Innlent

Umboðsmaður Alþingis: Ákæruvaldið braut á ökufanti

Hafsteinn Gunnar Hauksson skrifar
Bílferð mannsins lauk við planið fyrir aftan lögreglustöðina á Hverfisgötu.
Bílferð mannsins lauk við planið fyrir aftan lögreglustöðina á Hverfisgötu. Mynd/Egill

Umboðsmaður Alþingis álítur að brotið hafi verið á ökumanni sem handtekinn var fyrir rúmri viku eftir að hafa keyrt á slökkvistöðina í Skógarhlíð og nærstaddar bifreiðar.

Skemmdarverkin vann maðurinn undir áhrifum áfengis þegar rann á hann æði vegna framkomu lögreglu í sinn garð. Hann hafði sakað lögregluna um að aðhafast ekki vegna þjófnaðar sem hann varð fyrir.

Samkvæmt umboðsmanni Alþingis braut ákæruvaldið vissulega á manninum.

Langur aðdragandi

Málið sem umboðsmaðurinn hafði til meðferðar á sér langan aðdraganda og rekur upphaf sitt til sumarsins 2006. Þá hafði maðurinn leigt húsnæði og bjó þar þegar til stóð að selja húsnæðið. Aðeins hafði munnlegur leigusamningur verið gerður og voru áhöld um hversu lengi samningstímabilið stóð.

Seljandinn krafðist þess að maðurinn yfirgæfi húsið svo hægt væri að afhenda kaupandanum það, en hann varð ekki við þeirri kröfu. Greip seljandinn þá til þess ráðs að flytja hann út með valdi, fjarlægði allar eigur hans úr húsnæðinu og læsti þær í geymslu.

Vill að ríkissaksóknari endurskoði málið

Gertæki þetta kærði maðurinn. Lögregla lét málið hins vegar niður falla á þeim forsendum að það væri einkaréttarlegs eðlis. Skaut maðurinn þá málinu til ríkissaksóknara, sem neitaði að endurskoða ákvörðun lögreglu því kærufrestur málsins var liðinn.

Það var þessi ákvörðun ríkissaksóknara sem maðurinn kvartaði undan til umboðsmanns Alþingis, og komst hann að þeirri niðurstöðu að ríkissaksóknara bar að endurskoða málið. Lögfræðingur mannsins hefur ítrekað þá beiðni eftir að álit umboðsmanns féll.

Búinn að tapa aleigunni á málinu

Að sögn mannsins hefur hann eytt um 700 þúsund krónum í að leita réttar síns í málinu og hefur ekki ennþá fengið eigur sínar til baka.

"Ég er náttúrulega búinn að tapa aleigunni í þessu máli," segir hann.

Aðspurður hvort hann sé ánægður með álit umboðsmanns svarar hann:

„Er þetta ekki viðurkenning um að það sé verið að brjóta á mér lög? En þá er bara spurningin - skiptir það einhverju máli? Þeir virðast bara mega haga sér eftir eigin geðþótta."










Tengdar fréttir

Ökufantur iðrast innilega

„Það er náttúrulega hrikalegt hvernig fór þennan dag," segir 35 ára ökumaður sem handtekinn var fyrir viku eftir að hafa keyrt á slökkvistöðina við Skógarhlíð og fjölda bíla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×