Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Á ofsahraða frá Mosfellsbæ inn í Hvalfjörð Tuttugu og fjögurra ára karlmaður er í haldi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu eftir að hún veitti honum eftirför í nótt alla leið inn í Hvalfjarðarbotn á miklum hraða. 10.6.2007 09:49
Foreldrar Madeleine litlu gera hlé á leitinni Foreldrar hinnar fjögurra ára gömlu Madeleine McCann, sem rænt var í Portúgal fyrir rúmum mánuði, hyggjast taka sér hvíld á leitinni að dóttur sinni og hugsa málið. 9.6.2007 20:41
Dýrbítur á ferð í Borgarfirði Labrador-hundur beit í dag tvö lömb til bana við bæ í Lundareykjadal í Borgarfirði. Eftir því sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins í kvöld var hundurinn á ferð við bæinn Þverfell ásamt hópi fólks sem var með hross í svokölluðum sleppitúr. 9.6.2007 20:38
Réðust á ísraelska eftirlitsstöð Fjórir herskáir Palestínumenn réðust í dag á eftirlitsstöð ísraelska hersins og skiptust á skotum við ísraelska hermenn. 9.6.2007 20:24
Vilja framlengja farbann yfir fyrrverandi framkvæmdastjóra VSP Efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra hyggst fara fram á framlengingu á farbanni yfir Viggó Viggóssyni, fyrrverandi framkvæmdastjóra Verðbréfastofu Sparisjóðanna. 9.6.2007 19:29
Íslendingar yfir gegn Serbum eftir fyrri hálfleik Íslendingar eru einu marki yfir gegn Serbum, 14-13, í viðureign um laust sæti á Evrópumótinu í handknattleik í Noregi á næsta ári. Leikurinn fer fram í Serbíu og er fyrri viðureign liðanna. Þau mætast aftur á Íslandi eftir viku. 9.6.2007 19:23
Gekk grátandi úr dómssal Paris Hilton gekk grátandi úr dómssal í Los Angeles í gær eftir að dómari úrskurðaði að hún skyldi send aftur í fangelsi. Lögreglustjóri segir Hilton eiga við geðræn vandamál að stríða og því ekki rétt að senda hana aftur í steininn. 9.6.2007 19:00
Alvarlegt að fylgja ekki ráðgjöf Það er hættulegur leikur að gera vísindin að blóraböggli fyrir slakri stöðu þorstofnsins, segir Jóhann Sigurjónsson forstjóri Hafrannsóknarstofnunar.Hann telur það grafalvarlegt mál ef ekki verður farið að tillögum stofnunarinnar um stórfelldan niðurskurð þorskafla. 9.6.2007 18:48
Bush á ferð og flugi Mótmælendur létu hátt í sér heyra á götum Rómarborgar í dag. George Bush Bandaríkjaforseti sótti borgina heim og var allt annað en velkominn. Forsetinn er á ferð og flugi um Evrópu þessa dagana og ræðir eldflaugavarnarkerfi og Kósóvódeiluna. 9.6.2007 18:38
Umhverfisvænasta álver Alcoa Forstjóri Alcoa segir álverið á Reyðarfirði það umhverfisvænasta af tæplega þrjátíu verksmiðjum fyrirtækisins víðs vegar um heiminn og stefnir ótrauður á byggingu álvers við Húsavík. Forsætisráðherra segir að fyrirtækið geti áfram búist við velvilja íslenskra stjórnvalda, en verksmiðja Fjarðaáls var formlega opnuð í dag. 9.6.2007 18:37
Hafna sérstöðu og græða á því Álverið í Straumsvík hefur verið losað undan öllum undanþágum um skatta, gjöld og tolla sem fyrirtækið fékk þegar álverið var reist fyrir 40 árum. Þetta fól í sér miklar ívilnanir í gegnum tíðina. Svo miklar breytingar hafa aftur á móti orðið á almennu skattaumhverfi fyrirtækja að álverið sparar sér hálfan milljarð á ári með því að vera skattlagt eins og hvert annað fyrirtæki. 9.6.2007 18:30
