Fleiri fréttir

Verulegt tjón við fiskeldisstöðina

Klukkan 13:21 kom upp eldur í útihúsi við fiskeldisstöð í Ólafsfirði. Slökkvilið, lögregla og björgunaraðilar eru að störfum á vettvangi og er ljóst að tjón er verulegt. Frekari upplýsingar liggja ekki fyrir að svo stöddu en lögreglan vinnur að rannsókn málsins.

Heimildarmynd um leiðtogann sýnd í NK

Heimildarmynd um Kim Jong-un, nýjan leiðtoga Norður Kóreu (NK), var sýnd í landinu í dag. Tilefnið var afmæli hins nýja leiðtoga. Í myndinni er Kim Jong-un í hlutverki hins mikla herleiðtoga, keyrir um á skriðdreka, heilsar hersveitum og stýrir æfingum. Hin geysiöfluga áróðursmaskína landsins virðist því þegar byrjuð að hefja ímynd hins nýja leiðtoga til skýjanna, en samfélagið byggir á mikilli leiðtogadýrkun. Eftir að Kim Jong-il, faðir Kim Jong-un, féll frá myndaðist ákveðið tómarúm í hugum almennings. Fjölmiðlar sem handgengnir eru stjórnvöldum landsins reyna nú augljóslega að breiða úr leiðtoganum unga í það tómarúm.

Markmaður sakaður um mansal

Markmaður frá Mexikó hefur verið handtekinn vegna meintrar hlutdeildar í mansalshring. Markmaðurinn Omar "el gato" Ortiz er sakaður um að vinna með hóp sem hefur staða fyrir 20 mannránum. Hann er sakaður um að hafa valið fórnarlömb hópsins.

Eldsvoði á Ólafsfirði

Eldur kom upp í húsnæði í Ólafsfirði um klukkan hálf tvö í dag. Fréttir hafa borist af því að fiskeldisstöðin í Hlíð standi þar í ljósum logum. Það hefur ekki fengist staðfest. Lögreglan á Akureyri getur ekki gefið upplýsingar um málið að svo stöddu.

Vangaveltur um öryggi risaflugvéla

Austurískir verkfræðingar efast um öryggi stærstu flugvéla heims, Airbus A380. Þeir hafa lagt til að þessir risar háloftanna verði teknir úr umferð meðan fram fer rannsókn á sprungum sem hafa myndast á vængjum nokkurra vélanna. Framleiðandi vélanna heldur því fram að sprungurnar hafi ekki í för með sér neina hættu. Í yfirlýsingu sem gefin var út vegna málsins segir "Það er rétt að fundist hafa litlar sprungur á klæðningu um burðarvirkið í vængnum. Við höfum fundið orsök þessa." Fram kemur að þeir muni laga gallann í vélunum. Loks er tekið fram að öryggi vélanna er ekkert skert vegna sprungnanna.

Yfirheyrður vegna dauðsfalla á spítala

Hjúkrunarfræðingur í Bretlandi er grunaður um að hafa myrt þrjá og skaðað átján sjúklinga þar sem hann gaf sjúklingum eitraða saltlausn. Verið er að yfirheyra hjúkrunarfræðinginn sem heitir Victorino Chua og er fjörutíu og sex ára gamall. Hann var handtekinn á fimmtudag eftir að farið var að rannsaka fjórða dauðsfallið á Stepping Hill spítalanum í Manchester.

Bretar fjarlægja sílíkonpúðana endurgjaldslaust

Bretar hafa ákveðið að bjóða konum sem hafa fengið PIP sílíkonpúða grædda í sig þar í landi endurgjaldslausa aðgerð þar sem þeir eru fjarlægðir. Heilbrigðissvið landsins (NHS) mun greiða fyrir aðgerðirnar. Konum sem gengust undir aðgerðir á opinberum skurðstofum verður boðið upp á einstaklingsmiðað viðtal við sérfræðing þar sem farið verður yfir stöðuna hjá hverjum og einum. Í framhaldinu verður ákveðið hvort rétt sé að fjarlægja púðana í hverju tilfelli. Verði það niðurstaðan mun hið opinbera greiða aðgerðirnar.

