Innlent

Samræmd sjúkraskrá nauðsynleg

Mynd af sílíkonpúða.
Mynd af sílíkonpúða. Mynd/Getty
Velferðaráðherra telur nauðsynlegt að gögn frá sérgreinalæknum og þeim sem framkvæma aðgerðir án þátttöku ríksins verði hluti af samræmdri sjúkraskrá. Ef slík skrá væri til þá hefði hún getað hjálpað til að grípa inn í í PIP sílikonpúðamálinu.

Síðastliðið haust var kynnt skýrsla sem velferðaráðherra lét vinna um skipulag heilbrigðiskerfisins hér á landi. Það var Boston Consulting Group sem vann skýrsluna. Ein af niðurstöðum skýrslunnar er að verulega skorti á rafræn skráningarkerfi hér á landi og nákvæmar tölulegar upplýsingar úr heilbrigðiskerfinu. Mikilvægt sé að tekin verði í notkun samræmd rafræn sjúkraskrá fyrir allt landi. Slíkt er ekki til staðar hér á landi eins og staðan er núna.

Læknar hafa bent á að ef samtengd sjúkraskrá væri til staðar mætti bæta samskipti, forðast tvíverknað og auk þess væri hægt að spara verulegar fjárhæðir. Guðbjartur Hannesson, velferðaráðherra, segir að unnið sé að því að taka slíka skrá í notkun hér á landi. Það verði líklega gert í áföngum og reynt verði að samræma þau kerfi sem þegar eru til staðar.

„Það er alveg klárt að þetta er eitt af forgangsverkefnunum. Það skiptir gríðarlega miklu máli að við séum með samræmda sjúkraskrá. Þar sem hægt er að fylgjast heilstætt með hverjum og einum sjúklingi og lesa og fylgja eftir þeim aðgerðum sem að gerðar eru á viðkomandi eða þeirri þjónustu sem að viðkomandi fær. Þetta skiptir máli upp á lyfin, þetta skiptir máli upp á að ekki sé verið að endurtaka hluti og gera þá aftur og aftur. Þetta er stórt verkefni sem að við klárum ekki á einhverjum vikum," segir Guðbjartur.

Mikil umræða hefur verið hér á landi um gallaða sílikonpúða frá franska framleiðandanum PIP. Fjögur hundruð íslenskar konur eru með slíka púða en gögn um þær eru aðeins hjá lýtalækninum sem framkvæmdi aðgerðirnar. Guðbjartur telur að ef samræmd sjúkraskrá væri til staðar hefði hún nýst í málinu.

„Ef að sérgreinalæknar og allir þeir sem að vinna jafnvel án þess að ríkið kosti þar einhverju til verða með í þessu kerfi, sem að ég tel nauðsynlegt að verði, þá gæti þetta hjálpað til já. Bæði til að grípa inn í eftir á og líka til að fylgjast með hvert umfangið er. Því að það er áhugavert í þessu líka í samanburðafræðum við þjóðirnar í kringum okkur hversu algengar þessar lýtaaðgerðir eru. Þannig það er ýmislegt sem vinnst með því að vera með sameiginlega sjúkraskrá."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×