og partí,“ segir hann. 14.7.2012 14:03
Stefnir í Íslandsmet í Laugavegshlaupinu Allt stefnir í að Íslandsmet verði slegið í Laugavegshlaupinu í dag en nú rétt fyrir hádegi voru fremstu hlaupararnir hálfnaðir með leiðina. 14.7.2012 13:19
Heyrúllum teflt gegn ESB aðild Fólk reynir ýmislegt til að ná eyrum samlanda sinna og nú hafa bændur í Reykholtsdal brugðið á það ráð að líma slagorð á heyrúllur og stilla þeim upp við veginn um dalinn. Á vefsíðu fréttamiðilsins Skessuhorn eru leiddar að því líkur að margs konar áróður muni færast í aukana þegar nær dregur fullbúnum samningi í lok aðildarviðræðna Íslendinga í Brussel. 14.7.2012 12:55
Tónleikamaraþonið hafið Tólf klukkustunda tónlistarveisla verður í boði fyrir gesti Kex Hostel í dag en meðal annarra koma fram íslensku hljómsveitirnar Hjálmar og Tilbury. Tónleikarnir verða teknir upp og munu hljóma í bandarísku útvarpi. 14.7.2012 12:47
Skotárás í Svíþjóð Tveir menn særðust, þar af annar lífshættulega, í skotárás á skemmtistað í Malmö í Svíþjóð í nótt. Þetta kemur fram á vef sænska ríkissjónvarpsins. Mennirnir eru á þrítugs og fimmtugsaldri en lögreglan hefur tekið skýrslur af vitnum. Enginn hefur hins vegar verið handtekinn vegna málsins. 14.7.2012 12:41
Annie Mist í góðri stöðu fyrir helgina Sem stendur er Annie Mist Þórisdóttir í þriðja sæti á heimsmeistaramótinu Reebok CrossFit Games sem hófst á miðvikudaginn. Staða hennar lítur vel út fyrir helgina en að sögn rúllaði hún síðustu þraut dagsins í gær upp með einstökum sóma. 14.7.2012 12:06
Fischer safn á Selfossi Undirbúningur er hafinn að opnun Fischer-safns við Austurveg á Selfossi. Viljayfirlýsing um það var undirrituð fyrir helgi í tilefni þess að 40 ár voru liðin frá einvígi aldarinnar í Reykjavík þar sem Bobby Fischer og Boris Spassky tefldu í Reykjavík. Fischer Selfoss Foundation leggur til stofnfé og mun auk þess standa fyrir söfnun muna til sýningar á safninu. 14.7.2012 11:45
Þjófnaður á hótelherbergi Tilkynnt var um þjófnað í morgun á Hótel Klöpp við Klapparstíg í miðborg Reykjavíkur. Farið var inn á herbergi og taska gripin þaðan. Í töskunni voru m.a. 600 evrur og snyrtivörur. Málið hefur ekki verið upplýst og er sem stendur í rannsókn hjá lögreglu. 14.7.2012 11:33
Vilja gönguleið umhverfis flugvöll Á þriðja hundrað íbúa í Fljótsdalshéraði krefjast þess að gert verði ráð fyrir gönguleið umhverfis flugvöllinn á Egilsstöðum í nýju deiliskipulagi á svæðinu. Með gönguleiðinni opnast möguleiki fyrir útivistarfólk til að fylgjast með margbreytilegu flugi við Egilsstaðaflugvöll auk þess sem fjölbreytt fuglalíf er á svæðinu. Um þessar mundir er verið að fjalla um nýtt deiliskipulag Isavia fyrir svæðið. Til að kröfurnar verði að veruleika mun nauðsynlegt að breyta aðalskipulagi sveitarfélagsins og sömuleiðis fá heimild landeiganda. 14.7.2012 11:15
Sárbænir gesti Eistnaflugs að keyra varlega Á síðasta sólarhring hafa 11 verið kærðir fyrir of hraðan akstur í nágrenni Neskaupstaðar þar sem tónlistarhátíðin Eistnaflug fer fram. Sá sem hraðast ók var mældur á 135 km/klst í sunnan verðum Hólmahálsi á milli Reyðarfjarðar og Eskifjarðar. Sá á í vændum mjög háa fjársekt . 14.7.2012 11:10
Grímsey trekkir að Erlendir ferðamenn sem hafa viðkomu á norðurlandi eru gjarna spenntir að heimsækja Grímsey og því hefur verið mjög líflegt í eyjunni síðustu daga. Grímsey er 40 kílómetra norður af Íslandi og Norðurheimskautsbaugurinn gengur í gegnum eyjuna norðanverða. Marga ferðamenn fýsir að komast að heimskautsbaugnum og af þeim sökum hefur verið nóg að gera hjá Flugfélaginu Norlandair, en til Grímseyjar er flogið einu sinni á dag yfir sumartímann. 14.7.2012 10:49
Bastilludagurinn er í dag Hinn svonefndi Bastilludagur, er í dag. 14. júlí er þjóðhátíðardagur Frakklands en þá minnast Frakkar árásarinnar á Bastilluna í Frönsku byltingunni. Margskyns hátíðarhöld eru víðsvegar um landið og meðal annars er herskrúðganga á Champs-Élysées í París. Það er elsta og stærsta herskrúðganga sem haldin er reglulega í allri Evrópu. Á myndinni tekur frakklandsforseti, Francois Hollande, þátt í skrúðgöngunni í morgun. 14.7.2012 10:34
