Erlent

Átök milli mótmælenda og lögreglu í Róm

MYND/AP

Til átaka kom á milli lögreglu og andstæðinga George Bush Bandaríkjaforseta í Róm í dag þar sem Bush er í heimsókn. Um tólf þúsund manns tóku þátt í mótmælum gegn stríðunum í Írak og Afganistan og stefnu bandarískra stjórnvalda í umhverfismálum. Enn fremur létu mótmælendur í ljós andstöðu sína við fyrirhugaða stækkun herstöðvar Bandaríkjamanna nærri borginni Vicenza á Norðaustur-Ítalíu.

Flestir mótmælendanna voru til friðs en nokkur hópur grýtti lögreglu með flöskum og steinum og olli skemmdum á munum á götum úti. Lögregla svaraði með táragasi. Bush hefur í dag rætt við Benedikt sextánda páfa og Romano Prodi, forsætisráðherra Ítalíu, um um heimsmálin, þar á meðal ástandið í Írak.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×