Samræmd sjúkraskrá nauðsynleg

Velferðaráðherra telur nauðsynlegt að gögn frá sérgreinalæknum og þeim sem framkvæma aðgerðir án þátttöku ríksins verði hluti af samræmdri sjúkraskrá. Ef slík skrá væri til þá hefði hún getað hjálpað til að grípa inn í í PIP sílikonpúðamálinu. Síðastliðið haust var kynnt skýrsla sem velferðaráðherra lét vinna um skipulag heilbrigðiskerfisins hér á landi. Það var Boston Consulting Group sem vann skýrsluna. Ein af niðurstöðum skýrslunnar er að verulega skorti á rafræn skráningarkerfi hér á landi og nákvæmar tölulegar upplýsingar úr heilbrigðiskerfinu. Mikilvægt sé að tekin verði í notkun samræmd rafræn sjúkraskrá fyrir allt landi. Slíkt er ekki til staðar hér á landi eins og staðan er núna.

Óvissa um ferðir Herjólfs

Vegna slæmrar ölduspár fyrir mánudag og þriðjudag er hugsanlegt að fella þurfi niður einhverjar eða allar ferðir Herjólfs til Þorlákshafnar þessa daga, en spáð er vel yfir tíu metra ölduhæð næstu daga. Í tilkynningu frá Eimskipum eru farþegar beðnir um að fylgjast með fréttum á herjolfur.is, á Facebook eða síðu 415 í Textavarpi.

Arababandalagið fundar um Sýrland

Fulltrúar Arababandalagsins eiga að koma saman til fundar í Karíó í Egyptalandi í dag. Á fundinum verður ferð eftirlitsfulltrúa bandalagsins til Sýrlands rædd og viðbrögð við stigmagnandi ólgu í landinu. Talið er að á fjórða þúsund manns hafi látið lífið, síðan að mótmæli hófust í landinu, í mars á síðasta ári. Arababandlagið skoðar til hvaða refisaðgerða grípa á til en til greina kemur að beita viðskiptaþvingunum og ferðabanni.

Gætum verið rík eins og Norðmenn

Guðmundur Steingrímsson telur um helming þingmanna reiðubúinn að afhenda auðlindir þjóðarinnar á kostnaðarverði í þágu staðbundinnar atvinnuuppbyggingar eða markmiða. Svo er hinn helmingurinn sem vill reyna að fá hámarksarð fyrir þær. "Og um þetta er mikið deilt á þingi," segir Guðmundur. "Fólk verður að fara að upplifa þetta debat." Í þessu samhengi telur hann slæmt að fólk sjái engan mun á stjórnmálaflokkum. Guðmundur Steingrímsson og Lilja Mósesdóttir voru gestir Sigurjóns M Egilssonar í útvarpsþættinum Sprengisandi á Bylgjunni í morgun. Þar ræddu þau nýstofnuð stjórnmálaöfl sín.

Látin kona á landareign drottningar

Lögreglan í Englandi óskaði á föstudag eftir aðstoð almennings við að bera kennsl á konu sem fannst látin á landareign drottningarinnar við Sandringham setrið í Norfolk á sunnudaginn síðasta. Í upphafi var ekkert vitað um konunna eða ástæður þess að hún fannst þarna látin, en á föstudag sagðist lögreglan nú telja að það afar ólíklegt að konan hafi látist af eðlilegum orsökum. krufning hefur leitt í ljós að konan hafi legið látinn á landareignnninni í einn til fjóra mánuði. Elísabet drottning eyðir jafnan jólunum á Sandringham landareignninni, en hún fjölskylda hennar koma þangað ekki fyrr en um miðjan desember og fara í lok nóvember. Þau er ekki grunuð um aðild að málinu.

