Íslenski tuktuk-inn klikkaði á fyrsta degi BBI skrifar 14. júlí 2012 15:30 Menn á gulum farartækjum taka höndum saman og slökkva eld í rafgeymi. Mynd/Elísabet Björnsdóttir
Íslenski tuktuk-inn sem þakinn er auglýsingum frá Nova gafst upp í brekkunni á neðsta hluta Hverfisgötu á fyrsta deginum sem hann eyðir á götum borgarinnar. „Tæknin var eitthvað að stríða okkur," segir Glúmur Baldvinsson, sem ætlar að bjóða Reykvíkingum upp á nýjan ferðamáta í sumar sem venjulega gengur undir nafninu tuk-tuk. Það eru nokkurs konar þriggja hjóla, yfirbyggðar skellinöðrur. Í dag fór fyrsti tuktuk-inn út á götur borgarinnar en hann átti enga draumabyrjun. Ekki vildi betur til en svo að eldur kom upp í rafgeymi hjólsins á leið upp Hverfisgötuna. Bílstjóri á strætisvagni sem átti leið hjá brá skjótt við og slökkti eldinn með slökkvitæki. Hann fann eflaust samkennd með þessu litla, samlita farartæki, en tuktuk-inn er gulur að lit rétt eins og strætóinn. Að sögn Glúms var ekki um alvarlega bilun að ræða. „Einhver virðist hafa tengt einhverja víra vitlaust þarna," segir hann. Rétt er að taka fram að þó bíllinn sé þakinn auglýsingum frá Nova kemur Nova hvergi nálægt rekstri farartækisins, fyrirtækið Tuk-tuk Iceland rekur þjónustuna. Þrír tuktuk-ar munu bruna um götur borgarinnar í sumar og flytja fólk milli staða. Gert er ráð fyrir því að þjónustan verði ókeypis fyrsta sumarið. Hjólin eru rafmagnsknúin og því grænn fararkostur. Ef vel gengur stefnir Glúmur á að stækka við sig.
Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Fleiri fréttir Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Sjá meira