Átök milli mótmælenda og lögreglu í Róm Til átaka kom á milli lögreglu og andstæðinga George Bush Bandaríkjaforseta í Róm í dag þar sem Bush er í heimsókn. Um tólf þúsund manns tóku þátt í mótmælum gegn stríðunum í Írak og Afganistan og stefnu bandarískra stjórnvalda í umhverfismálum. 9.6.2007 18:18
Íslenskt lyfjafyrirtæki vex hratt á Spáni Íslenska lyfjafyrirtækið Invent Farma á Spáni hefur vaxið gríðarlega frá því Íslendingar tóku yfir rekstur þess. Forkólfar fyrirtækisins fullyrða að fyrirtækið tvöfaldist að stærð á næstu þremur árum. Invent Farma vinnur að lyfjaþróun, auk þess að framleiða hráefni til lyfjagerðar. Fyrirtækið sérhæfir sig einnig í framleiðslu samheitalyfja og í markaðssetningu þeirra. 9.6.2007 18:18
Erlent vinnuafl heldur ferðaþjónustunni gangandi Nærri má geta að ferðaþjónustu á Íslandi sé haldið gangandi með erlendu starfsfólki. Í sumum tilvikum er hlutfall erlendra starfsmanna á hótelum hér á landi um 90 prósent. Von er á góðu ferðasumri. 9.6.2007 18:16
Leitar manns vegna tilraunar til nauðgunar Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir vitnum að tilraun til nauðgunar sem átti sér stað á Hverfisgötu á móts við Þjóðleikhúsið um sexleytið í morgun. 9.6.2007 18:12
Skrá boltabullur í gagnagrunn í Danmörku Von er á lagafrumvarpi í Danmörku sem heimilar yfirvöldum að skrá allar fótboltabullur í landinu í sameiginlegan gagnagrunn. Fram kemur á vef Politiken að markmiðið sem slíkum gagnagrunni sé að útiloka allar bullur frá dönskum knattspyrnuleikjum en þær hafa látið til sín taka undanfarin misseri. 9.6.2007 17:37
Tugir handteknir í mótmælum gegn samkynhneigðum í Rúmeníu Tugir manna voru handteknir í Búkarest í Rúmeníu þar sem þeir reyndu að stöðva réttindagöngu samkynhneigðra í borginni í dag. Um fimm hundruð manna hópur samkynhneigðra gekk um götur borgarinnar og krafðist jafnra réttinda á við gagnkynhneigða í landinu. 9.6.2007 17:23
Í fangelsi fyrir að vera full í vinnunni í háloftunum Dómstóll í Tomsö hefur dæmt fyrrverandi flugfreyju í tveggja mánaða fangelsi fyrir að vera ölvuð í vinnunni. Eftir því sem fram kemur á vef norska blaðsins Aftenposten voru það farþegar í vél rússneska flugfélagsins Aeroflot á leið frá í Rússlandi til Tromsö sem tóku eftir því að ein flugfreyjan var við skál. 9.6.2007 17:03
Bústaðavegur lokaður vegna bílveltu Bústaðavegur er lokaður vegna bílveltu sem varð við Ásgarð á fjórða tímanum. Kona sem var ein í bílnum komst að sjálfsdáðum út úr honum og mun ekki vera alvarlega slösuð. Vegfarendum er bent á að velja aðrar leiðir til aksturs en Bústaðaveginn næstu klukkustundina. 9.6.2007 16:55
Tími til kominn að Kosovo fái sjálfstæði George Bush Bandaríkjaforseti sagði í dag að tími væri kominn til að tryggja Kosovo-héraði sjálfstæði í samræmi við áætlanir Sameinuðu þjóðanna. Þessi orð lét hann falla á blaðamannafundi eftir fund með Romano Prodi, forsætisráðherra Ítalíu, í Róm í dag. 9.6.2007 16:30
Á adamsklæðunum til stuðnings hjólreiðum Umhverfisverndarsinnar víða um heim köstuðu í dag klæðum og skelltu sér í hjólreiðatúr til þess að taka þátt alþjóðlega nektarhjólreiðadeginum. Með uppátækinu vildi fólkið hvetja fleiri til að hjóla og nýta þannig umhverfisvænan samgöngumáta. 9.6.2007 16:03
Háskólum mismunað eftir rekstrarformi Háskólar á Íslandi sitja ekki við sama borð gagnvart stjórnvöldum því þeim er mismunað fjárhagslega eftir rekstrarformi, sagði Þorsteinn Gunnarsson, rektor Háskólans á Akureyri sem í dag brautskráði vel á fjórða hundrað kandídata. 9.6.2007 15:41