Flutningaskipið Rena brotnað í tvennt

Óttast er að olía geti ógnað lífríki við Nýja-Sjáland eftir að flutningaskip, sem strandaði þar fyrir þremur mánuðum, brotnaði í tvennt og olía losnaði úr skipinu. Skipið brotnaði síðastliðna nótt í vonskuveðri þegar 6 metra öldur skullu á því. Strand flutningaskipsins Rena er eitt stærsta og alvarlegasta umhverfisslys sem orðið hefur á Nýja-Sjálandi. Strax eftir slysið fyllti olía strendur landsins.

Segja bandaríska hermenn hafa pyntað fanga

Afganskir rannsóknaraðilar hafa komist að þeirri niðurstöðu í nýrri skýrslu að bandarískir hermenn hafi pyntað fanga í einu stærsta fangelsi landsins. Talsmaður rannsóknarnefndarinnar segir að mönnum hafi verið haldið án sönnunargagna, þeir barðir, látnir undirgangast niðurlægjandi líkamsleitir og látnir hýrast í fangaklefum í miklum kulda. Talsmenn bandaríkjahers segjast taka þessar ásakanir alvarlega og ætla að rannsaka þær. Fangelsið sem um ræðir er skammt frá aðaflugvellinum við Kabúl en Bandaríkjamenn höfðu áður lofað því að láta stjórn þess í hendur heimamanna í byrjun þessa árs.

Slæmt ferðaveður

Vegagerðin vekur athygli á því að mjög varasamt getur verið að vera á ferðinni þegar saman fer hvass vindur og svell á vegum. Fólki í ferðahug er bent á að hringja í upplýsingasíma Vegagerðarinnar til að afla upplýsinga um færð á leiðinni. Færðin getur breyst hratt í þessum aðstæðum. Vegagerðin hefur helst áhyggjur af Hellisheiðinni, en þar er flughálka og óveður. Auk þess er hálka eða flughálka á flestum vegum um allt land og í rauninni lítið ferðaveður eins og stendur. Vegfarendur eru beðnir um að fylgjast vel með breytingum á færð á heimasíðu vegagerðarinnar vegagerdin.is eða í síma 1777. Loks er minnt á að víða er ekki mokstur eða þjónusta á vegum á kvöldin og nóttunni, og jafnvel einhverjir vegir sem eru aðeins í þjónustu fáa daga í viku.

Eldur í blaðagámi tvær nætur í röð

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út undir morgun til að slökkva í blaðagámi við sundlaug Vesturbæjar. Þetta er önnur nóttin í röð sem kveikt er í honum. Vakt maður slökkviliðsins telur þessa brennugleði tengda flugeldum og áramótum. Slökkviliðið sendi dælubíl á vettvang sem slökkti eldinn án vandkvæða.

Róleg nótt hjá lögreglu

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu átti fremur rólega vakt í nótt samkvæmt varðstjóra. Ein líkamsárás var skráð í kjölfar fertugsafmælis þar sem ölvun fór úr böndunum en engin meiðsl urðu á fólki. Þá var önnur minniháttar íkamsárás tilkynnt hjá lögreglunni í vesturbæ en engar nánari upplýsingar fengust um hana. Tveir voru teknir grunaðir um ölvun við akstur og einn grunaður um fíkniefnaakstur auk þess að vera réttindalaus. Þá gistu fjórir fangageymslu lögreglu. Tveir fengu gistingu þar sem þeir voru ofurölvi og húsnæðislausir, einn vegna þess að hann neitaði að greiða reikning á veitingastaðnum Asía í miðborginni og einn gistir fangageymslu vegna heimilsofbeldis. Þá komu upp tvö minniháttar fíkniefnamál.

