Fleiri fréttir

Brotist inn í Grensáskirkju

Þrjú innbrot áttu sér stað í Reykjavík í nótt. Farið var inn í kjallara Grensáskirkju, en að sögn lögreglu er ekki vitað hvort einhverju hafi verið stolið.

Veiðidögum fækkað í fimm

Veiðitímabil lunda í Vestmannaeyjum verður aðeins fimm dagar í sumar og hefur verið stytt úr 55 dögum. Ákvörðunin er tekin í ljósi válegrar stöðu lundastofnsins. Þetta er samkomulag á milli Vestmannaeyjabæjar, Náttúrustofu Suðurlands og Félags bjargveiðimanna í Eyjum vegna nytja og rannsókna á lunda fyrir veiðitímabilið 2009.

Mikil reiði meðal starfsmanna

Rúmlega 100 starfsmenn SPRON, sem eru á uppsagnarfresti, fengu ekki laun sín greidd 1. júlí. Gera átti upp laun og orlof starfsmanna á þriggja mánaða uppsagnarfresti. Mikil reiði er meðal starfsmanna, segir Ólafur Már Svavarsson, fyrrverandi formaður starfsmannafélags SPRON.

Unglingar fegra umhverfið

Borgarráð hefur samþykkt tillögu Hönnu Birnu Kristjánsdóttur borgarstjóra um að úthluta fimmtán milljónum króna úr Forvarna- og framfarasjóði Reykjavíkurborgar til skógræktarverkefna á vegum Skógræktarfélags Íslands. Styrkveitingin miðar að því að veita ungu atvinnulausu fólki vinnu við umhverfisvænt verkefni sem stuðlar að fegrun útivistarsvæða borgarinnar.

Hlaut fyrir þróun umgjarða

Gunnar Gunnarsson, sjóntækjafræðingur og hönnuður hjá Reykjavík Eyes, hlaut evrópsku Red Dot Design-verðlaunin í Essen í Þýskalandi á mánudag. Verðlaunin hlaut hann fyrir hönnun og þróun gleraugnaumgjarða.

Foreldrar hlynntir styttingu skólaársins

Ný skoðanakönnun Heimilis og skóla bendir til að meirihluti foreldra grunnskólabarna sé hlynntur því að skólaárið verði stytt sem bráðabirgðalausn á fjárhagsvanda sveitarfélaganna.

Umræða um nefndir sé röng

Silja Bára Ómarsdóttir stjórnmálafræðingur segir misskilnings gæta varðandi umræður um samninganefndir Breta og Hollendinga í Icesave-málum. Í þeim hafi setið embættismenn úr fjármálaráðuneytum landanna.

Maður lést í flugslysi

Einn maður lést í flugslysi þegar Cessna-flugvél hrapaði skammt frá Vopnafirði í dag. Annar maður sem var um borð í flugvélinni var fluttur lífshættulega slasaður með sjúkraflugi til Reykjavíkur.

Síðasta æfing Jacksons - myndband

Myndskeið af síðustu æfingu Michael Jackson fyrir Lundúna túrinn hefur verið gert opinbert. Á myndbandinu, sem tekið er upp tveimur dögum fyrir andlát Jacksons, virðist hann gríðarlega sprækur og dansar af sinni alkunnu snilld.

Líf ríkisstjórnarinnar ræðst af Icesave

Ríkisstjórnin er sprungin og stjórnarkreppa blasir við verði Icesave-frumvarpið fellt á Alþingi. Þá er líklegt að þing verði rofið og boðað til kosninga. Málið veltur á nokkrum þingmönnum Vinstri grænna en líklegt er að flokkurinn klofni nái málið ekki fram að ganga.

Lítil flugvél brotlenti við Vopnafjörð

Lítil flugvél brotlenti skammt frá Selá í Vopnafirði nú síðdegis. Björgunarsveitin Vopni og Slökkvilið Vopnafjarðar eru á staðnum og þyrla Landhelgisgæslunnar er í viðbragðsstöðu. Ekki er vitað meira um málið að svo stöddu.

Arnarnesræningjarnir dæmdir

Tveir menn, þeir Kristján Víðir Kristjánsson og Hlynur Ingi Bragason, voru í dag dæmdir í fangelsi fyrir að ráðast inn á eldri hjón á Arnarnesi í apríl, svipta þau frelsi og ræna þau. Laufey Jóhanna Sigurpálsdóttir var einnig dæmd fyrir aðkomu sína að ráninu, auk stúlku sem er barnabarn hjónanna.

Ögmundur: Afstaða mín ræðst af framvindu málsins í þinginu

„Ég ætla að láta mína afstöðu ráðast á framvindu málsins í þinginu," sagði Ögmundur Jónasson, heilbrigðisráðherra, í umræðum um ríkisábyrgð vegna Icesave-samkomulagsins á Alþingi í dag. Hann sagði að þjóðin verði með siðferðislega timburmenn í 300 ár ef Íslendingum tekst ekki að leiða hið sanna og rétt í ljós og finna peninga sem skotið var undan. Ögmundur hefur áður, líkt og nokkrir þingmenn Vinstri grænna, lýst yfir efasemdum með samkomulagið.

