Fleiri fréttir

Tugmilljónir dollara í gámum

Mexíkóskir og kólumbískir lögreglumenn hafa í samvinnu við bandaríska starfsbræður sína fundið samtals 41 milljón dollara í reiðufé, falið í nokkrum vöruflutningagámum sem allir voru á leið til Kólumbíu.

Segir Obama marxista

Fyrrum dægurlagasöngvarinn Andy Williams, sem einnig er harður repúblikani, ásakar Barack Obama Bandaríkjaforseta um að fylgja kenningum marxista og vilja koma amerísku þjóðfélagi á kné.

Starbucks eyðileggur samskipti

Starbucks-kaffihúsakeðjan dregur úr samskiptum milli fólks og eyðileggur eðlilegt samfélagslíf. Þetta fullyrðir sagnfræðiprófessor við Temple-háskólann í Fíladelfíu eftir að hafa rannsakað 425 Starbucks-kaffihús í níu löndum.

Minnst 140 látnir og 32 saknað í Manila

Tala látinna í flóðunum í Manila, höfuðborg Filippseyja, er komin upp í 140 en 32 er saknað. Óttast er að dauðsföllum eigi eftir að fjölga en rúmlega 450.000 manns hafa þurft að flýja heimili sín og ferðast fólk og björgunarlið um borgina með bátum af öllum stærðum og gerðum.

Harma afstöðu stjórnarinnar til atvinnusköpunar

Sameiginlegur fundur þingflokks framsóknarmanna og landsstjórnar Framsóknarflokksins, sem lauk í gærkvöldi, harmar að ríkisstjórnin skuli ekki standa heilshugar að baki viðleitni Norðlendinga til atvinnusköpunar.

Leita vopnaðs innbrotsþjófs

Lögreglan í Árnessýslu leitar enn innbrotsþjófs, sem ógnaði öryggisverði með exi, þegar hann kom að þjófnum á innbrotsstað í gróðurhúsi í Hveragerði um miðnæturbil í fyrrinótt.

Feitum hefur fjölgað mikið

Of feitum Íslendingum hefur fjölgað hratt undanfarin sautján ár. Þeir voru um tíu prósent þjóðarinnar árið 1990 en eru um tuttugu prósent í dag. Til að sporna við þessari þróun eru forvarnir besta ráðið og þá er einkar mikilvægt að beina sjónum sínum að börnum og unglingum, segir Stefán Hrafn Jónsson, einn höfunda skýrslunnar Líkamsþyngd og holdafar fullorðinna Íslendinga frá 1990 til 2007, sem kynnt var í gær.

Breytingar kalla á nýja hugsun

Ríkisstjórnin hefur ákveðið að ráðast í viðamiklar breytingar og endurskipulagningu á verkefnum ráðuneyta og stofnana. Markmið þeirra er meðal annars að forgangsraða í ríkisrekstrinum, auka skilvirkni og nýta fjármuni á sem árangursríkastan hátt.

Árásarkonan í Keflavík var allsgáð

Konan sem handtekin var í Keflavík á sunnudag fyrir að stinga fimm ára stúlku í brjóstið hefur játað brotið. Hún var hvorki undir áhrifum áfengis né vímuefna þegar árásin var gerð, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Henni hefur verið gert að gangast undir geðrannsókn.

Skulda þjóðinni afsökunarbeiðni

Björgvin G. Sigurðsson, fyrrverandi viðskiptaráðherra, segist sjá eftir því að hafa ekki gengið miklu harðar fram í því að koma Icesave úr útibúi Landsbankans á Íslandi yfir í erlend dótturfélög.

Fimm með illræmda sýkingu

Á síðustu dögum hafa fimm greinst með sýkingu af völdum E. coli-bakteríunnar illræmdu, samkvæmt upplýsingum landlæknisembættisins.

Skuldavandi heimila er viðráðanlegur

Útfærsla endanlegra aðgerða til að koma til móts við þá sem eiga í mestum skuldavanda er á lokastigi. Er aðgerðunum ætlað að gilda um alla, sama hvar þeir skulda og sama hverrar tegundar lán þeirra eru.

Gróðabrask ástæða skulda í sjávarútvegi

Yfirskuldsetningu sjávarútvegsfyrirtækja má að stórum hluta rekja til annars en reksturs fyrirtækjanna. Nálægt helmingur skulda sjávarútvegsins er til kominn vegna hlutabréfakaupa, afleiðusamninga og skuldsettra yfirtöku fyrirtækja.

Telja tengdason biskups hæfastan

Valnefnd innan Þjóðkirkjunnar mælir með Sigurði Arnarsyni í stöðu sóknarprests í Kársneskirkju í Kópavogi. Sigurður er tengdasonur séra Karls Sigurbjörnssonar biskups.

