Fleiri fréttir

Tugir falla í loftárás

Pakistanar segjast hafa fellt fimmtíu vígamenn í hörðum loftárásum sem þeir gerðu á þjálfunarbúðir al-Kaída í Pakistan, nærri landamærunum að Afganistan. Meðal þeirra látnu eru að sögn Úsbekar, Arabar og Tjsetsjenar.

Maður lést í átökum við lögreglu

Þrjátíu og þriggja ára gamall karlmaður lést í átökum við lögregluna í Keflavík síðdegis í gær að því er segir á vefsíðu embættisins. Klukkan rúmlega 17 var tilkynnt um mann sem var illa á sig kominn á gangi í Keflavík. Maðurinn virtist vera í annarlegu ástandi og var færður til lögreglustöðvar.

Bandaríkin munu bíða ósigur

Bandaríkin eru við það að bíða mikinn ósigur í Afganistan og Írak. Þetta segir næstæðsti maður al-Kaída samtakanna, Ayman al-Zawahri, í nýrri myndbandsupptöku sem sjónvarpsstöðin al-Jazeera birti í gær.

Gæsluvarðhaldsúrskurður staðfestur

Hæstiréttur staðfesti í gær gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tuttugu og fimm ára gömlum manni sem er grunaður um að hafa veitt öðrum manni alvarlegan áverka með öxi á veitingastað í Hafnarfirði í byrjun mánaðarins.

Varað við sprengjunni

Varað var við bílsprengjunni sem sprengd var við ástralska sendiráðið í Indónesíu í gær áður en hún sprakk. Lögreglan í Djakarta fékk sms-sendingu þar sem þess var krafist að Abu Bakar Bashir, andlegum leiðtoga íslömsku öfgasamtakanna Jemaah Islamiah, yrði sleppt.

Meðsekir en hvorugur sekur

Rannsóknardeild lögreglunnar í Reykjavík fékk heldur óvenjulegt mál til rannsóknar í gær þar sem enginn virðist sekur en allir meðsekir. Málið snýst um það að blaðamaður DV fékk lásasmið til að brjótast inn í mannlausa íbúð fyrir sig, án þess að hafa þurft að gefa lásasmiðnum viðeigandi upplýsingar um sig að sögn blaðamanns.

Fellibylur á leið til Jamaíka

Jamaíka-búar búa sig nú í ofboði undir öflugasta fellibyl ársins, Ívan, en hann þokast nær Karíbafinu. Almenningur hamstrar birgðir og neglir fyrir glugga í von um að takmarka skemmdir en vindhraðinn nær allt að 240 kílómetra hraða á klukkustund.

Fleiri en nokkru sinni fyrr

Mun fleiri útlendingar en nokkru sinni fyrr ætla að koma hingað á Iceland Airwaves tónlistarhátíðina en nokkru sinni fyrr, að sögn Icelandair sem skipuleggur hátíðina ásamt ýmsum samstarfsaðilum. Um það bil eitt þúsund útlendingar hafa þegar tryggt sér aðgang og forsala miða hefst hér á landi í dag.

Óvíst um fjölda fátæklinga

Norsk stjórnvöld og Evrópusambandið greinir á um tölu fátæklinga í Noregi. Stjórnvöld telja að um níutíu þúsund Norðmenn lifi undir fátæktarmörkum en sérfræðingar í Brussel telja að þeir séu fjórfalt fleiri, eða um 360 þúsund.

Þjófurinn enn í bílnum

Brotist var inn í tvo bíla í austurborginni í nótt og útvarpstækjum og geislaspilurum stolið úr þeim. Í báðum tilvikum brutu þjófar rúður í bílstjórahurðinni til að komast inn. Í síðara tilvikinu var þjófurinn í bílnum þegar lögregla kom á vettvang en hins vegar voru hljómtækin horfin úr bílnum þannig að fleiri hafa verið í vitorði.

Ufsinn á 125 þúsund krónur

Þýskir ferðamenn fengu nýverið himinháar sektir fyrir eins konar landhelgisbrot í Noregi þegar þeir renndu í grandaleysi fyrir ufsa, sér til matar, í friðsælum norskum firði. Í firðinum eru líka laxeldiskvíar og eru veiðar stranglega bannaðar í grennd við þær þar sem ferðamenn hafa oftar en ekki látið öngla sína detta innan kvínna í von um lax á öngla sína.