Vél Air France splundraðist þegar hún skall í hafið

Talið er að flugvél Air France sem fórst 1. júní á leið sinni frá Brasilíu til Frakklands hafi splundrast þegar vélin hrapaði í hafið. Áður hefur verið talið að flugvélin hafi sundrast á flugi þar sem brak úr henni dreifðist yfir margra kílómetra svæði.

Borgin styrkir skógræktarverkefni til að veita ungmennum störf

Borgarráð samþykkti á fundi sínum í morgun tillögu Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, borgarstjóra, um að úthluta 15 milljónum króna úr Forvarna- og framfarasjóði Reykjavíkurborgar til skógræktarverkefna á vegum Skógræktarfélags Íslands í Heiðmörk og Esjuhlíðum.

Össur hjálpar fórnarlömbum jarðskjálfta

Össur hf. hefur skrifað undir samning við kínversku góðgerðarsamtökin Stand Tall og mun sjá fórnarlömbum Sichuan-jarðskjálftans, sem skók Kína fyrir rúmu ári, fyrir stoðtækjum. Samningurinn var undirritaður að viðstöddum sendiherra Íslands í Kína, að því er fram kemur í tilkynningu frá Össuri.

Mikilvægt skref til að tryggja rekstur Egilshallar

Borgarráð samþykkti á fundi sínum í dag þjónustu- og afnotasamning við nýja Landsbankann um Egilshöll í Grafarvogi. Í samningnum er gert ráð fyrir að til vors 2010 muni íþróttaaðstaðan í Egilshöll verða nýtt meira en verið hefur. Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri, segir þetta mikilvægt skref í átt að því að tryggja rekstur Egilshallar.

Þjófar sækja í reiðhjól

Talsvert hefur borið á því að reiðhjólum sé stolið á höfuðborgarsvæðinu þessa dagana, að sögn lögreglu. Þrjár slíkar tilkynningar bárust í gær og fimm í fyrradag.

Samningurinn samþykktur í bæjarráði Reykjanesbæjar

Samningur Reykjanesbæjar og Geysis Green Energy um kaup og sölu á hlutum í HS Orku og HS Veitu var samþykktur af meirihluta sjálfstæðismanna í bæjarráði Reykjanesbæjar í morgun. Samningurinn verður innan skamms lagður fyrir bæjarstjórn til endanlegrar afgreiðslu.

Dæmi um að menn fari yfir 800 kg í strandveiðunum

Fiskistofa hefur séð ástæðu til þess að árétta það að þeim sem stunda strandveiðar er eingöngu heimilt að draga 800 kg af óslægðum kvótabundnum afla í hverri veiðiferð. Nokkur brögð hafa verið að því að menn séu að koma að landi með umframafla sem nemur tugum kílóa.

Handtekinn heima hjá sér með fíkniefni og afsagaða haglabyssu

Karlmaður á fertugsaldri var handtekinn á heimili sínu sínu í Vogahverfi í Reykjavík í morgun en við húsleit fundust fíkniefni og afsöguð haglabyssa. Um var að ræða 40 grömm af marijúana, amfetamín í neysluskömmtum og 30 kannabisplöntur.

Ráðherrar seinir í seinni hluta Icesave umræðna

Þegar umræður um ríkisábyrgð á Icesave hófust eftir fundarhlé klukkan 13:30 voru hvorki forsætisráðherra né fjármálaráðherra viðstaddur. Kvað hver stjórnarandstæðingurinn sér hljóðs á fætur öðrum og krafðist þess að ráðherrarnir sýndu umræðunni þá lágmarksvirðingu að vera viðstaddir hana.

Starfshópur um endurskoðað fiskveiðistjórnunarkerfi skipaður

Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur með vísan til stefnuyfirlýsingar ríkisstjórnar Samfylkingar og Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs um endurskoðun laga um stjórn fiskveiða skipað starfshóp til þess að endurskoða fyrirkomulag fiskveiðistjórnunarinnar. Guðbjartur Hannesson, þingmaður Samfylkingarinnar, verður formaður starfshópsins.

Klefadjamm á Litla-hrauni

Fangi á Litla-hrauni var í dag dæmdur til 60 þúsund króna sektar fyrir vörslu fíkniefna í klefa sínum. Hann var gripin með e-pilluduft í hendi sér, en neitaði þó að eiga efnið.

Össur: Sjálfstæðismenn eru skræfur

„Sjálfstæðismenn eru slíkar skræfur að þeir þola ekki að aðkoma þeirra að málinu sé rifjuð upp,“ sagði utanríkisráðherra í umræðum um ríkisábyrgð vegna Ícesave-samkomulagið á Alþingi í dag. Rök ráðherrans í málinu er samfelldur brandari, að mati formanns Sjálfstæðisflokksins.

