Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Mannekla heyrir sögunni til Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) gerði nýverið skyndikönnun varðandi manneklu í hjúkrun og kom í ljós að um 99,98 prósent stöðugilda hjúkrunarfræðinga eru nú setin. Svör komu frá hjúkrunarstjórnendum 50 stofnana, sem ráða yfir um 65 prósentum stöðugilda hjúkrunarfræðinga í landinu, eða rúmum 1.645 stöðugildum. Sambærileg könnun árið 2007 sýndi allt aðra mynd og var mannekla þá veruleg. 2.7.2009 05:45
Kostnaður falli á þrotabúin Verið er að kanna hvort hægt verði að fella kostnað við skilanefndir fjármálafyrirtækja á þrotabúin, í stað þess að hluti kostnaðarins falli á Fjármálaeftirlitið (FME), segir Gunnar Þ. Andersen, forstjóri eftirlitsins. 2.7.2009 05:15
Þurfti stífkrampasprautu og penisilín Tveir kettir réðust á Jóngeir Þórisson, eiganda skiltagerðarinnar Pamfíls, þegar hann var á gangi með smáhundinn sinn, fimm mánaða gamla hvolpinn Polla, við Hjallaveg fyrir ofan Kleppsveg um kvöldmatarleytið á þriðjudaginn í síðustu viku. 2.7.2009 05:15
Villa fella ályktun ríkisstjórnar „Við erum að glíma við gríðarstór verkefni, endurreisn fjármálakerfisins, skuldir heimila og fyrirtækja og þar fram eftir götunum, og það er mín skoðun að aðildarumsókn að Evrópusambandinu tengist ekki þeirri vegferð,“ segir Ásmundur Einar Daðason, þingmaður Vinstri grænna. Í þinginu í gær hvatti Ásmundur til þess að þingsályktunartillaga ríkisstjórnarinnar um aðildarumsókn að Evrópusambandinu yrði felld. 2.7.2009 05:15
Ferðuðust með ljósmyndir Íslandsdeild Amnesty International mótmælti í gær hjá nokkrum starfsstöðvum Shell í borginni í tilefni nýútkominnar skýrslu samtakanna. Í skýrslunni eru birtar niðurstöður rannsóknar á áhrifum olíuvinnslu á óseyrum Nígerfljóts í Nígeríu á mannréttindi íbúa svæðisins. 2.7.2009 05:15
115 milljarðar hvíla á bílum í erlendri mynt Efnahagsmál Íslendingar skulda 115 milljarða króna í erlend bílalán. Ríflega fjörutíu þúsund manns eru með bílalán í erlendri mynt, að hluta eða að fullu. Gera má ráð fyrir að um 4.400 manns séu í vandræðum með greiðslubyrði af bílalánum sínum, ef marka má orð Gylfa Magnússonar viðskiptaráðherra á Alþingi í gær. 2.7.2009 05:00
Kannast ekki við áhuga á Vaðlaheiði Kristján Möller samgönguráðherra segir það einfaldlega rangt að búið sé að forgangsraða samgöngumannvirkjum þannig að Vaðlaheiðargöng verði efst í forgangsröðinni. 2.7.2009 04:30
Stjórnarflokkar tapa miklu fylgi Ríkisstjórnarflokkarnir tveir fengju samtals aðeins 43 prósent atkvæða væri kosið til alþingiskosninga nú, samkvæmt nýrri skoðanakönnun Gallup. Sjálfstæðisflokkurinn er aftur orðinn stærsti flokkurinn með 28 prósenta fylgi miðað við 24 prósent í kosningunum í apríl. Samfylkingin tapar 5 prósentustigum og fengi 25 prósent atkvæða. Vinstri grænir tapa sömuleiðis og mælast með 18 prósent miðað við 22 prósent í kosningunum. 2.7.2009 04:30
Maður myrtur við Kristjaníu Maður af írönskum uppruna var skotinn til bana í bíl sínum við Kristjaníusvæðið í Kaupmannahöfn í gærdag. Ekki er vitað hvort morðið tengist hörðum átökum innflytjendaklíka og Vítisengla, sem staðið hafa yfir síðan í ágúst á síðasta ári. 2.7.2009 04:30
Gjaldþrot standa oft yfir áratugum saman Eigendur fyrirtækja sem verða gjaldþrota hafa þann möguleika að stofna nýtt fyrirtæki á rústum þess gamla með nýrri kennitölu. Einstaklingar geta það trauðla og kunna að eiga í gjaldþroti svo áratugum skiptir. 2.7.2009 04:15