Minna um hálkuslys

Þrír komu með beinbrot slysavarðstofu á Landspítalanum eftir að hafa runnið í hálku í nótt. Það eru mun færri en komu aðfaranótt laugardagsins að sögn Guðrúnar Eiríksdóttur, kandidats á Landspítalanum. Guðrún segir fyrri nóttina hafa verið óðs manns æði, en þá komu um tíu manns á spítalann með brotin bein eftir hálkuslys. Fólk virðist því hafa varkárara í nótt sem leið eða bara sleppt því að fara út yfir höfuð, enda leiðinlegt veður.

Ekkert mál að bjarga Nasa

Páll Óskar Hjálmtýsson tónlistarmaður segir það einfalda lausn að Reykjavíkurborg leigi húsnæði skemmtistaðarins NASA af eiganda þess til að viðhalda mikilvægri tónleikastarfsemi þar. Hann mun hlekkja sig við vinnuvélarnar ef þær koma til að rífa húsið. Eiganda skemmtistaðarins NASA við Austurvöll var tilkynnt í gær að hún þyrfti að hætta starfsemi í húsinu fyrsta júní næstkomandi þar sem eigandi hússins ætlar að rífa það og byggja hótel í staðinn. Húsið er einungis friðað að litlu leyti og því hægt að rífa staðinn þar sem nú er tónleikasalurinn er í dag og halda framhlið hússins óbreyttri.

15.000 manns veðurtepptir í Austurríki

Það eru fleiri en Íslendingar sem glíma við óvenjulegt fannfergi um þessar mundir, því íbúar Austurríkis eiga nú við mikil snjóþyngsl að stríða. Um 15.000 ferðamenn voru í gær veðurtepptir í skíðabrekkum landsins. Yfir 1 metra snjólag lá yfir landinu á fimmtudag. Snjórinn hefur valdið ringulreið á stórum hluta landsins og yfirvöld segja hættuna á snjóflóðum gífurlega.

Lýtalæknirinn mögulega skaðabótaskyldur

Ábyrgð lýtalæknisins er mun meiri þar sem hann flutti púðana inn sjálfur, að mati talsmanns neytenda. Hann telur að konur sem fengu grædda í sig PIP púða hér á landi geti átt rétt á skaðabótum. Þrjátíu íslenskar konur með gallaða sílikonpúða frá franska framleiðandanum PIP hafa fengið lögfræðing til að undirbúa málsókn á hendur lýtalækni sínum, Jens Kjartanssyni. Konurnar krefjast þess að fá púðana fjarlægða sér að kostnaðarlausu.

"Flugið verður fyrir þá ríku“

Einungis þeir efnameiri munu geta nýtt sér flugþjónustu innanlands þar sem opinber gjöld af hverjum flugmiða hafa meira en tvöfaldast á síðustu þremur árum. Þetta segir Framkvæmdastjóri Flugfélags Íslands. Í vikunni voru tilkynntar gífurlegar hækkanir á innanlandsflugi. Til dæmis munu lendingargjöld á Reykjavíkurflugvelli hækka um 72 prósent, farþegagjöld um 71 prósent og flugleiðsögugjald um 22 prósent. Samtals munu þessar hækkanir þýða yfir 100 milljóna kostnaðaraukningu fyrir Flugfélag Íslands á þessu ári. Til stendur að hækka þessi gjöld aftur eftir ár og sér Flugfélagið fram á 150 milljóna hækkun þá.

Mikið um hálkuslys

Asahláka hélt áfram að hrella borgarbúa í nótt og í dag. Fullt var út úr dyrum á bráðamóttöku landspítalans í nótt vegna hálkuslysa og mannbroddar ruku út eins og heitar lummur. Asahláka hefur valdið miklum usla á höfuðborgarsvæðinu undanfarna sólarhringa eftir að snjórinn fór að bráðna í burtu og skildi eftir flughált íslag sem margir eiga erfitt með að fóta sig í. Þannig þurftu fjölmargir að leita á slysadeild landspítalans en læknir þar segir marga verða óstöðugri þegar þeir eru að skemmta sér í miðbænum.

