Hækkun á fötum og skóm kemur á óvart 29. september 2009 02:00 Snorri jakobsson „
Verðbólgutölurnar eru í takt við væntingar. En verðhækkanir á fötum og skóm koma okkur á óvart,“ segir Snorri Jakobsson, sérfræðingur hjá IFS Greiningu. Verðbólga mælist nú 10,8 prósent samanborið við 10,9 prósent í ágúst. Þetta er jafnframt þriðji mánuðurinn í röð sem dregur úr verðbólgu eftir uppskot í apríl og maí. Fyrir ári stóð verðbólgan í fjórtán prósentum en hæst fór hún í 18,6 prósent í janúar á þessu ári. Hún hefur ekki verið lægri síðan í apríl í fyrra en um svipað leyti tók gengi krónu að lækka hratt. Verð á bensíni og dísilolíu lækkaði um 2,7 prósent á milli mánaða auk þess sem verð á flugfargjöldum til útlanda fór niður um 12,7 prósent. Hins vegar hækkaði verð á mat- og drykkjarvöru um 1,7 prósent. Þetta er undir spá IFS Greiningar, sem gerði ráð fyrir 2,5 prósenta hækkun á mat- og drykkjarvöruverði vegna áhrifa sykurskattsins og lagðist á ákveðna vöruflokka um síðustu mánaðamót. Af þessum sökum telur Snorri að jafnvel megi gera ráð fyrir að verð á vörum sem skatturinn nær ekki til, svo sem kjötvörum, breytist lítið eða lækki á næstu mánuðum. Verð á fatnaði og skóm hækkaði um 6,2 prósent á milli mánaða. Snorri segir að það hafi komið á óvart og sýni að föt eru orðin verulega dýrari en fyrir útsölur í sumar. „Þetta helst líklega aðeins í hendur við gengisþróun,“ segir hann og bætir við að spár hljóði upp á að hratt dragi úr verðbólgu á næstu mánuðum. jonab@frettabladid.is
Mest lesið Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ Innlent Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Innlent Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Innlent Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Fedorov kallar eftir forsetakosningum í Úkraínu Erlent Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Innlent Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Innlent Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Innlent Fleiri fréttir Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Fjármálaráðherra og vinnumarkaðurinn bregðast við vaxtahækkun SVÞ og netáfengisverslanir skora á Alþingi Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Gæsluvarðhald framlengt yfir meintum Kársnesmorðingjum Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Gæti séð fyrir sér að kjarasamningar haldi Hafi byrlað tólf ára fósturdóttur og nauðgað ítrekað Vilja banna frjáls ferðalög ísraelskra ferðamanna á Íslandi Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Brotin úr jakanum geti valdið flóðbylgju Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ „Jón Sigurðsson nefndi aldrei sjálfstæði“ Stýrivextir hækka og borgarísjaki í Djúpinu Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Maríjon aðstoðar þingmenn Sjálfstæðisflokksins Lítið jökulhlaup hafið í Múlakvísl Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Víðtækar götulokanir á nýrri hlaupaleið Reykjavíkurmaraþons Eiga eftir að taka umsækjendur í viðtöl Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Hin hliðin ljúgi að landsmönnum Sjá meira