Erlent

Rússar og Úkraínumenn deila á ný um gas

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Höfuðstöðvar Gazprom í Moskvu.
Höfuðstöðvar Gazprom í Moskvu.

Gasdeila Rússa og Úkraínumanna virðist vera að taka sig upp á nýjan leik en hún var nær búin að valda alvarlegum gasskorti í nokkrum Evrópulöndum þegar sem kaldast var síðasta vetur. Að þessu sinni snýst málið um að Úkraínumenn fara fram á að Rússar greiði þeim fyrir fram fyrir að flytja gas frá Rússlandi um leiðslur sem liggja yfir Úkraínu. Hjá Gazprom í Moskvu berja menn í borðið og segja slíkt ekki koma til greina. Allt virtist fallið í ljúfa löð þegar Úkraína greiddi Rússum gasreikning í vanskilum en nú gæti dregið til tíðinda á ný.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×