Fleiri fréttir

Sérstakur ríkissaksóknari vísar frá kæru á hendur blaðamönnum

Settur ríkissaksóknari hefur vísað frá kæru á hendur fimm blaðamönnum fyrir meint brot á lögum um bankaleynd. Um er að ræða blaðamennina Agnesi Bragadóttur og Þorbjörn Þórðarson, blaðamenn á Morgunblaðinu, Kristinn Hrafnsson, sem nú starfar á RÚV, Egill Helgason, pistlahöfundur á Eyjunni, og Guðmundur Magnússon ritstjóri Eyjunnar.

Skókastarinn hefur fengið tilboð um kvennabúr

Íraski fréttamaðurinn sem kastaði skóm sínum í George Bush hefur fengið ótal tilboð um bíla, kvennabúr og önnur jarðnesk gæði þegar honum verður sleppt úr fangelsi.

Umboðsmaður sendir stjórnvöldum pillu vegna ráðningar Einars Karls

Eðlilegt er að laus störf hjá hinu opinbera séu auglýst, enda verði ekki séð að nokkur einstaklingur hafi lögmætt tilkall til slíkra starfa. Þetta segir umboðsmaður Alþingis í nýju áliti sem fjallar um Einar Karl Haraldsson, nýráðinn upplýsingafulltrúa forsætisráðuneytisins.

Mun fleiri fasteignir seldar á nauðungarsölu

Tæplega helmingi fleiri fasteignir hafa verið seldar á nauðungarsölu í Reykjavík það sem af er þessu ári miðað við sama tímabil í fyrra. Búist er við holskeflu uppboða í nóvember þegar lög um frestun á nauðungarsölu renna út.

Halldór hugar að Hafnarfirði

Halldór Halldórsson, bæjarstjóri á Ísarfirði, mun hugsanlega gefa kost á sér til þess að leiða lista sjálfstæðismanna í Hafnarfirði í næstu sveitastjórnarkosningum sem fram fara í vor. Heimildir Vísis herma að Haraldur Ingólfsson sem hefur verið oddviti sjálfstæðismanna í bænum undanfarin misseri hyggist hætta og því þurfi að finna nýjan oddvita á listann fyrir kosningarnar.

Eftirlýst kona handtekin með þýfi

Töluvert af þýfi fannst við húsleit í íbúð í vesturbæ Reykjavíkur fyrir hádegi í gær. Um er að ræða hluti sem var stolið í nokkrum innbrotum á höfuðborgarsvæðinu.

Katrín skipar vinnuhóp vegna fornleifarannsókna á Alþingisreit

Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra, hefur skipað vinnuhóp sem ætlað er að gera tillögur um stefnu að því er varðar fornleifarannsóknir á Alþingisreit og næsta nágrenni og um varðveislu og sýningu á þeim fornleifum sem þegar hafa fundist.

Vistheimili á dagskrá borgarráðs

Svört skýrsla um tvö vistheimili á vegum ríkisins og Heyrnaleysingjaskólann sem kynnt var í gær er á dagskrá fundar borgarráðs á morgun. Þetta sagði Magnús Gylfason, aðstoðarmaður borgarstjóra, í samtali við fréttastofu.

Fleiri vilja styttu en mótmæltu Icesave

Fleiri vilja reisa minnisverða um Helga Hóseasson en skoruðu á forseta Íslands á samskiptavefnum Facebook að skrifa ekki undir eitt umdeildasta mál síðari ára, ríkisábyrgð vegna Icesave reikninga Landsbankans.

Milljónatjón þegar vinnuvélar voru skemmdar við Nauthólsvík

Milljónatjón varð þegar miklar skemmdir voru unnar á um 20 vinnuvélum á svæðinu þar sem Háskólinn í Reykjavík rís við Nauthólsvík í nótt. Skorið var á dekk og vírar og slöngur klipptar í sundur. Samkvæmt heimildum Vísis hefur lögreglan ekki vísbendingar um hver var að verki en alls urðu um 5 verktakafyrirtæki fyrir tjóni.

Sumarið það sjöunda hlýjasta í Reykjavík

Sumarið í sumar er það sjöunda hlýjasta í Reykjavík frá því mælingar hófust árið 1870 og þriðja þurra sumarið í röð. Þetta kemur fram þegar rýnt er í gögn yfir veðurlagið í sumar.

Dagur vill ræða skýrslu vistheimilanefndar í borgarráði

Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingarinnar í borgarstjórn, hefur óskað eftir því að vistheimilisskýrslan svonefnda verði sett á dagskrá borgarráðs. Svört skýrsla um tvö vistheimili á vegum ríkisins og Heyrnaleysingjaskólann var kynnt í gær en hún var unnin eftir að upp komst um illa meðferð á Breiðavík.