Herjólfur telst ekki þjóðvegur Eimskip má innheimta gjald af ferjusiglingum með Herjólfi, enda telst Herjólfur ekki þjóðvegur. Þetta er niðurstaða umboðsmanns Alþingis, en kvartað hafði verið til hans vegna gjaldtökunnar í ferjuna og nýlegrar hækkun á gjaldskránni. 2.7.2009 04:00
Framsókn situr enn í því græna Framsóknarflokkurinn fundar enn í græna herberginu svokallaða, þrátt fyrir að hafa átt að láta það eftir þingflokki VG í ljósi kosningaúrslita. VG þarf stærra herbergi en þingflokkur Framsóknar hefur minnkað nokkuð. Fram kom í fjölmiðlum í maí að Framsókn vildi ekki víkja úr herberginu og mun þetta vera tilfinningamál fyrir flokkinn, sem hefur verið í herberginu í áratugi. 2.7.2009 03:30
Verið 22 daga erlendis á árinu Forseti Íslands hefur alls verið 22 daga erlendis fyrstu sex mánuði ársins. Á sama tímabili á síðasta ári var forsetinn tvöfalt fleiri daga erlendis, og nærri þrefalt fleiri á sama tímabili árið 2007. 2.7.2009 03:30
Fleiri slasast alvarlega í umferðinni Alvarlega slösuðum í umferðarslysum hefur fjölgað töluvert á undanförnum árum. Þannig slösuðust 200 alvarlega í umferðinni í fyrra en aðeins 115 árið 2004. Hins vegar hefur látnum fækkað til muna og létust tólf á síðasta ári samanborið við 31 á árinu 2006. Þetta kemur fram í skýrslu um umferðaröryggisáætlun stjórnvalda árið 2008 sem var kynnt á blaðamannafundi á þriðjudag. Eitt af markmiðum áætlunarinnar er að látnum og alvarlega slösuðum fækki að jafnaði um fimm prósent á ári. Það hefur ekki tekist. 2.7.2009 03:00
Hringur hlaupinn í nafni friðar Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra setti Friðarhlaupið á Íslandi í Laugardal í gærmorgun. Friðarhlaupið er alþjóðlegt kyndilboðhlaup en tilgangur þess er að efla frið, vináttu og skilning. 2.7.2009 02:45
Tollar á landbúnaðarvörur lækki Landbúnaðarráðuneytið hefur nú auglýst innflutningskvóta á landbúnaðarvörur eftir að Samtök verslunar og þjónustu mótmæltu ákvörðun ráðuneytisins frá 19. júní um að auglýsa ekki kvótana til umsóknar. 2.7.2009 02:30
Sautján ára ferli í Kína Hörður Svavarsson, formaður Íslenskrar ættleiðingar, segir ættleiðingum hér hafa fækkað meira en í nágrannalöndunum. Úrræði séu fjölbreyttari ytra. 2.7.2009 02:30
Diana Ross fengi forræðið Michael Jackson vildi að söngkonan Diana Ross fengi forræði yfir þremur börnum sínum að sér látnum ef móðir söngvarans, Katherine, gæti af einhverjum orsökum ekki tekið hlutverkið að sér. Þetta kemur fram í erfðaskrá Jacksons sem var birt í gær. 2.7.2009 02:00
Skúta strandaði langt fyrir innan viðmiðunarbauju Skúta strandaði í kvöld á Engeyjarsundi. Skútan er í eigu Brokeyjar, Siglingafélags Reykjavíkur. Vanur maður sigldi skútunni en athygli vekur að hún er langt fyrir innan bauju sem siglingamenn miða sig við allajafna til að lenda ekki í grynningum. 1.7.2009 21:09
ASÍ spáir 9-10% atvinnuleysi næstu misseri Hagdeild Alþýðusambands Íslands hefur sent frá sér nýja hagspá um horfur í efnhagsmálum til ársins 2012. Hagdeildin spáir ríflega 10% samdrætti í landsframleiðslu í ár og áframhaldandi samdrætti á fyrri hluta næsta árs. Botninum verði hinsvegar náð á öðrum ársfjórðungi ársins 2010. Þá er útlit fyrir að atvinnuleysi verði milli 9-10% næstu misseri. 1.7.2009 18:08