Orra dæmd 300 þúsund frá 365-miðlum

Orra Haukssyni voru dæmdar 300 þúsund króna skaðabætur frá 365-miðlum ehf. í héraðsdómi Reykjavíkur í dag vegna ummæla sem birtust um hann í DV þann 29. september 2006. DV var þá í eigu 365-miðla. Auk þess voru ummæli um einkalíf Orra dæmd dauð og ómerk.

Atli Gíslason: Kannski betra að lýsa yfir þjóðargjaldþroti

Geti Íslendingar ekki staðið undir erlendum skuldbindingum blasir við þjóðargjaldþrot. Þetta er mat stjórnarþingmannsins Atla Gíslasonar. Hann segist ekki munu samþykkja Icesave samninginn reynist það rétt að erlendar skuldir nemi 250 prósentum af landsframleiðslu.

Málningu slett á hús Hannesar og Björgólfs

Rauðri málningu var slett á heimili þeirra Björgólfs Guðmundssonar og Hannesar Smárasonar í nótt eða í morgun. Heimili þeirra eru við Vesturbrún annars vegar og Fjölnisveg hinsvegar. Þegar myndatökumann fréttastofu bar að garði var verið að þrífa málninguna af húsunum. Að sögn lögreglu er ekki vitað hverjir standi á bakvið sletturnar og er málið því í rannsókn.

Steingrímur: Samkomulagið hluti af herkostnaðinum

„Þetta er hluti af herkostnaðinum sem við sitjum uppi með," sagði Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, um ríkisábyrgð vegna Icesave-samkomulagsins á Alþingi í dag. Ráðherrann sagði skítt að Íslendingar sitji uppi með afleiðingar andvaraleysis stjórnvalda undanfarinna ára. Þá fullyrti Steingrímur að milljarðarnir sem fengust fyrir Landsbankann þegar hann var einkavæddur á sínum tími hafi verið þeir dýrustu í sögu Íslands.

Vildu fresta umræðu um Icesave

Pétur H. Blöndal og Birgir Ármansson, þingmenn Sjálfstæðisflokksins, fóru fram á það við Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur, forseta Alþingis, í dag að öllum umræðum um Icesave-samkomulagið yrði fram frestað fram yfir helgi. Hún varð ekki við þeirri bón.

Höldum okkur á hægri um helgina

Mikil umferðarteppa skapaðist á Suðurlandsvegi um síðustu helgi, sem leiddi til þess að langar bílaraðir mynduðust. Teppan skapaðist helst þar sem tvær akreinar verða að einni við lok 2+1 kaflans á veginum, að því er kemur fram í tilkynningu frá Umferðarstofu.

Breytingar í utanríkisráðuneytinu

Skrifstofa upplýsingamála var sett á laggirnar í utanríkisráðuneytinu þann 8. júní í kjölfar skipulagsbreytinga. Kristín A. Árnadóttir, sem áður stýrði sameinaðri skrifstofu utanríkisráðherra og -ráðuneytisstjóra, hefur nú verið færð til í starfi og stýrir hinni nýju skrifstofu. Engin tilkynning var gefin út af hálfu ráðuneytisins um þessar skipulagsbreytingar.

Ákvörðun peningastefnunefndar mikil vonbrigði

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, segir ákvörðun peningastefnunefndar Seðlabankans að halda stýrivöxtum óbreyttum í 12%, og greint var frá í dag, vera mikil vonbrigði. Þetta kom fram í umræðum á Alþingi í morgun.

Bilun hjá Seðlabanka og Kauphöll

Bilun varð í ytri vef Seðlabankans í nótt og lá hann niðri þar til í morgun. Samkvæmt upplýsingum frá þjónustuaðila vefsins, EJS, er þó búið að lagfæra bilunina.

Icesave á dagskrá þingsins í dag

Alþingi kemur til með að taka fyrstu umræðu um ríkisábyrgð á lántöku tryggingarsjóðs innistæðueigenda á þingfundi klukkan 10:30 í dag. Fer þar fram umræða um það hvort þingið „samþykki" Icesave samninginn.

Reyna að hjálpa Norður-Kóreumönnum

Fulltrúar Norður- og Suður-Kóreu funduðu í morgun um aðgerðir til að koma Norður-Kóreumönnum til hjálpar efnahagslega vegna viðskiptalegra refsiaðgerða Sameinuðu þjóðanna.

Vilja skíra þorp eftir Michael Jackson

Íbúar þorpsins Oktyabrskoye í Suðaustur-Úkraínu hafa nú farið fram á að fá að breyta nafni þorpsins í Jackson og skíra það þar með í höfuðið á tónlistarmanninum Michael Jackson sem lést í síðustu viku.

Sjá næstu 50 fréttir