Íslenskir dagar í Seattle 9. september 2009 04:00 samvinna Helgi Már Björgvinsson hjá Icelandair, Svanhildur Konráðsdóttir hjá Reykjavíkurborg, Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra, og Pétur Þ. Óskarsson, formaður stjórnar Iceland Naturally.fréttablaðið/gva „
Þetta er dæmi um gríðarlega vel heppnað samstarf stjórnvalda og fyrirtækja í landinu. Einnig er þetta góð fyrirmynd í því efni, því miklu máli skiptir að þessir aðilar séu samstiga,“ segir Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra. Útflutningsráð, sjávar- og landbúnaðarráðuneytið, Reykjavíkurborg, Icelandair, Icelandic USA Inc., Icelandic Glacial, Reyka Vodka, 66°Norður, Bláa lónið og Fiskifélag Íslands taka beinan þátt í kynningu á Íslandi og íslenskum vörum og þjónustu í Seattle næstu daga. Kynningin, sem ber nafnið A Taste of Iceland, er liður í samkomulaginu Iceland Naturally, sem íslensk stjórnvöld og nokkur íslensk fyrirtæki gerðu fyrst með sér í tengslum við landafundahátíðina vestanhafs árið 2000. Samkomulagið miðar að því að styrkja ímynd Íslands og auka áhuga á íslenskri ferðaþjónustu og vörum. Það var síðast endurnýjað til fimm ára í upphafi ársins. Katrín segir ekkert launungarmál að tilgangurinn sé að sækja tekjur til handa fyrirtækjum á Íslandi í gegnum aukinn ferðamannastraum. „En þetta er líka spurning um ímyndarvinnu fyrir landið. Þetta samspil stjórnvalda og fyrirtækja skiptir mjög miklu máli í því sambandi. Ferðamannastraumurinn frá Norður-Ameríku hefur aukist um sjö prósent það sem af er árinu, og ég er himinlifandi yfir þeim tölum. Það er mikilvægt að halda vöku sinni og alls ekki gefa eftir í þessum efnum,“ segir Katrín, og nefnir sem dæmi að í gær hafi verið samþykkt í ríkisstjórn að farið verði í sérstakt markaðsátak með ferðaþjónustunni. Meðal annars horfi hún mjög til heilsutengdrar ferðaþjónustu. Sérstök herferð, sem miðar að því að markaðssetja slíka þjónustu, verði kynnt í vetur. Pétur Þ. Óskarsson, formaður stjórnar Iceland Naturally, segir lykilatriði að kynningar á vegum verkefnisins veki athygli þarlendra fjölmiðla. „Við erum að feta okkur meira og meira í átt að svona viðburðum, því reynslan hefur sýnt að þeir virka best. Stefnan er að halda þrjá til fimm viðburði yfir háannatímann. Núna er kynning í Seattle, næst er stefnan tekin á Boston, svo Toronto og þar fram eftir götunum. Þegar verkefnið hófst fyrir tíu árum tóku fjögur einkafyrirtæki þátt, en nú eru þau orðin tíu. Í raun má segja að flest fyrirtæki sem eru að skoða Ameríku af fullri alvöru taki þátt í verkefninu,“ segir Pétur. kjartan@frettabladid.is
Mest lesið Maðurinn sem sóttur var í Glerárdal er látinn Innlent Halldór Árni Sveinsson er látinn Innlent Bongóblíða um nánast allt land og rofar til í borginni um stund Veður Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Innlent Atli sagður milliliðurinn í Straumsvíkurmálinu Innlent „Galið að komast að þessari niðurstöðu“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Innlent Krefjast tæps milljarðs af félagi Bergþórs Innlent Fleiri fréttir Kvöldfréttir Sýnar í beinni Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Sveitarfélögin óþreyjufull og krefjast svara frá ráðherrum Fiskibátur varð aflvana við Stykkishólm Vegabréfsgjaldið hækkaði um fimm þúsund milli ára „Galið að komast að þessari niðurstöðu“ Krefjast lögbanns við laxveiðum Iðufólks í Stóru-Laxá Telur bikblæðingu hafa valdið brunanum Fólk eigi að hugsa sig tvisvar um ef því er ekki hleypt inn á heimilið Þyrla Gæslunnar kölluð út á Landmannaleið Segir gríðarlegt álag á miðakaupendum í sumar Vilji til að framlengja ETS sérlausn og hvalveiðar brutu ekki gegn lögum Íslendingur reyndi að smygla milljónum í reiðufé frá Grænlandi Maðurinn sem sóttur var í Glerárdal er látinn Hálftíma dauðastríð ekki talið brot á lögum um velferð dýra Halldór Árni Sveinsson er látinn Atli sagður milliliðurinn í Straumsvíkurmálinu Krefjast tæps milljarðs af félagi Bergþórs Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Þyrla og björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði „Imprað á því að við séum ekki baðhús og verðum aldrei baðhús“ „Ég væri hikandi að hafa börnin mín hjá mér“ Bæjarstjóri í beinni, gusumeistari sem biðlar til yfirvalda og sirkus Vísað á brott af hjúkrunarheimilinu í annarlegu ástandi Allt að fjörutíuföld mengun við skemmtiferðaskip Sjá meira