Þykkasta atvinnublað síðustu ára

Sérfræðingar vinnumiðlana eru sammála um að árið fari af stað með meiri krafti á vinnumarkaði en sést hefur frá hruni. Til marks um það gaf Fréttablaðið út þykkasta atvinnublað sem prentað hefur verið í meira en þrjú ár. Það sem blasti við lesendum dagblaðanna í morgun var meira í ætt við uppflettirit en auglýsingabækling. Byggingavöruverslunin Bauhaus auglýsir eftir starfsfólki í tugi starfa og atvinnublaðið í miðju Fréttablaðsins er það stærsta sem komið hefur út eftir hrun bankanna. Blaðið er 32 síður í dag, sem er öllu lengra en þunnildin sem prentuð voru fyrir þremur árum. Og það er kannski táknræknt að fremst í blaðinu er auglýst eftir sérfræðingi í ráðningum.

Fimmfaldur pottur næstu helgi

Enginn hreppti fyrsta vinning í Lottóinu í kvöld sem hljóðaði upp á tæpar 30 milljónir. Því verður potturinn fimmfaldur næst. Vinningstölurnar voru 3 17 19 23 36 og bónustalan var 31. Tveir voru með fjórar tölur réttar auk bónustölu. Þeir hljóta 194.000 í vinning.

Lýðræðinu reistar skorður

Viktor Orban, forsætisráðherra Ungverjalands, hefur verið stórtækur í breytingum á stjórnarskrá og öðrum mikilvægum lögum. Allt til að tryggja sjálfum sér og flokki sínum lítt takmörkuð völd til frambúðar, segja gagnrýnendur. Guðsteinn Bjarnason skoðar afrek Orbans, sem fyrir tuttugu árum var í fararbroddi lýðræðisbyltingar gegn þáverandi kommúnistastjórn landsins.

Forsendur stjórnvalda um Vaðlaheiðargöng óraunhæfar

Pálmi Kristinsson, verkfræðingur hefur tekið saman skýrslu um Vaðlaheiðargöng. Þar byggir hann á eigin útreikningum og athugunum á kostnaðarþáttum, tekjuþáttum og fjármögnun ríkisins auk þess sem stuðst er við fyrirliggjandi forsendum stjórnvalda. Meginniðurstöður skýrslunnar eru að innheimta veggjalda muni ekki ná að standa undir öllum kostnaði við Vaðlaheiðargöng. Einnig býst hann við að endanlegur kostnaður við göngin verði hærri en gert er ráð fyrir.

Tjörnin neon-lýst fyrir börnin - myndaalbúm

Hátt á fimmta hundrað manns mættu við tjörnina til að mynda heillakeðju og vekja athygli á réttindum barna. Hersingin gekk með neon-ljós hringinn í kringum tjörnina og að göngu lokinni fengu allir heitt kakó frá Iðnó og stjörnuljós frá Landsbjörg. Meðfylgjandi myndir voru teknar við tjörnina í dag. Markmiðið var að safna saman nægu fólki til að mynda órofna keðju hringinn kringum tjörnina. Markmiðið náðist ekki alveg. Eins og sagt var frá fyrr í dag markaði atburðurinn upphaf samvinnuverkefnis Barnaheilla og tólf íslenskra fyrirtækja. Markmið samstarfsins er að safna peningum sem varið verður börnum í hag og vekja athygli á réttindum barna.

Vilja afsökunarbeiðni vegna skaupsins

Norræna félagið í Hveragerði mæltist í dag til þess að Páll Magnússon bæðist afsökunar á brandara úr áramótaskaupinu þar sem fjöldamorðin í Noregi voru höfð í flimtingum. Þetta kom fram í yfirlýsingu sem birtist á vefsíðu Fréttablaðs Suðurlands. Yfirlýsingin í heild hljóðaði svona: "Norræna félagið í Hveragerði harmar að í áramótaskaupi Ríkisútvarpsins skuli fjöldamorðin í Noregi í sumar sem leið, hafa verið flokkuð sem tilefni spaugsyrða. Mælist félagið til þess að útvarpsstjóri biðjist opinberlega afsökunar á þessu atviki, ekki aðeins Norðmanna vegna, heldur einnig fyrir sakir sjálfsvirðingar Íslendinga. F.h. félagsins, Kristbjörg Erla Hreinsdóttir."