2 látnir í lestarslysi í Svíþjóð

Að minnsta kosti tveir eru látnir í alvarlegu lestarslysi sem varð í suðurhluta Svíþjóðar í morgun. Lítil lest sem var á leið frá Karlskrona til Kristianstad rakst á vörubíl sem einhverra hluta vegna hafði verið skilinn eftir á lestarteinunum. Bílstjóri vörubílsins var ekki í honum þegar slysið varð og er nú yfirheyrður af lögreglu.

Breskt par drepið í Taílandi

Lögregla í Taílandi leitar að morðingja ungs bresks pars á bakpokaferðalagi í landinu. Svo virðist sem parið hafi lent í rifrildi við eiganda veitingahúss þar sem þau snæddu. Eigandinn er jafnframt einkaspæjari í Taílandi og hann virðist hafa hlaupið á eftir parinu, skotið manninn fyrst til bana og keyrt síðan á konuna og skotið.

Óvíst hver rannsakar málið

Ríkissaksóknari ákveður innan stundar hvaða lögregluembætti verður falið að rannsaka tildrög þess að þrjátíu og þriggja ára karlmaður lést í Keflavík síðdegis í gær eftir snörp átök við lögreglumenn þar.

Hausthátíð í Vesturbæ

Um næstu helgi fer fram árleg hausthátíð í Vesturbænum. Hátíðin fer fram á KR svæðinu laugardaginn 11. september þar sem nýr gerfigrasvöllur Kr verður vígður. Sunnudaginn 12. september er dagskrá í Vesturbæjarlaug, Neskirkju og á svæði við skátaheimili Ægisbúa og íþróttahús Hagaskóla.

Þjóðarmorð í Súdan segir Powell

Hvenær eru fjöldamorð þjóðarmorð og hvenær ekki? Það er spurningin sem vestrænar þjóðir og yfirvöld í Súdan deila um þessa dagana. Colin Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, lýsti því yfir í gær að framferði Súdanstjórnarinnar í Darfur væri ekkert annað en þjóðarmorð og hvatti þjóðir heims til að veita fé í friðargæslu í héraðinu.

Öryrkjum svarað 1. október

Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra vill ekki upplýsa hvort staðið verði við samkomulag hans við öryrkja um hækkun örorkulífeyris á næstu mánuðum. Hann segir að það komi í ljós 1. október þegar fjárlög næsta árs verði kynnt.

Íslendingar stjórni veiðunum

Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, stærsta sjávarútvegsfyrirtækis landsins, segir algert skilyrði fyrir inngöngu í Evrópusambandið að Íslendingar stjórni algerlega veiðum á eigin fiskimiðum.

Settu óvænt í risasíld

Fjölveiðiskipið Vilhelm Þorsteinsson setti óvænt í risastóra síld á Halamiðum í gær og bíða Guðmundur Þ. Jónsson skipstjóri og hans menn nú eftir að lokið verði við að fullvinna aflann svo hægt verði að halda veislunni áfram.

Lögreglan í Reykjavík með málið

Ríkissaksóknari hefur falið embætti lögreglustjórans í Reykjavík að rannsaka tildrög þess að þrjátíu og þriggja ára karlmaður lést í Keflavík síðdegis í gær eftir snörp átök við lögregluþjóna. Maðurinn var sonur manns sem handtekinn var í bænum í gærdag í annarlegu ástandi.

Sekt fyrir kannabisræktun

Tveir menn á þrítugsaldri voru dæmdir til 200.000 króna sektar hvor í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun fyrir að hafa haft í fórum sínum 89 kannabisplöntur, rúmlega átta grömm af maríjúna og sjö grömm af kannabisfræjum.

Vill Tyrki ekki í ESB

Fjármálaráðherra Austurríkis sagðist í dag vera á móti inngöngu Tyrklands í Evrópusambandið því landið væri „ekki tilbúið fyrir Evrópu“. Umsókn um formlegar samningaviðræður um inngöngu Tyrkja í sambandið eru á borði stjórnarinnar.

Danskur dýraníðingur gengur laus

Fyrirtæki, einstaklingar og dýraverndunarsamtök í Danmörku hafa tekið höndum saman og heitið andvirði einni og hálfri milljón íslenskra króna til þess sem veitt getur upplýsingar sem leiða til handtöku dýraníðings sem gengur laus á Jótlandi.

Breskir feður þykjast sofa

Helmingur breskra feðra sefur eða þykist sofa þegar lítil börn þeirra byrja að gráta á nóttunni. Þetta kemur fram í nýrri könnun sem breska tímaritið <em>Mother and Baby</em> hefur látið gera. Það er ekki nóg með að 52 prósent feðra liggi sem fastast þó barnið gráti, 22 prósent til viðbótar drattast ekki á fætur fyrr en móðirin er komin fram úr.

