Innlent

Feitum hefur fjölgað mikið

Stefán Hrafn Jónsson Hreyfing og næring  skiptir meginmáli fyrir heilsufar fólks.
Fréttablaðið/Pjetur
Stefán Hrafn Jónsson Hreyfing og næring skiptir meginmáli fyrir heilsufar fólks. Fréttablaðið/Pjetur

Of feitum Íslendingum hefur fjölgað hratt undanfarin sautján ár. Þeir voru um tíu prósent þjóðarinnar árið 1990 en eru um tuttugu prósent í dag. Til að sporna við þessari þróun eru forvarnir besta ráðið og þá er einkar mikilvægt að beina sjónum sínum að börnum og unglingum, segir Stefán Hrafn Jónsson, einn höfunda skýrslunnar Líkamsþyngd og holdafar fullorðinna Íslendinga frá 1990 til 2007, sem kynnt var í gær.

Stefán sagði í framsögu sinni erfitt að benda á nákvæmlega hvað skýrði þessa þróun, en ýmsar vísbendingar bentu til þess að fólk borðaði óhollari mat en áður og hreyfði sig minna. Einnig væru matartímar orðnir óreglulegri en áður og mörk matartíma og narts væru óljós. Áfengisneysla hefði aukist og henni fylgdi hömluleysi sem gæti skilað sér í meira áti.

Þó að fleiri stunduðu kannski líkamsrækt væru um það ýmsar vísbendingar að fólk hreyfði sig almennt minna, færi allra sinna ferða akandi og hreyfði sig lítið sem ekkert í vinnunni.

Stefán sagði mikilvægt að benda á mikilvægi hreyfingar og næringar í umræðu um líkamsþyngd fólks. Líkamsþyngd segði í sjálfu sér ekki mikið um heilsufar. Hins vegar væri ljóst að Íslendingar, eins og grannþjóðirnar, væru að þyngjast og það væri alvarlegt mál enda fylgdu offitu margvíslegir sjúkdómar. Í skýrslunni kemur fram að fólk sem er talsvert yfir kjörþyngd er í hættu á að fá ýmsa sjúkdóma, sykursýki tvö, hjarta- og æðasjúkdóma, háan blóðþrýsting og fleira.

Stefán sagði að efla þyrfti forvarnir á meðal barna og unglinga. Mikilvægt væri að skólar og heilsugæsla tækju þátt í því verki. Bent er á í skýrslunni að líkur eru talsverðar á því að of feit börn glími við offitu á fullorðinsárum.

Ögmundur Jónasson heilbrigðis­ráðherra sagði á fundinum forvarnir vera eitt mikilvægasta úrræðið til að bregðast við aukinni offitu á meðal Íslendinga, því yrðu forvarnir rauði þráðurinn á Heilbrigðis­þingi sem haldið verður á næsta ári. Með skýrslunni lægi ljóst fyrir hver staðan væri og það væri ákveðin forvörn að vekja athygli á því. sigridur@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×