Erlent

Obama varar við upplýsingum á Facebook

Atli Steinn Guðmundsson skrifar

Barack Obama Bandaríkjaforseti varar bandaríska unglinga við því að setja of mikið af persónulegum upplýsingum á samskiptavefinn Facebook. Þetta kom fram í ávarpi sem hann flutti við heimsókn í bandarískan gagnfræðaskóla í gær. Hann sagði vinnuveitendur í æ ríkari mæli nota Facebook til að kynna sér umsækjendur um störf og upplýsingar, sem þar fyndust, gætu hæglega komið í bakið á fólki þótt löngu síðar á ævinni væri. Í júní sýndi könnun fram á að um 45 prósent vinnuveitenda notuðu Facebook til að kynna sér persónulegu hliðina á væntanlegu starfsfólki.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×