Innlent

Dagur vill ræða skýrslu vistheimilanefndar í borgarráði

Magnús Már Guðmundsson skrifar
Dagur B. Eggertsson.
Dagur B. Eggertsson. Mynd/Daníel Rúnarsson
Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingarinnar í borgarstjórn, hefur óskað eftir því að vistheimilisskýrslan svonefnda verði sett á dagskrá borgarráðs. Svört skýrsla um tvö vistheimili á vegum ríkisins og Heyrnaleysingjaskólann var kynnt í gær en hún var unnin eftir að upp komst um illa meðferð á Breiðavík.

„Einkum er nauðsynlegt fyrir borgarráð að dregnir verði fram þeir þættir skýrslunnar sem snúa að Reykjavíkurborg, barnaverndaryfirvöldum og hvaða lærdóma þurfi að draga af þeim málum sem í skýrslunni birtast," segir í yfirlýsingu sem hann sendi fjölmiðlum

Dagur segir jafnframt að brýnt sé að skoða hvort tilefni sé til að kanna frekar ástæður eða rök til hugsanlegrar skaðabótaskyldu borgarinnar vegna málsins, afsökunarbeiðni borgaryfirvalda eða aðrar aðgerðir og umbætur.

„Þá verður ekki hjá því vikist að borgarráð taki afstöðu til frekari athugana á málefnum einstaklinga sem vistaðir voru í viðkomandi heimilum," segir Dagur.


Tengdar fréttir

Bótanefnd vegna vistheimila sett á laggirnar

Ákveðið var á ríkisstjórnarfundi í morgun að starfshópi á vegum forsætisráðuneytis verði falið að semja drög að frumvarpi til laga þar sem mælt verði fyrir um greiðslu bóta til þeirra sem hafa orðið fyrir illri meðferð á vistheimilum á vegum ríkisins.

Yfirlýsing frá Félagi heyrnalausra

Félag heyrnarlausra hafa sent frá sér tilkynningu þar sem þeir árétta að það sé mikilvægt að málefni Heyrnaleysingjaskólans hafi verið til lykta leidd.

Svartur kafli í sögu þjóðarinnar

Forsætisráðherra segir fyrstu áfangaskýrslu vistheimilisnefndar sýna svartan kafla í sögu þjóðarinnar. Skýrsla starfshóps um heimili í Kumbaravogi, Skólaheimilinu Bjargi og í Heyrnleysingarskólanum var kynnt á ríkisstjórnarfundi í morgun. Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra ræddi við blaðamenn um skýrsluna eftir fundinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×