Snjóhreinsun enn á fullu

Starfsmenn Reykjavíkurborgar hafa unnið að snjóhreinsun á um tíu tækjum í allan dag. Unnið var að söltun og söndun göngustíga. Á morgun verður að öllum líkindum ekki unnið að snjóhreinsun. Starfsmenn verða hins vegar í ráspólunum og tilbúnir í útköll ef hláka myndast. "Ef það kemur einhver asahláka þá tökum við í taumana hvað það varðar," segir Þorsteinn Birgisson, yfirstjórnandi hjá Reykjavíkurborg. Unnið hefur verið að því undanfarið að hreinsa kringum niðurföll og greiða leið affallsvatns af bráðnandi svellbunkanum sem liggur yfir borginni.

Biophilia til New York

Björk tilkynnti í gær að hún myndi fara með Biophilia-sýninguna sína til New York. Hún ætlar sér að halda tíu sýningar í febrúar næstkomandi. Sex sýningar verða haldnar í New York Hall of science, seinni fjórar verða svo haldnar í Roseland Ballroom á Manhattan. Ekki eru fleiri sýningar í bígerð í Bandaríkjunum. Sýningin hefur fengið glimrandi viðtökur frá gagnrýnendum. Í henni teflir Björk fram stúlknakór sem telur 24 stúlkur auk fjölda nýstárlegra hljóðfæra sem hún hannaði sjálf með samstarfsmönnum sínum.

Jólatré liggja úti

Um þessar mundir liggja einmanaleg jólatré eins og hráviði víða um borgina. Síðustu daga hafa jólatrén staðið úti í horni á heimilum fólks og gefið jólahaldi þeirra hátíðlegan blæ. Nú rífa margir af þeim skrautið í hvelli, varpa þeim út í kuldann og hugsa svo ekki meir út í það. Því er rétt að taka fram að sorphirða Reykjavíkur hirðir ekki jólatré í ár. Fólk verður sjálft að sjá um að koma jólatrjám sínum á endurvinnslustöð. Sorpa tekur ekki gjald fyrir. Fyrir hina tímabundnu bjóða ýmsar íþróttahreyfingar upp á þá þjónustu að hirða jólatré að hátíðunum loknum. Skógræktarfélag Reykjavíkur og Gámaþjónustan hafa einnig samstarf um hirðingu jólatrjáa. Slík þjónusta kostar hins vegar alla jafna.

Árekstur á Bústaðarvegi

Árekstur varð á mótum Bústaðarvegar og Efstaleitis um þrjúleytið í dag. Ökumaður sem ætlaði að beygja af bústaðarveginum og upp Efstaleitið ók í veg fyrir annan sem var á leið vestur eftir Bústaðarvegi. Bílarnir skemmdust en farþegar og ökumenn sluppu allir ómeiddir.

30 hæða hótel reist á 15 dögum

Verkamenn í Kína lögðu lokahönd á 30 hæða hótel 31. desember síðastliðinn. Þessi feiknabygging hafði verið reist á 15 dögum. Fullyrt er að þetta muni breyta byggingariðnaðinum til frambúðar á vefsíðunni treehugger.com. Tæknin sem notuð er minnir á leikfangabyggingar fyrir krakka eða jafnvel legó. Byggingunni er "kubbað" saman með fyrirfram gerðum einingum sem eru smíðaðar í verksmiðjum. Meira að segja gólfefnin eru fest á gólfin í verksmiðjunni og hæðunum er síðan raðað hverri ofan á aðra með einföldum hætti.

