Hver nemandi kostar 1,1 milljón króna 9. september 2009 03:00 Ekki áhyggjuefni Það er umhugsunarefni en ekki áhyggjuefni að aðeins 39 prósent karla sem hefja háskólanám útskrifist en 89 prósent kvenna, segir Jón Torfi Jónasson.
Ísland eyðir hlutfallslega mest allra aðildarríkja Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) til menntamála, að því er fram kemur í nýrri skýrslu sem stofnunin hefur sent frá sér. Ísland eyddi árið 2006 um átta prósentum af vergri landsframleiðslu til menntamála, en meðaltalið innan OECD var þá 5,7 prósent. Alls fóru 18,1 prósent útgjalda íslenska ríkisins til menntamála árið 2006, en meðaltalið hjá öðrum OECD-ríkjum var um 13,3 prósent. Ísland eyðir hærri upphæð við að mennta hvern einstakling en önnur ríki OECD. Meðalkostnaður á hvern nemanda, frá grunnskóla upp í háskóla, voru árið 2006 um 7.840 bandaríkjadalir, jafnvirði 975 þúsund króna. Á Íslandi kostaði menntun hvers nemanda hins vegar 8.823 dali, sem er að núvirði 1,1 milljón króna. Það er um 12,5 prósent yfir meðaltali OECD. Í skýrslunni kemur einnig fram að mikill munur sé á útskriftarhlutfalli úr háskóla eftir kyni. Tæplega 39 prósent karla sem hefja nám í háskóla útskrifast með háskólagráðu, en tæplega 89 prósent kvenna. Þessi munur er hvergi meiri innan OECD. Jón Torfi Jónasson, forseti menntavísindasviðs Háskóla Íslands, segir þróunina hér í samræmi við það sem sé að gerast erlendis, þótt hlutfallið sé ýktara hér en annars staðar. „Ég myndi ekki segja að þetta sé áhyggjuefni, en þetta er kannski frekar umhugsunarefni,“ segir Jón Torfi. Engin einhlít skýring hefur fengist á þessum mikla mun. Jón Torfi segir að mögulega tengist hann því að konur virði frekar en karlar regluverk samfélagsins, sem geri ákveðnar menntunarkröfur til starfsfólks á ákveðnum sviðum. Þá geti verið að háskólanám liggi betur við fleiri konum en körlum.- bj
Mest lesið Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Innlent Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Innlent Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Erlent Eldur kviknaði við Stálhellu Innlent Ný meðferð gegn sortuæxlum lofar góðu Erlent Bílasali gerður að prinsi eftir faðernispróf Erlent Hver er „mennski prentari“ Trumps? „Þú ert það eina sem skiptir mig máli“ Erlent Ísraelsher viðurkennir að hafa skotið fimm ára stúlku Erlent Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Innlent Fleiri fréttir Ákærði hafði afskipti af vitnisburði í gegnum fjarfundarbúnað Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Kjartan Hreinn aftur aðstoðarmaður Ölmu Tekjulágir borga minna fyrir matinn og borgarfulltrúar meira Hvað ætti ungt fólk að kjósa 29. ágúst? Skóli hefst á ný í Grindavík og þingmenn efast um fullyrðingar Rússa Ókeypis strætó-skutlur á Menningarnótt og tæming frá Sólfarinu Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni „Tengsl Íslands og Eistlands eiga sér sérstaka sögu“ Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Eldur kviknaði við Stálhellu Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sammála því að erfitt haust sé í vændum Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Samþykkti samninginn: „Lágmark að láta fjármagn fylgja“ Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Fjármálaráðherra og vinnumarkaðurinn bregðast við vaxtahækkun SVÞ og netáfengisverslanir skora á Alþingi Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Gæsluvarðhald framlengt yfir meintum Kársnesmorðingjum Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Gæti séð fyrir sér að kjarasamningar haldi Hafi byrlað tólf ára fósturdóttur og nauðgað ítrekað Vilja banna frjáls ferðalög ísraelskra ferðamanna á Íslandi Sjá meira