Sjálfsmorðssprengjuárás í brúðkaupi Að minnsta kosti tuttugu létu lífið og ríflega sextíu særðust í sjálfsmorðssprengjuárás í brúðkaupsveislu í Afganistan í gær. 14.7.2012 10:27
Alþingi þarf að virða lögbundna fresti Sigurður Líndal, prófessor emeritus í lögfræði, segir þjóðaratkvæðagreiðslu um tillögur stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá verða að markleysu ef Alþingi virðir lögbundna fresti að vettugi. 14.7.2012 10:18
Slökkvilið ræst út af suðupotti Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út að íbúð í Gaukshólum í Breiðholti um eittleytið í nótt. Þar hafði pottur gleymst á eldavél og lagði mikinn reyk um íbúðina. Engum varð meint af en húsráðandi var heima og óskaði eftir aðstoð við að reykræsta. Þá fór dælubíll slökkviliðsins í tvö útköll til að svipast um eftir reyk eða eld sem tilkynnt hafði verið um. Fyrst í Garðabæ og síðar í Breiðholti en í hvorugu tilfellinu reyndist nokkuð vera í gangi. 14.7.2012 10:06
"Á að einangra landið? Ef ekki, hver er þá lausnin?" Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, gagnrýnir stjórnmálaflokkana á Alþingi sem leggjast gegn aðild að ESB harðlega fyrir að vera ekki búna útskýra fyrir almenningi hvernig eigi að tryggja pólitíska og efnahagslega hagsmuni Íslands í alþjóðasamfélaginu til lengri tíma, ef það felist ekki í aðild að Evrópusambandinu. 14.7.2012 10:04
Gufubað í Nauthólsvík Til stendur að opna gufubað fyrir gesti ylstrandarinnar í Nauthólsvík og þá sem nýta sér aðstöðuna þar til sjósunds, en frá þessu er greint á forsíðu Reykjavíkur Vikublaðs í dag. Víða erlendis þekkjast slík gufuböð nálægt baðstöðum í sjó, en til þessa hafa sjósundgarpar í Nauthólsvíkinni getað nýtt sér heitar sturtur og pott í víkinni. Ekki liggur fyrir hvenær gufubaðið opnar en framkvæmdir standa yfir. 14.7.2012 10:00
Ógnaði sjúkraliði og lögreglu Maður ógnaði sjúkraflutningamönnum og lögreglumönnum í nótt. Tilkynning barst um að maðurinn hefði dottið en þegar lögreglan og sjúkralið kom á staðinn reyndist hann vera ómeiddur. Hann var aftur á móti mjög ölvaður eða í mikilli vímu og neitaði að gefa upp persónuupplýsingar. Þá var hann með ógnandi tilburði eins og fyrr segir. Maðurinn var handtekinn og vistaður í fangageymslu þangað til að víman verður runnin af honum 14.7.2012 08:07
Alvarlegt slys við Selfoss Alvarlegt slys varð í umdæmi lögreglunnar á Selfossi rétt í þessu. Ekki liggja fyrir nánari upplýsingar á þessu stigi málsins. 14.7.2012 15:02
Skoða hvort afnema eigi þagnarskyldu hjá ríkinu Skoðað verður hvort létta eigi þagnarskyldu opinberra starfsmanna og tryggja betur vernd heimildarmanna. Þetta er á meðal þeirra atriða sem stýrihópur mennta- og menningarmálaráðherra hefur til athugunar, en hann skoðar breytingar á lagaumhverfi til að tryggja betur tjáningar- og upplýsingafrelsi. 14.7.2012 09:00
Sefur rótt þótt Ármann sé hissa Guðríður Arnardóttir, oddviti Samfylkingarinnar, gagnrýndi í bæjarráði Kópavogs á fimmtudag að ekki væri staðið við ákvörðun fyrri meirihluta í bænum um hækkun á framlögum til foreldra barna hjá dagforeldrum. 14.7.2012 08:00
Stukku til þegar þeir sáu hús nágrannans brenna Stundum heyrum við látlausar fréttir um bruna í einbýlishúsum og hvernig slökkviliðinu hafi tekist greiðlega að slökkva eldinn. Stundum vantar þó dramatískan kafla í slíkar fréttir þar sem nágrannar leggja líf og limi að veði. Þetta var reyndin þegar eldur kom upp í tveggja hæða íbúðarhúsi í Selbrekku í Kópavogi aðfaranótt 6. júlí síðastliðinn. Þegar slökkviliðið kom að höfðu þeir Erlingur Snær Erlingsson og Jón Gunnar Kristinsson þegar ráðið niðurlögum eldsins. 14.7.2012 08:00