Bróðir menntamálaráðherra fær hvatningarverðlaun Ármann Jakobsson, dósent í íslenskum bókmenntum við Háskóla Íslands, hlaut hvatningaverðlaun Vísinda- og tæknisráðs sem afhent var á Rannsóknarþingi í dag. 1.7.2009 16:50
Rændi laskað heimili daginn eftir Suðurlandsskjálftann Maður var dæmdur í mánaðarlangt fangelsi fyrir að ræna heimili í Hveragerði daginn eftir Suðurlandsskjálftann í maí á síðasta ári. 1.7.2009 16:04
Áframhaldandi gæsluvarðhald í dularfulla fíkniefnamálinu Karl á þrítugsaldri hefur verið úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald til 17. júlí að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og er það gert á grundvelli rannsóknarhagsmuna. 1.7.2009 15:34
Yfir 40 þúsund manns með erlend bílalán Alls eru 40.414 manns með bílalán í erlendri mynt að hluta eða í heild þar sem bifreið viðkomandi er sett að veði. Þetta kom fram í svari Gylfa Magnússonar, viðskiptaráðherra, við fyrirspurn Birkis Jóns Jónssonar, þingmanns Framsóknar, á Alþingi rétt í þessu. 1.7.2009 14:31
Gagnrýnir langt gæsluvarðhald harðlega „Mér fannst ekki tilefni til þess að halda honum svona lengi í haldi," segir Brynjar Níelsson lögmaður Sigurðar Hilmars Ólasonar sem var handtekinn og hnepptur í gæsluvarðhald vegna gruns um peningaþvætti og aðild að risa fíkniefnamáli í Hollandi. 1.7.2009 14:14
Gylfi Magnússon og Sigmundur Davíð í Reykjavík síðdegis Sigmundur Davið Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, og Gylfi Magnússon, viðskiptaráðherra, ræða Icesave málin í útvarpsþættinum Reykjavík síðegis á Bylgjunni núna klukkan hálf sex. 1.7.2009 17:11
TF-SIF lent TF-SIF, ný eftirlits- og björgunarflugvél Landhelgisgæslunnar lenti á Reykjavíkurflugvelli um klukkan þrjú í dag. 1.7.2009 15:41
Honduras hótað brottrekstri Hæstiréttur Honduras fyrirskipaði hernum að fljúga með Manuel Zelaya forseta í útlegs síðasliðinn sunnudag. 1.7.2009 18:30
Hvíti hvalurinn heimsækir Ástralíu Hann heitir Migaloo og er liðlega tvítugur. Eftir því sem best er vitað er hann eini hvíti hnúfubakurinn sem til er í heiminum. 1.7.2009 18:15
Sextíu og sex ára vél aftur í farþegaflug Þristavinafélagið ætlar að breyta áburðardreifivélinni Páli Sveinssyni aftur í farþegaflugvél. 1.7.2009 16:42
Lífeyrissjóðir hafna hugmyndum Sjálfstæðisflokksins Landssamtök lífeyrissjóða eru andvíg hugmyndum um að inngreiðslur í lífeyrissjóði verði skattlagðar í stað þess að skatturinn sé innheimtur við greiðslu lífeyris eins og viðgengist hefur frá upphafi. 1.7.2009 15:11
Icesave: 400 milljörðum hærri ef ríkisstjórnin hefði ráðið fyrir áratug Ef Jóhanna Sigurðardóttir, Steingrímur J. Sigfússon og Ögmundur Jónasson hefðu fengið að ráða fyrir tæpum 10 árum síðan væri skuld Íslendinga vegna Icesave líklega um 400 milljörðum krónum hærri en nú er. Í dag eru þau örugglega fegin því að tillaga þeirra var felld á Alþingi. Þetta kemur fram á heimasíðu Kristins H. Gunnarssonar, fyrrum Alþingismanns. 1.7.2009 14:25
Beit lögreglu í löngutöng Rétt rúmlega tvítugur maður var dæmdur fyrir að bíta lögregluþjón í löngutöng á vinstri hönd. Maðurinn beit lögreglumanninn í apríl á síðasta ári á Hverfisgötunni í miðborg Reykjavíkur. 1.7.2009 13:05
Ísland næst í Evrópuröðinni? Ísland gæti orðið næsta þjóð sem fær aðild að Evrópusambandinu. Svíar taka við forsæti í sambandinu í dag. Fredrik Reinfeldt forsætisráðherra Svíþjóðar sagði á fundi með fréttamönnum í gær að í sex mánaða forsætistíð landsins verða lögð megináhersla á baráttuna gegn loftslagsbreytingum. 1.7.2009 12:25
