Endurskipulagning framhaldsskólanna komin vel á veg 9. september 2009 06:00 nemendur Tilraun er í gangi um að bjóða nemendum upp á þriggja ára nám til stúdentsprófs, hvort sem um bekkjarkerfi eða fjölbrautakerfi er að ræða.fréttablaðið/hari
Tveir framhaldsskólar bjóða upp á þriggja ára nám til stúdentsprófs. Um tilraunaverkefni er að ræða og segir menntamálaráðherra, Katrín Jakobsdóttir, að verði reynslan úr því góð gæti þetta leitt til endurskipulagningar á framhaldsskólakerfinu. Skólarnir sjálfir hafi þó sjálfdæmi um hvort þeir taki kerfið upp, reynist það vel. Skólarnir sem um ræðir eru Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ og Kvennaskólinn í Reykjavík. Þeir hafa fengið styrk frá menntamálaráðuneytinu til þessa þróunarverkefnis. katrín jakobsdóttir Ingibjörg S. Guðmundsdóttir, skólameistari Kvennaskólans, segir að innan skólans hafi nám til stúdentsprófs verið skilgreint sem 200 eininga nám. Er þar vísað til nýrra framhaldsskólaeininga, en samkvæmt skilgreiningu í lögum býr þriggja vikna vinna að baki hverri einingu. Samkvæmt lögunum á stúdentspróf að vera 180 til 240 slíkar einingar. Ingibjörg segir að miðað sé við að nemendur taki 60 einingar á ári. Duglegir nemendur geti bætt við einingum og klárað skólann á þremur árum. Þeir sem vilji fara hægar í sakirnar geri það; útskrifist á þremur og hálfu eða fjórum árum. ingibjörg s. guðmunsdóttir Katrín Jakobsdóttir segir að skólarnir hafi sjálfdæmi um hve margar einingar þeir kenni innan ramma laganna. Hún telur að verði reynslan af þróunarverkefninu góð muni það nýtast fleiri skólum og jafnvel framhaldsskólakerfinu öllu. Skólanna sjálfra sé síðan að ákveða hvort þeir bjóði upp á fleiri einingar og hvernig þeir vilji þróast. Áður hafi verið rætt um 180 einingar þegar þriggja ára stúdentspróf var skoðað. Nú sé um fleiri einingar að ræða. Gert er ráð fyrir því að hluti þess náms sem nú er kenndur í framhaldsskólum færist niður í grunnskólana. Katrín segir skólana tvo hafa sýnt frumkvæði að því að taka þátt í þessu þróunarverkefni. Reiknað er með að það standi í þrjú til fjögur ár og síðan verði reynslan af því metin.- kóp
Mest lesið Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Innlent Fækkar lögregluembættum Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Erlent Saksóknarar rannsaka konu sem Trump braut á Erlent Fleiri fréttir Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Stefán Carlsson er látinn Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Gert ráð fyrir atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður í dag Gular viðvaranir og snjókoma næsta sólarhringinn Enn tekist á um ESB í þingsal og verðbólgan hjaðnar lítið Gylfi verður bæjarstjóri á Ísafirði „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Fækkar lögregluembættum Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Sjá meira