Leiti tilboða í óskilakettina Kattavinafélag Íslands vill gera samkomulag við Kópavogsbæ varðandi óskilaketti í bænum. Á fundi bæjarráðs á fimmtudag lagði Ómar Stefánsson, fulltrúi Framsóknarflokks, hins vegar til að leitað yrði tilboða víðar en frá Kattavinafélaginu vegna geymslu, aflífunar og eyðingu óskilakatta. Bæjarráð vísar erindi Kattavinafélagsins til úrvinnslu hjá Heilbrigðiseftirliti Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis og óskaði jafnframt eftir því að heilbrigðiseftirlitið setti reglur um gjaldtöku vegna handsömunar og geymslu óskilakatta. - gar 14.7.2012 07:00
Minjar hverfa í greipar Ægis Brýnt er að auka fjárframlög til fornleifarannsókna svo bjarga megi menjum sem greipar Ægis eru að hrifsa til sín víða um land, segir Ragnheiður Traustadóttir fornleifafræðingur. 14.7.2012 06:00
Leyfið skal háð umhverfismati Umhverfisráðherra hefur úrskurðað að fyrirhugað laxeldi Arnarlax, sem nýverið fékk rekstrarleyfi fyrir 3.000 tonna laxeldi í Arnarfirði, sé háð umhverfismati. Í apríl í fyrra hafði Skipulagsstofnun hins vegar ákveðið að laxeldið væri ekki bundið slíku mati. Fjarðarlax, sem einnig er með laxeldi í Arnarfirði, kærði þá ákvörðun Skipulagsstofnunar þar sem Fjarðarlaxmenn töldu að fyrirhugað laxeldi Arnarlax gæti haft sammögnunaráhrif, það er að segja verið ögrun við uppvöxt annarra laxa í firðinum.- jse 14.7.2012 06:00
Mestu fjöldamorðin frá upphafi átaka Uppreisnarmenn í Sýrlandi segja að stjórnarherinn hafi drepið á þriðja hundrað manns í bænum Tremseh í Hama-héraði í Sýrlandi á fimmtudag. Ef rétt reynist var gærdagurinn því einn sá blóðugasti í borgarastyrjöldinni í landinu. 14.7.2012 06:00
Hugðist myrða Barack Obama Dómstóll í Alabama dæmdi í gær Ulugbek Kodirov, 22 ára úsbeka, í rúmlega fimmtán ára fangelsi fyrir að skipuleggja tilræði við Barack Obama Bandaríkjaforseta. Kodirov hóf að undirbúa tilræðið eftir að hann komst í samband við úsbesk hryðjuverkasamtök á netinu. Af því varð aldrei því að hann var handtekinn þegar hann reyndi að kaupa vopn af leynilögreglumanni. 14.7.2012 04:00
Grassláttur fyrir 174 milljónir lGrassláttur gengur samkvæmt áætlun í Reykjavík að því er segir í tilkynningu frá borginni. „Þessa dagana er verið að fara aðra umferð af þremur yfir svæði við umferðargötur og önnur sláttutæk opin svæði. 14.7.2012 04:00
Borgin kaupi Perluna og sýni náttúruminjar Borgarráð Reykjavíkur hefur óskað eftir viðræðum við mennta- og menningarmálaráðuneytið um uppsetningu náttúruminjasýningar í Perlunni. Forsendan fyrir því er að borgin kaupi Perluna af Orkuveitunni og leigi ríkinu aðstöðu til sýningar í að minnsta kosti 10 ár. 14.7.2012 04:00
Áform um kalkþörungavinnslu Kalkþörungafyrirtækin Celtic Sea Minerals og Kalkþörungafélagið, sem nú þegar reka kalkþörungaverksmiðju á Bíldudal, hafa uppi áform um að starfrækja aðra slíka verksmiðju á norðanverðum Vestfjörðum. 14.7.2012 02:00
Óttast ekki að tannlæknar verði óþarfir Sigurður Benediktsson, formaður Tannlæknafélags Íslands, segir að nýtt efnasamband sem gæti leitt til þess að tannskemmdir heyri sögunni til í náinni framtíð sé mjög spennandi. Vísir sagði frá efninu í gær. Sigurður sagðist í samtali við Reykjavík síðdegis ekki hafa kynnt sér efnið að öðru leyti en því sem hann hefur lesið á Netinu. Það eru tannlæknar í Chile sem hafa hannað þetta efnasamband. 13.7.2012 19:24
Breiðholtshrottar í fjögurra vikna gæsluvarðhald Gæsluvarðhald yfir mönnum sem grunaðir eru um að hafa ráðist inn á heimili manns í Breiðholti aðfararnótt föstudags í síðustu viku hefur verið framlengt um fjórar vikur. Mennirnir sviptu manninn, sem er á sjötugsaldri, frelsi sínu og neyddu hann með ofbeldi og hótunum til að millifæra af bankareikningi sínum inn á reikning sem þeir gáfu upp. Þá stálu þeir munum úr íbúðinni. Þeir héldu honum í sex klukkutíma á heimili hans og það var ekki fyrr en að samstarfsfólk mannsins var farið að óttast um hann og fór heim til hans að árásarmennirnir fóru af vettvangi. 13.7.2012 16:24