Yfirlýsing væntanleg frá Jóni Gnarr

Jón Gnarr mun gefa frá sér yfirlýsingu vegna forsetakosninga í næstu viku. Þetta tilkynnti hann í dag á facebook síðu sinni. Þegar hann er spurður neðar á þeim þræði hvort hún verði jákvæð eða neikvæð segir hann "Hún verður góð". Nafn Jóns Gnarr kemur iðulega upp þegar menn velta fyrir sér hver verði eftirmaður Ólafs Ragnars Grímssonar á Bessastöðum. Í könnun sem Vísir gerði meðal lesenda sinna var Jón Gnarr í fimmta sæti sem næsti forseti. Á facebook síðu sinni hefur hann þakkað þann stuðning.

75 daga einangrun ár hvert

Íbúi í Árnesi við Trékyllisvík segist vera algjörlega einangraður í tæplega þrjá mánuði á ári þegar vegagerðin ryður ekki vegarkafla á Vestfjarðakjálkanum. Hann er flughræddur og kann því illa að geta ekki keyrt út fyrir sveitina þegar á þarf að halda. Árneshreppur er ein afskekktasta byggð landsins. Þar búa vel á annan tug fjölskyldna og þar kvíðir fólkið 6. janúar ár hvert. Ástæðan er sú að frá þeirri dagsetningu og næstu 75 daga er vegurinn þangað ekki ruddur, en Árneshreppur er eina sjálfstæða sveitarfélag landsins sem fellur undir svokallaða G-reglu um þjónustustig snjómoksturs, að því er fréttavefurinn strandir.is greinir frá.

Heita áfram Björt framtíð

Hið nýstofnaða stjórnmálaafl Guðmundar Steingrímssonar, Björt framtíð, mun ekki skipta um nafn eftir því sem segir í frétt mbl. "Við ætlum ekki að skipta um nafn og ég óska Nýrri framtíð bjartrar framtíðar," sagði Guðmundur Steingrímsson. Pólitísku samtökin Ný framtíð hafa óskað eftir því að Björt framtíð skipti um nafn til að koma í veg fyrir misskilning.

Listamenn tilbúnir að verja Nasa

Hljómsveitin Agent Fresco sagði á facebook síðu sinni að þeir væru í áfalli eftir þeir heyrðu af áformum um að rífa skemmtistaðinn Nasa. Þeir minna á að hópur listamanna tók sig saman árið 2009 og mómælti sömu ákvörðun. Þar fór Páll Óskar fremstur í flokki en strákarnir í Agent Fresco lögðu sín lóð á vogarskálarnar auk annara. Þeir segjast reiðubúnir að gera það aftur núna. "Ef við getum eitthvað gert til að vekja athygli á þessu munum við gera það. Ekki spurning," segir Arnór Dan Arnarson, söngvari sveitarinnar.

Margir fara flatt í hálkunni

Mikil hálka er nú á götum og gangstéttum borgarinnar og er vegfarendum ráðlagt að fara varlega. Mikill erill var á slysadeild Landspítalans í nótt vegna hálkuslysa og búist við fleirum þegar líður á daginn. Asahlákan fór ekki framhjá borgarbúum í gær en stórir pollar mynduðust á hálfbráðnuðu íslagi sem safnast hefur saman og myndar stórhættulegt svell, þá hafa hjólför myndast í snjólögum og safnast vatn nú þar saman sem getur falið hálkuna.

Versta flugslys Nýja-Sjálands í 30 ár

Loftbelgur hrapaði í dag á Nýja-Sjálandi og olli dauða 11 manna í versta flugslysi landsins í þrjátíu ár. Svo virðist sem kviknað hafi í loftbelgnum áður en hann hrapaði niður nærri Carterton, í um 80 km fjarlægð frá höfuðborginni. Flugmaðurinn og 10 farþegar létust allir. Slysið varð í logni og björtu og fallegu veðri á svæði sem þekkt er fyrir útsýnisferðir í loftbelgum. Flugmaðurinn var þekktur sem einn besti flugmaður svæðisins. Þetta er því mikið áfall fyrir loftbelga-iðnaðinn.