Halda samt áfram að meta Bakka

stóriðja Rannsóknir á fjárhagslegri hagkvæmni álvers á Bakka halda áfram þó að ríkisstjórnin hafi ákveðið að framlengja ekki sérstaka viljayfirlýsingu þar um.

Yfir tvö hundruð hvalir komu á land

Hvalveiði­vertíðinni er að ljúka en hrefnuveiðimenn stunda enn veiðar frá Vestfjörðum. Rúmlega 200 dýr hafa verið veidd sem er langt frá útgefnum kvóta.

Þrýstihópar og átök á dagskrá

Þrír alþingismenn sitja fund Evrópuráðsþingsins sem nú stendur í Strassborg. Það eru Lilja Mósesdóttir, formaður Íslandsdeildar Evrópuráðsþingsins, Steinunn Valdís Óskarsdóttir og Birkir Jón Jónsson.

Heildareignir 629 milljarðar

Heildareignir Íslandsbanka eru 629,26 milljarðar króna, samkvæmt stofnefnahagsreikningi bankans sem birtur var í gær.

Hækkun á fötum og skóm kemur á óvart

„Verðbólgutölurnar eru í takt við væntingar. En verðhækkanir á fötum og skóm koma okkur á óvart,“ segir Snorri Jakobsson, sérfræðingur hjá IFS Greiningu.

Höfuðstóll niður um fjórðung

Íslandsbanki ætlar að bjóða viðskiptavinum sínum að breyta gengistryggðum húsnæðis­lánum yfir í óverðtryggð lán í íslenskum krónum. Byrjað verður að taka við umsóknum eftir mánuð.

Bæjarstjórn á Álftanesi kynnt

Þrír fulltrúar Sjálf­stæðis­flokks og Margrét Jónsdóttir hafa myndað „starfhæfa bæjarstjórn“, samkvæmt tilkynningu frá þeim í gær.

Íranar sýna hvað þeir geta

Íranski herinn skaut upp í tilraunaskyni flugskeyti af nýrri og fullkominni gerð, sem dregur nógu langt til að bæði Ísrael og bandarískar herstöðvar við Persaflóa eru í skotfæri.

Ungliðahreyfing fagnar ráðningu Davíðs Oddssonar

Ungir Jafnaðarmenn í Hafnarfirði fagna ráðningu Davíðs Oddssonar í starf ritstjóra Morgunblaðsins en ályktun þess efnis var samþykkt á aðalfundi félagsins nú um helgina. Í ályktuninni segir meðal annars að með þessu hafi eigendur Morgunblaðsins fellt niður hálfrar aldar bleika grímu blaðsins.

Framsóknarmenn fagna hugmyndum um skuldaleiðréttingu

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, segir það vera fagnaðarefni ákveði ríkisstjórnin að leiðrétta skuldir heimilanna líkt og greint frá um helgina. Hann eigi þó eftir að sjá hvernig þetta verið útfært.

LSH: Yfirvinna skert og aksturssamningar afnumdir

Hátt í tvö þúsund starfsmenn Landspítala Háskólasjúkrahúss (LSH) hafa á síðustu dögum fengið send bréf þar sem þeim eru kynntar breytingar sem gera á á starfskjörum þeirra. Að sögn Björns Zöega forstjóra spítalans er um að ræða uppsögn á aksturssamningum auk þess sem föst yfirvinna verður lækkuð í 10 prósent af starfshlutfalli.

Drengurinn kominn í leitirnar

16 ára gamall drengur sem lögreglan á Suðurnesjum lýsti eftir í morgun, Ólafur Benedikt Þórarinsson, er kominn í leitirnar. Lögreglan á Suðurnesjum þakkar veitta aðstoð.

Gefur kost á sér sem formaður Ungra jafnaðarmanna

Dagný Ósk Aradóttir Pind, 24 ára meistaranemi í lögfræði við Háskóla Íslands, gefur kost á sér sem formaður Ungra jafnarðarmanna en landsþing hreyfingarinnar sem fer fram í Reykjavík um næstu helgi. Þá lætur Anna Pála Sverrisdóttir af embætti sem formaður en hún gefur ekki kost á sér til áframhaldandi setu.

Ríkisstjórnin með viðamiklar breytingar í burðarliðnum

Ríkisstjórnin hefur ákveðið að ráðast í viðamiklar breytingar og endurskipulagningu á verkefnum ráðuneyta og stofnana. Markmiðið með breytingunum er að nýta fjármuni betur og að forgangsraða í ríkisrekstrinum með nýjum hætti og verja grunnþjónustuna, að fram kemur á vef forsætisráðuneytisins. Landinu verður skipt upp í 5-6 svæði.

Ísland með þriðju bestu heilbrigðisþjónustuna í Evrópu

Ísland hafnaði í þriðja sæti í samanburði gæðaviðmiða í heilbrigðisþjónustu í 33 Evrópuríkjum með 811 stig af 1000 mögulegum. Í úttektinni er gæðaviðmiðum skipt í sex meginsvið sem hafa mestu þýðingu fyrir notendur heilbrigðisþjónustu.

