Innlent

Sigmundur Davíð: Íslenska þjóðin eins og kúguð fjölskylda

Hafsteinn Gunnar Hauksson skrifar
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson Mynd/GVA
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, gagnrýndi sem fyrr Icesave samninginn harðlega í þinginu í dag.

Hann segir óhugsandi að íslenska þjóðin geti staðið undir þeim skuldbindingum sem kveðið er á um í samningnum.

Því til stuðnings tók hann sem dæmi stóra fjölskyldu sem býr saman og borgar hvert öðru fyrir fótanudd, grænmetisrækt og aðra greiða með Matadorpeningum. Þetta sagði hann líkt og hið innra hagkerfi landsins.

Hins vegar þyrftu hjónin sem halda fjölskyldunni uppi að afla fjár til að standa undir miklum skuldum heimilisins og kaupa hluti utan frá.

„Hvað gerist svo þegar einhver fantur kemur og segir: Borgið mér pening?" spurði Sigmundur.

„Hver er þá staðan? Hvernig ætlar þetta heimili að verða sér úti um fleiri íslenskar krónur? Það er alveg sama hvað verður mikið gert með Matadorpeningana, þeir munu ekki duga til að bjarga fjölskyldunni úr þessu ástandi. Fjölskyldan er lent í skuldafangelsi eins og ríkisstjórnin er nú að setja þjóðina í," sagði Sigmundur.

Hann vildi með þessu sýna fram á að jafnvel þó hagvöxtur yrði hér mikill, myndi það ekki hjálpa þjóðinni því skuldirnar eru í erlendri mynt.


Tengdar fréttir

Höfnun Icesave setur AGS samkomulagið í uppnám

Ekki er hægt að skilja orð Franek Rozwadowski fulltrúa Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í samtali við Bloomberg öðruvísi en svo að ef alþingi hafnar Icesave-samningnum sé samkomulag Íslands við AGS þar með komið í uppnám.

Össur: Sjálfstæðismenn eru skræfur

„Sjálfstæðismenn eru slíkar skræfur að þeir þola ekki að aðkoma þeirra að málinu sé rifjuð upp,“ sagði utanríkisráðherra í umræðum um ríkisábyrgð vegna Ícesave-samkomulagið á Alþingi í dag. Rök ráðherrans í málinu er samfelldur brandari, að mati formanns Sjálfstæðisflokksins.

Steingrímur: Samkomulagið hluti af herkostnaðinum

„Þetta er hluti af herkostnaðinum sem við sitjum uppi með," sagði Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, um ríkisábyrgð vegna Icesave-samkomulagsins á Alþingi í dag. Ráðherrann sagði skítt að Íslendingar sitji uppi með afleiðingar andvaraleysis stjórnvalda undanfarinna ára. Þá fullyrti Steingrímur að milljarðarnir sem fengust fyrir Landsbankann þegar hann var einkavæddur á sínum tími hafi verið þeir dýrustu í sögu Íslands.

Ráðherrar seinir í seinni hluta Icesave umræðna

Þegar umræður um ríkisábyrgð á Icesave hófust eftir fundarhlé klukkan 13:30 voru hvorki forsætisráðherra né fjármálaráðherra viðstaddur. Kvað hver stjórnarandstæðingurinn sér hljóðs á fætur öðrum og krafðist þess að ráðherrarnir sýndu umræðunni þá lágmarksvirðingu að vera viðstaddir hana.

Atli Gíslason: Kannski betra að lýsa yfir þjóðargjaldþroti

Geti Íslendingar ekki staðið undir erlendum skuldbindingum blasir við þjóðargjaldþrot. Þetta er mat stjórnarþingmannsins Atla Gíslasonar. Hann segist ekki munu samþykkja Icesave samninginn reynist það rétt að erlendar skuldir nemi 250 prósentum af landsframleiðslu.

Icesave á dagskrá þingsins í dag

Alþingi kemur til með að taka fyrstu umræðu um ríkisábyrgð á lántöku tryggingarsjóðs innistæðueigenda á þingfundi klukkan 10:30 í dag. Fer þar fram umræða um það hvort þingið „samþykki" Icesave samninginn.

Vildu fresta umræðu um Icesave

Pétur H. Blöndal og Birgir Ármansson, þingmenn Sjálfstæðisflokksins, fóru fram á það við Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur, forseta Alþingis, í dag að öllum umræðum um Icesave-samkomulagið yrði fram frestað fram yfir helgi. Hún varð ekki við þeirri bón.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×