Barnakeðja og neon-ljós við tjörnina

Barnaheill á Íslandi ætla í dag að freista þess að mynda keðju í kringum Reykjavíkurtjörn með aðstoð 1000 barna til að vekja athygli á réttindum barna hér á landi en að sögn samtakanna hefur sjaldan verið brýnna en nú að standa vörð um málefni þeirra. Börn og foreldrar þeirra eru hvött til að taka þátt í þessu framtaki en boðið verður upp á heitt kakó og svo verður kveikt á stjörnuljósum og blysum. Keðjan verður mynduð klukkan fjögur.

Leggjum pinnið á minnið

Hundruðir sölustaða um allt land eru nú komnir með örgjörvaposa þar sem viðskiptavinir þurfa að stimpla inn pin númer til að ljúka greiðslu. Verkefnastjórinn segir breytinguna hafa gengið vel en nú eru þrjú af hverjum fjórum kortum hér á landi komin með örgjörva. Það var í júní í fyrra sem verkefninu pinnið á minnið var hleypt af stokkunum og fyrstu fyrirtækin fóru að nota örgjörvaposa sem gerir fólki kleift að staðfesta viðskipti með pin númeri.

Kenna al-Qaida um sjálfsmorðssprengingu

Yfirvöld á Sýrlandi segja al Qaida standa fyrir sjálfsmorðssprengingu í höfuðborg landsins, Damaskus, í gær. Að sögn létust 11 manns í sprengingunni, 63 særðust. Auk þess hafa 15 afskornir líkamshlutar hafa fundist á svæðinu án þess að eigandi þeirra sé þekktur. Fórnarlömbin voru að mestu leyti óbreyttir borgarar. Árásarmaðurinn sprengdi sprengjubelti sem hann hafði um sig miðjan þar sem hann stóð milli þriggja rútubifreiða. Tveir fætur, hluti af höfði og sundurtætt innyfli var það eina sem eftir var að tilræðismanninum. Þessar leifar voru látnar liggja á götunni fram eftir degi áður en þær voru þrifnar upp og sendar í erfðafræðirannsókn.

Santorum talar gegn hjónabandi samkynhneigðra

Rick Santorum, einn þeirra sem sækist eftir útnefningu Repúblikanaflokksins til forsetaembættis Bandaríkjanna, hefur nú í annað skiptið á tveimur dögum ráðist til atlögu gegn hugmyndinni um hjónaband samkynhneigðra. Þegar hann talaði við nemendur heimavistarskóla í New Hampshire í gær sagði hann að það væri skárra að eiga föður í fangelsi en tvo foreldra af sama kyni. Hann fullyrti jafnframt að hjónaband væri ekki réttur heldur forréttindi, en þrír nemendur sem eiga samkynhneigða foreldra sátu undir ræðu Santorums. Baulað var á hann í háskóla þar sem hann viðraði svipuð viðhorf á fimmtudag. Hann hefur áður tekið sterkt til orða um samkynhneigða og líkti þeim meðal annars við barna- og dýraníðinga í viðtali árið 2003, að því er vefútgáfa bandaríska dagblaðsins Los Angeles Times greinir frá.

Stærsta atvinnublað síðustu ára

Atvinnublaðið í miðju Fréttablaðsins í dag, þar sem fyrirtæki og stofnanir birta auglýsingar eftir starfsfólki, er það langstærsta sem komið hefur út frá því fyrir hrun, að því er segir í blaðinu. Ekki er heldur víst að jafnstórt blað hafi heldur komið út í góðærinu. Blaðið er 32 síður, en haft er eftir umsjónarmönnum blaðsins að það sé til marks um jákvæða þróun í atvinnumálum.

Sjá næstu 50 fréttir