Uppsagnir í Japan 230.000 á árinu Atli Steinn Guðmundsson skrifar 9. september 2009 07:37 Japanskir skrifstofumenn á götu.
Atvinnuleysi í Japan mælist nú 5,7 prósent og hefur ekki verið meira síðan í síðari heimsstyrjöldinni. Japanskir vinnuveitendur hafa sagt 230.000 manns upp störfum það sem af er árinu og hefur framleiðslugeirinn orðið einna verst úti, svo sem bifreiðaverksmiðjur. Toyota líður til dæmis fyrir það að stór hluti framleiðslunnar fer að jafnaði á Bandaríkjamarkað þar sem samdráttur í sölu nýrra bíla hefur verið umtalsverður síðan efnahagskreppan skall á. Kamematsu Marimoto er 55 ára gamall, á tvö barnabörn og hefur fyrir sex manna fjölskyldu að sjá. Hann missti vinnuna í vor og hefur verið á atvinnuleysisbótum síðan. Til að fá slíkar bætur í Japan mega menn ekki eiga bíl og neyddist Marimoto til að selja fjölskyldubílinn til að hljóta bætur. Hann notar hvern einasta dag til að leita sér að vinnu en hefur ekki haft erindi sem erfiði. Dæmi eru um að á annað hundrað manns sæki um eina stöðu og hefur umferðin þyngst verulega hjá súpueldhúsum sem bjóða heimilis- og atvinnulausum upp á súpu og ýmsa aðstoð. Félagslega kerfið í Japan er ekki upp á marga fiska og er til dæmis algengt að starfsfólk búi í húsnæði sem vinnuveitandi útvegar. Þetta gerir það að verkum að þegar uppsagnarfresti fólksins lýkur þarf það að rýma húsnæðið og endar á götunni.
Mest lesið „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innlent Fleiri fréttir Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Sjá meira