Halldór hættir sem bæjarstjóri á Ísafirði

Á fundi í bæjarmálafélagi Sjálfstæðisflokksins í Ísafjarðarbæ í gærkvöldi tilkynnti Halldór Halldórsson bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar og oddviti Sjálfstæðismanna í Ísafjarðarbæ um þá ákvörðun sína að gefa ekki kost á sér sem oddviti og bæjarstjóraefni í næstu sveitarstjórnarkosningum vorið 2010.

Rússar og Úkraínumenn deila á ný um gas

Gasdeila Rússa og Úkraínumanna virðist vera að taka sig upp á nýjan leik en hún var nær búin að valda alvarlegum gasskorti í nokkrum Evrópulöndum þegar sem kaldast var síðasta vetur.

Danskur Bond á 300 km hraða

Lögreglan á Norður-Jótlandi hafði á sunnudag hendur í hári vélhjólamanns sem mældist á hvorki meira né minna en 300 kílómetra hraða á klukkustund.

Bítlunum ætlað að rífa upp söluna

Tónlistar- og tölvuleikjaiðnaðurinn í Bretlandi og Bandaríkjunum reiðir sig nú á gamla félaga til að rífa upp sölutölur á lokafjórðungi ársins, nefnilega Bítlana fornfrægu frá Liverpool.

Segja Bretland á leið út úr kreppunni

Breska hag- og félagsfræðistofnunin lætur í veðri vaka að Bretland sé að sigla út úr kreppunni á ný. Þetta sýni hagvöxtur í maí, júní og júlí.

Gróðurhúsalampar ófundnir

Lögreglan á Selfossi leitar enn þjófa sem brutust inn í gróðrastöð í Biskupstungum í fyrrinótt og stálu þaðan 28 gróðurhúsalömpum, sem notaðir eru til að örva vöxt plantnanna.

Aukafundur í bæjarstjórn Álftaness

Aukafundur verður haldinn í bæjarstjórn Álftaness í kvöld, vegna þrálátra deilna í bæjarstjórninni. Að sögn mbl.is er meirihluti fyrir því meðal bæjarstjórnarfulltrúa, að Sigurður Magnússon bæjarstjóri láti þegar af embætti, en hann er bæjarfulltrúi A- listans.

Síldarkvótinn að klárast

Veiðum úr norsk-íslenska síldarstofninum fer senn að ljúka þar sem skipin eru um það bil að klára kvóta sína. Einhver eru þegar búin, önnur í síðustu veiðiferð og nokkur eiga eitthvað meira eftir.

Rændi 11-11 við Laugaveg

Karlmaður, klæddur svartri hettupeysu, framdi rán í versluninni 11-11 við Laugaveg í Reykjavík á ellefta tímanum í gærkvöldi og komst undan.

Verðtrygging miðist við laun

Verðtryggð húsnæðislán, sem og gengistryggð lán, eru áhættusamningar, sem stjórnvöld hefðu átt að vara almenning við. Þau eru gölluð vara, sem stjórnvöldum ber að endurskoða. Þetta segir Joseph Stiglitz, Nóbelsverðlaunahafi í hagfræði.

Endurskipulagning framhaldsskólanna komin vel á veg

Tveir framhaldsskólar bjóða upp á þriggja ára nám til stúdentsprófs. Um tilraunaverkefni er að ræða og segir menntamálaráðherra, Katrín Jakobsdóttir, að verði reynslan úr því góð gæti þetta leitt til endurskipulagningar á framhaldsskólakerfinu. Skólarnir sjálfir hafi þó sjálfdæmi um hvort þeir taki kerfið upp, reynist það vel.

Óttast niðurskurð á fé til forvarnastarfs

Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra deilir áhyggjum heilbrigðisstarfsfólks um að fé til forvarna kunni að skerðast á næstu misserum. Hann leggur áherslu á að handbært fé verði nýtt af hugkvæmni og árangur forvarnastarfs þurfi ekki að minnka þrátt fyrir lægri fjárframlög.

Lán verði tengd launum frekar en verðlagi

Nóbelsverðlaunahafinn Joseph Stiglitz telur að ríkinu beri að leiðrétta gölluð húsnæðislán fólks, bæði verð- og gengistryggð. Hann vill halda í krónuna, nema ESB komi betur til móts við svæði sem eiga í vanda. Vísitala til grundvallar verðtryggingu skuli byggja á launum hér eftir.

Kærður fyrir að aka snjótroðara á mann

Afar sérstætt líkamsárásarmál hefur verið kært til lögreglunnar á Selfossi. Karlmaður hefur kært annan mann fyrir að aka á sig á snjótroðara uppi á jökli, þannig að meiðsl hlutust af. Meint líkamsárás með snjótroðaranum átti sér stað síðastliðinn föstudag.