Yfirheyrslur að hefjast yfir umsátursmanni Lögreglan á Vestfjörðum er að hefja yfirheyrslur yfir karlmanni á sextugsaldri sem handtekinn var í nótt eftir umsátur við hús í Hnífsdal. Eins og fram hefur komið í fréttum í dag er maðurinn grunaður um að hafa skotið í átt að konunni sinni sem flýði út úr íbúð þeirra. 9.6.2007 15:06
Grunnskólar og nemar verðlaunaðir fyrir góða frammistöðu Grandaskóli, Víkurskóli, Öskjuhlíðarskóli, Húsaskóli, Laugarnesskóli og Foldaskóli hlutu í dag hvatningarverðlaun menntaráðs Reykjavíkurborgar sem veitt voru í fimmta sinn í dag. Þar að auki fengu þrjátíu nemendur nemendaverðlaun ráðsins. 9.6.2007 14:57
Segir virkjanir borga sig upp á 15-16 árum Orkuveita Reykjavíkur segir að virkjanir hennar borgi sig upp á 15 til 16 árum og mótmælir þannig þeirri frétt Fréttablaðsins í dag að virkjanirnar borgi sig ekki upp á 25 árum með raforkusölu til álversins í Helguvík miðað við tíu prósenta arðsemiskröfu borgarinnar. 9.6.2007 14:45
Rússar ítreka andstöðu sína við eldflaugavarnarkerfi Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, ítrekaði í dag varnaðarorð rússneskra stjórnvalda vegna fyrirhugaðs eldflaugavarnarkerfis Bandaríkjamanna í Austur-Evrópu. Hvatti hann Bandaríkjamenn til að fresta allri uppbyggingu kerfisins til frekari rannsókna, ellegar gæti það flækt alvarlega deiluna við Írana um kjarnorkuáætlun þeirra. 9.6.2007 14:18
Áttuðu sig ekki á smæð Danmerkur Aganefnd Knattspyrnusambands Evrópu féll á landafræðiprófinu þegar hún ákvað að refsa danska knattspyrnusambandinu fyrir ólætin í leik Dana og Svía á Parken í Kaupmannahaöfn um síðustu helgi. 9.6.2007 13:49
Sex fangar drepnir í árás á búðir Bandaríkjamanna í Írak Sex fangar eru látnir og að minnsta kosti 50 særðir eftir að árás var gerð á fangabúðir Bandaríkjanna í suðurhluta Íraks í dag. Eftir því sem talsmaður Bandaríkarhers greinir frá skutu uppreisnarmenn sprengjum inn í Bucca-búðirnar en þar og í öðrum fangabúðum Bandaríkjamanna nærri Bagdad er 16 þúsund föngum haldið. 9.6.2007 13:22
Óveður herjar á íbúa í austurhluta Ástralíu Fimm eru látnir og tólf skip hafa strandað í miklu óveðri sem gengið hefur yfir austurhluta Ástralíu. Óttast er að tala látinna eigi eftir að hækka þar sem að minnsta kosti þriggja er saknað eftir óveðrið. 9.6.2007 13:06
Erfiðlega gekk að gefa skipi Eimskips nafn Ekki tókst að mölva kampavínsflöskuna í fyrstu atrennu við skírn á nýju frystiskipi Eimskips í Sundahöfn í gær. Forstjóri Eimskips segir að fall sé fararheill. 9.6.2007 12:45
Hægt að hlusta á Vatnajökul Nú er hægt að fylgjast með hlýnunar jarðar í gegnum símann. Katie Paterson, skoskur listamaður, hefur komið hljóðnema fyrir í vatni við rætur Vatnajökuls. Hún segir loftslagsbreytingar hafa alvarleg áhrif á Vatnajökul en verkefnið vera mest um það hvernig mikilfengleiki jökulsins er að hverfa. 9.6.2007 12:19
Vilja aflétta trúnaði af raforkuverði Meirihluti stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur vill gjarnan aflétta trúnaði af raforkuverði til að koma í veg fyrir ranghugmyndir en fullyrðir að orkusölusamningar vegna Helguvíkurálvers séu þeir hagstæðustu sem fyrirtækið hafi gert. 9.6.2007 12:19
