Innlent

Þjófar sækja í reiðhjól

Talsvert hefur borið á því að reiðhjólum sé stolið á höfuðborgarsvæðinu þessa dagana, að sögn lögreglu. Þrjár slíkar tilkynningar bárust í gær og fimm í fyrradag.

Ekki er að sjá að eitt hverfi verði meira fyrir barðinu á reiðhjólaþjófum en önnur því hinir óprúttnu aðilar eru jafnt á ferðinni í miðborginni sem úthverfunum. Reiðhjólum er sömuleiðis stolið í nágrannasveitarfélögunum. Vegna þessa beinir lögreglan því til fólks að það gangi eins tryggilega frá reiðhjólum sínum og kostur er.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×