Vill sátt um aðhaldsaðgerðir

Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra ætlar að leita eftir þverpólitískri samvinnu um málefni Landhelgisgæslunnar. Hún hyggst setja á fót starfshóp þingmanna stjórnar og stjórnarandstöðu með embættismönnum úr dómsmálaráðuneytinu og frá Landhelgisgæslunni.

Kreppa áfram næstu árin

Ólíklegt er að Ísland komist út úr kreppunni fyrr en eftir nokkur ár, að mati sérfræðinga greiningar Íslandsbanka. Atvinnuleysi á enn eftir að aukast, kaupmáttur mun rýrna meira og húsnæðisverð lækka áður en kreppunni slotar.

Ætlar að sannfæra þingið

Barack Obama flytur í kvöld sjónvarpsávarp til þjóðarinnar um þær breytingar á heilbrigðiskerfi landsins, sem hann hefur í allt sumar reynt að fá þingið til að samþykkja.

Íslenskir dagar í Seattle

„Þetta er dæmi um gríðarlega vel heppnað samstarf stjórnvalda og fyrirtækja í landinu. Einnig er þetta góð fyrirmynd í því efni, því miklu máli skiptir að þessir aðilar séu samstiga,“ segir Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra.

Hver nemandi kostar 1,1 milljón króna

Ísland eyðir hlutfallslega mest allra aðildarríkja Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) til menntamála, að því er fram kemur í nýrri skýrslu sem stofnunin hefur sent frá sér.

Hrúturinn Steinsi rangt kyngreindur

Margir fjárglöggir lesendur Fréttablaðsins höfðu samband í gær til að benda á mistök í texta með forsíðumynd blaðsins. Þeir áttuðu sig á því að á myndinni var ekki gimbur á ferð heldur hrútur. Einnig kom í ljós að hrúturinn var ekki aðeins rangt kyngreindur heldur einnig rangnefndur. Rétt nafn er Steinsi.

Rætt verður við umsækjendur

Starfsmenn menntamálaráðuneytisins munu á næstu dögum ræða við umsækjendur um stöðu þjóðleikhússtjóra. Þeim til aðstoðar verður sérfræðingur í mannauðsmálum. Að því ferli loknu mun ráðherra skipa í stöðuna.

Framfærsla námslána hækkar

Menntamála- og félagsmálaráðuneytin hafa unnið að tillögum um samstarf Atvinnuleysistryggingasjóðs og Lánasjóðs íslenskra námsmanna.

Nær 30 ljósalömpum stolið

Brotist var inn í gróðrarstöðina Espiflöt í Biskupstungum í fyrrinótt. Þeir sem voru þar að verki höfðu með sér 28 ljósalampa, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Selfossi.

MacDonalds tapar fyrir McCurry

Skyndibitakeðjan heimsfræga, MacDonalds, tapaði dómsmáli gegn malasíska skyndibitastaðnum McCurry en forsvarmenn hamborgarastaðarins vildu meina að nafn staðanna væri ólöglega lík.

Byggði Twittandi hús

Verkfræðingurinn og uppfinningamaðurinn Andy Stanford-Clark á heldur einstakt hús. Það notar nefnilega samskiptavefinn Twitter til þess að láta íbúa þess vita ef hann gleymdi að slökkva ljósin eða hvort músagildran hafi veitt mús. Húsið er einstakt þar sem það sendir Andy skilaboð í gegnum Twitter og lætur hann vita um nákvæma orkunotkun hússins og svo framvegis.

Baugur skuldar forsetadóttur

Dóttir Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, Guðrún Tinna, gerði rétt rúmlega 6 milljón króna launakröfu í þrotabú Baugs samkvæmt gögnum sem Vísir hefur undir höndum.

Bótanefnd vegna vistheimila sett á laggirnar

Ákveðið var á ríkisstjórnarfundi í morgun að starfshópi á vegum forsætisráðuneytis verði falið að semja drög að frumvarpi til laga þar sem mælt verði fyrir um greiðslu bóta til þeirra sem hafa orðið fyrir illri meðferð á vistheimilum á vegum ríkisins.

Yfirlýsing frá Félagi heyrnalausra

Félag heyrnarlausra hafa sent frá sér tilkynningu þar sem þeir árétta að það sé mikilvægt að málefni Heyrnaleysingjaskólans hafi verið til lykta leidd.

Móðir stofnar óskabrunn

Móðir 3 ára stúlku sem glímir við sjálfsofnæmi og er föst við öndunarvél hefur stofnað styrktarfélagið Óskabrunn fyrir hana og fjölskyldur langveikra barna sem vilja leita lækninga út fyrir landsteinana en fá ekki greitt frá íslenska kerfinu.

Sjá næstu 50 fréttir