Ekki útilokað að hægt verði að bræða saman tillögurnar Formaður utanríkismálanefndar útilokar ekki að nefndinni takist að bræða saman tillögur stjórnar og stjórnarandstöðu um aðildarumsókn að Evrópusambandinu. Alþingi fær málið aftur til umræðu í fyrsta lagi í næstu viku. 1.7.2009 12:22
Skiptar skoðanir um áhrif Icesave samningsins Gylfi Magnússon, viðskiptaráðherra, segir að Icesave lánið kunni að hafa einhver áhrif á gengi krónunnar en það dæmi hana ekki til að vera lága um aldur og ævi. Jón Daníelsson hagfræðiprófessor vill hins vegar meina að framtíð hagkerfisins velti á því að samið verði upp á nýtt. 1.7.2009 12:11
Gylfi: Ekki réttlætanlegt að bjarga bara stofnfjáreigendum „Ef ríkið keypti stofnféð fullu verði væri ríkið að taka á sig tap sparisjóðanna á umliðnum árum," segir Gylfi Magnússon, viðskiptaráðherra, um lagafrumvarp sitt um sparisjóðina. Í frumvarpinu er lögð til heimild til að færa niður stofnfé sjóðanna svo þeir geti þegið stofnfjárframlag frá ríkinu. 1.7.2009 12:01
Lundaveiðar leyfilegar í fimm daga Nú í hádeginu verður haldinn fundur í umhverfis- og skipulagsráði Í vestmannaeyjum en þar mun samningur verða lagður fram varðandi lundaveiðar. Náttúrustofa Suðurlands telur stofninn í mögulegri útrýmingarhættu og hefur lagt til algjört veiðistopp. 1.7.2009 11:25
Ráðhústorgið aftur undir græna torfu Ráðhústorgið á Akureyri mun taka stakkaskiptum þegar kemur að lit og mýkt á morgun fimmtudag en þá verður torgið tyrft og skreytt með fallegum blómum í öllum regnbogans litum. Í tilkynningu frá bænum segir að framkvæmdir hefjist í fyrramálið um áttaleytið og standa fram eftir degi. „Bæjarbúum er velkomið að taka þátt með því að leggja fram hjálparhönd. Verkstjórinn á svæðinu verður hjálpfúsum bæjarbúum innan handar með úthlutun verkefna.“ 1.7.2009 11:19
Eygló Harðar: Stofnfjáreigendur stefna í gjaldþrot Í nýju frumvarpi viðskiptaráðherra um fjármálafyrirtæki er gert ráð fyrir því að heimilt verði að lækka stofnfé sparisjóða til jöfnunar taps sem ekki verður jafnað á annan hátt. 1.7.2009 11:13
TF - SIF kemur heim í dag Ný eftirlits- og björgunarflugvél Landhelgisgæslunnar kemur til landsins klukkan þrjú í dag. 1.7.2009 11:07
Annað barn hugsanlega á lífi eftir flugslys Annað barn hefur fundist á lífi eftir að farþegaþota hrapaði nálægt Comora-eyjum í fyrrinótt. 1.7.2009 10:32
Útfærsla stjórnlagaþings samþykkt í ríkisstjórn Ríkisstjórnin samþykkti í vikunni að leggja fyrir Alþingi frumvarp forsætisráðherra um ráðgefandi stjórnlagaþing. Kosið verður til þingsins með persónukjöri. 1.7.2009 09:57
Slökkvilið kallað að Actavis - enginn eldur Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað að höfuðstöðvum Actavis í Hafnarfirði um klukkan hálfníu í morgun þegar brunaboðar fóru í gang. Að sögn starfsmanns fór allt starfsfólk út úr húsinu til öryggis. Þegar slökkviliðið kom á vettvang kom í ljós að hitalykt hafði komið úr elementi í loftræstikerfi hússins sem varð til þess að eldvarnakerfið fór í gang. Að sögn varðstjóra hjá slökkviliðinu hefur þetta gerst áður í húsinu og er í raun nokkuð algengt þegar um slík hitaelement í loftræstikerfum er að ræða. 1.7.2009 08:26
Mynd á líkklæðinu sögð fölsun da Vinci Bandarískur listfræðingur þykist hafa sýnt fram á að líkklæðið frá Tórínó sé fölsun Leonardos da Vinci. 1.7.2009 08:22