Bush í Róm Bush, Bandaríkjaforseti, kom í Vatíkanið í Róm í morgun til fundar við Benedikt páfa sextánda. Bush mun einnig funda með Prodi, forsætisráðherra Ítalíu. Leynifangelsi og fangaflug verða ekki rædd við Prodi þó réttarhöld tengd séu hafin á Ítalíu. 9.6.2007 12:12
Auglýsingar vegna Coke Zero í bága við siðareglur SÍA Siðanefnd Sambands íslenskra auglýsingastofa hefur komist að þeirri niðurstöðu að auglýsingar í tengslum við herferð Vífifells fyrir gosdrykkinn Coke Zero hafi brotið í bága við siðareglur sambandsins. 9.6.2007 12:08
Gætu átt rétt á allt að einni milljón króna Íslenskar konur sem fengu sílikonfyllingar í brjóst frá framleiðandanum Dow Corporation fyrir árið 1992 eiga rétt á að lámarki um 78 þúsund krónur í bætur. 65 konur hafa lagt fram kröfu um skaðabætur frá fyrirtækinu. 9.6.2007 11:52
Segjast hafa fellt 30 Tígra Talsmenn stjórnarhersins á Srí Lanka segjast hafa fellt að minnsta kosti þrjátíu menn úr liði Tamíltígra í áhlaupi á búðir uppreisnarmannanna á austurhluta eyjarinnar. 9.6.2007 11:50
Grunaður um að hafa skotið í átt að konunni sinni Eiginkona mannsins, sem handtekinn var í húsi í Hnífsdal í nótt eftir umsátur, hlaut áverka á andliti. Hann er grunaður um að hafa skotið að henni. Maðurinn, sem er á sextugsaldri, var mjög ölvaður. 9.6.2007 11:44
Ný ríkisstjórn mun eiga gott samstarf við Alcoa Geir Haarde forsætisráðherra lofar Alcoa að núverandi ríkisstjórn muni eiga jafngott samstarf við fyrirtækið og sú fyrri. Þetta kom fram í erindi forsætisráðherra á opnunarhátíð nýs álvers Fjarðaáls í Reyðarfirði sem er opnað með formlegum hætti í dag. 9.6.2007 11:20
Geimskot gekk snuðrulaust fyrir sig Geimskultunni Atlantis var skotið á loft frá Canaveral-höfða á Flórída í gær. Þetta er fyrsta geimskot Geimferðastofnunar Bandaríkjanna, NASA, á þessu ári. 9.6.2007 11:00
Dauðarefsing afnumin í Rúanda Þjóðþing Rúanda samþykkti í gærkvöld að afnema dauðarefsingu í landinu og taka í staðinn upp lífstíðarfangelsi. Með því er búist við að skriður komist á mál á hendur mönnum sem sakaðir eru um aðild að þjóðarmorðunum í Rúanda árið 1994 þar sem um 800 þúsund manns voru drepnir á um 100 dögum. 9.6.2007 10:44
Segja Tyrki hafa gert árásir á norðurhluta Íraks Írakar segja Tyrki hafa gert ítrekaðar flugskeytaárásir á norðurhluta Íraks í vikunni. Utanríkisráðherra Íraks hefur sent Tyrkjum mótmælabréf vegna þessa. 9.6.2007 10:30
Opnunarhátíð álvers Alcoa í Reyðarfirði Nýtt álver Fjarðaáls í Reyðarfirði verður opnað með formlegum hætti á mikilli hátíð í dag. Opnunarhátíðin hófst nú klukkan tíu í Fjarðabyggðarhöllinni á Reyðarfirði 9.6.2007 10:15
Bush til fundar við páfa George Bush Bandaríkjaforseti kom í Vatíkanið í morgun til fundar við Benedikt páfa sextánda. Þetta er fyrsti fundur þeirra. Búist er við að páfi ræði við forsetann um stríðið í Írak og vanda kristinna þar í landi. 9.6.2007 09:52
Putin reiðubúin að deila upplýsingum með bandaríska hernum Vladimir Putin, forseti Rússlands, sagðist í dag tilbúinn að deila upplýsingum úr ratsjárstöð þeirra í Aserbaídsjan með bandaríska hernum. 8.6.2007 22:17
Húðflúraður í beinni Í morgun hófst alþjóðleg Húðflúrhátíð á skemmtistaðnum Grand Rokk. Oddur Ástráðsson úr Íslandi í dag lét húðflúra sig í beinni útsendingu. Honum vafðist ekki tunga um tönn þegar hann tók viðtal á meðan dýrindis málverk var flúrað á handlegg hans. 8.6.2007 20:33