Nýr formaður SUS: Skilur gagnrýnisraddir varðandi leiguflug

Ólafur Örn Nielsen nýkjörinn formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna segist skilja að vissu leyti þær gagnrýnisraddir sem hafa verið uppi um kosningar til formanns sambandsins um helgina. Einungis átta atkvæði skildu að Ólaf og keppinaut hans, Fanneyju Birnu Jónsdóttur. Leiguvél með 50 stuðningsmönnum Ólafs mætti á Ísafjörð á sunnudagsmorgun til þess að taka þátt í kosningunum.

Niðurstöðu að vænta í máli séra Gunnars

Mál séra Gunnars Björnssonar er komið inn á borð Karls Sigurbjörnssonar biskups og er ákvörðunar að vænta. Gunnar hefur verið í leyfi frá störfum sem prestur á Selfossi frá því hann var ákærður fyrir kynferðisbrot gegn sóknarbörnum sínum vorið 2008. Biskupsstofa hefur ítrekað framlengt leyfið en það rennur út næstkomandi fimmtudag. Ákveði biskup ekki annað getur Gunnar snúið til baka í lok vikunnar sem sóknarprestur á Selfossi.

Faðir lét 13 ára gamlan son sinn keyra

Þegar lögreglumenn á Selfossi stöðvuðu við hefðbundið eftirlit akstur bifreiðar í gær kom í ljós að ökumaðurinn var 13 ára gamall. Faðir hans var með í för og hafði leyft drengnum að aka bifreiðinni.

Lampaþjófur vopnaður exi

Lögreglunni á Selfossi barst tilkynning klukkan hálf eitt í nótt frá öryggisverði Securitas um yfirstandandi innbrot í gróðurhús í Hveragerði. Þegar öryggisvörður hringdi á lögreglu kom innbrotsþjófurinn að honum með exi í hönd. Maðurinn ógnaði ekki öryggisverðinum. Þegar lögregla kom á staðinn var hann á bak og burt og þrátt fyrir leit fannst maðurinn ekki.

Heppnasta þorp Danmerkur

Svo virðist sem óvenju margt heppið fólk búi í þorpinu Græsted í Danmörku. Græsted hefur verið útnefnd heppnasta þorp í landinu.

Jónas Ingi og Tindur fengu þunga dóma

Jónas Ingi Ragnarsson var dæmdur í tíu ára fangelsi og Tindur Jónsson í átta ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness í morgun fyrir aðild sína að fíkniefnaverksmiðju sem var upprætt í Hafnarfirði í fyrra sumar.

Utanríkisráðuneytið styrkir UNICEF

Íslandsnefnd Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, UNICEF, hefur fengið átta milljónir króna úthlutað frá utanríkisráðuneytinu vegna langvinns neyðarástands í Austur-Kongó. Styrkurinn rennur til verkefna barnahjálparinnar gegn kynferðisofbeldi og aðstoðar konur og stúlkur sem hefur verið nauðgað en kynferðisofbeldi er beitt í landinu í hernaðarlegum tilgangi.

Valnefnd mælir með tengdasyni biskups

Valnefnd leggur til að tengdasonur biskups verði skipaður sóknarprestur í Kársneskirkju í Kópavogi. Formaður sóknarnefndar segir faglega hafa verið að staðið að málum. Þjóðkirkjan var dæmd skaðabótaskyld þegar tengdasonurinn var ráðinn sendiráðsprestur í London haustið 2003.

Vill fund með iðnaðarráðherra

Unnur Brá Konráðsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins hefur beðið um fund með iðnaðarráðherra vegna ákvörðunnar ríkisstjórnarinnar um að framlengja ekki viljayfirlýsingu um álver á Bakka. Hún segist búast við svari frá ráðherra í dag.

„Starfhæf bæjarstjórn" mynduð á Álftanesi

Starfhæf bæjarstjórn hefur verið mynduð á Álftanesi með aðkomu þriggja fulltrúa D-lista og Margrétar Jónsdóttur sem var áður í bæjarstjórn fyrir Á-lista. Margrét sagði í sumar skilið við félaga sína í bæjarstjórnarhópi Á-listans og er nú óháð. Í samvinnu við bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokks samþykkti Margrét að segja bæjarstjóranum Sigurði Magnússyni af Á-listanum upp störfum á dögunum.

Gæsluvarðhalds krafist yfir konunni í Keflavík

Samkvæmt upplýsingum frá rannsóknardeild lögreglunnar í Keflavík hefur konan sem handtekin var í gær vegna árásar á 5 ára stúlku verið yfirheyrð. Hún verður síðan leidd fyrir dómara innan skamms þar sem krafist verður gæsluvarðhalds yfir henni.

Sjá næstu 50 fréttir