Standa við loforð um fasteignalán

Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra segir að Framsóknarflokkurinn muni standa við kosningaloforð sitt um að hækka lán Íbúðarlánasjóðs upp í 90 prósent af íbúðarverði á næstunni. Þetta kom fram í ræðu Halldórs sem hann hélt á haustfundi landsstjórnar og þingflokksins í Borgarnesi í dag.

Foreldrar ánægðir með leikskólana

Foreldrar barna í leikskólum Reykjavíkur eru mjög ánægðir með þjónustu leikskólanna ef marka má niðurstöður könnunar sem gerð var síðastliðið vor. Í fréttatilkynningu Leikskóla Reykjavíkur kemur fram að 98% foreldra telja barn þeirra mjög eða frekar ánægt í leikskólanum.

Penný varð að 20 milljónum

Maður sem fór út að viðra hundinn sinn á dögunum í Bedfordskíri í Englandi fann eitt penný á götunni, beygði sig niður og tók það upp. Þessi hnébeygja borgaði sig heldur betur því nú hefur komið í ljós að pennýið er ævagamalt og ber nafn Kóenwulfs sem ríkti í Mercíu-héraði í Mið- Englandi á níundu öld.

Ráðherrarnir hans Davíðs

Davíð Oddsson hefur myndað fjórar ríkisstjórnir frá því að hann var kjörinn á þing í apríl 1991. Tuttugu og níu ráðherrar hafa setið í stjórnum hans, þar af sjö konur og aðeins tvær úr hans eigin flokki. Tólf eru hættir í pólitík og gegna flestir þeirra embættum á vegum hins opinbera. Halldór Ásgrímsson hefur setið manna lengst í stjórn undir forsæti Davíðs. </font /></b />

Hlýtt, taktfast og róstursamt

Óvenjuleg veðursæld, tíðir hljómleikar og umræður um fjölmiðlalög einkenndu sumarið 2004. Forsetinn var líka í sviðsljósinu, bæði vegna lagasynjunar og endurkjörs. </font /></b />

Þetta er hátíðisdagur

Skaftholtsréttir í Gnúpverjahreppi og Hrunaréttir voru í gær og í dag er réttað í Reykjarétt á Skeiðum og í Tungnarétt í Biskupstungum.

Börnunum líður vel í leikskólanum

Um 98 prósent foreldra barna í leikskólum Reykjavíkur telja að barn þeirra sé mjög eða frekar ánægt í leikskólanum. Þetta kemur fram í nýrri könnun sem leikskólarnir létu gera.

Ráðherra vill endurbætur

Það er fjarri því að Sundabrautin leysi þann umferðarvanda sem er á gatnamótum Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar og því nauðsynlegt að fara út í framkvæmdir við gatnamótin, að sögn Sturlu Böðvarssonar samgönguráðherra.

Þrír karlmenn taldir líklegir

Þrír menn hafa óopinberlega lýst því yfir að þeir hafi hug á að sækja um stöðu rektors Háskóla Íslands þegar Páll Skúlason lætur af störfum næsta vor.

Síamstvíburar aðskildir

Tveggja ára gamlir síamstvíburar sem fæddust með samvaxin höfuð gætu farið að ganga einir fyrir áramót. Tvíburarnir, sem eru frá Filippseyjum, fóru í aðgerð í New York fyrir fimm vikum og heppnaðist hún mjög vel.

Fáar konur í áhrifastöðum

Einungis tveir af tíu æðstu stjórnendum skóla á háskólastigi í landinu eru konur. Á meðal hóps kvenna í Háskóla Íslands er vilji til að úr þessu verði bætt og er hafin leit að frambærilegri konu til að bjóða sig fram til rektors Háskóla Íslands.

Leitað að konu í stöðu rektors

Nú þegar Páll Skúlason hefur gefið það út að hann hyggist ekki sækjast eftir endurkjöri sem rektor háskóla Íslands hafa þær raddir gerst æ háværari að kona verði kjörin í starf rektors en kona hefur aldrei gegnt því starfi.

5 ára stúlka lifði af sprenginguna

Fimm ára áströlsk stúlka, sem talið var að hryðjuverkamenn hefðu drepið í árás þeirra á ástralska sendiráðið í Indónesíu í gær, er á lífi. Móðir hennar lést í árásinni.

Rannveig svarar ekki

Fréttastofa Stöðvar 2 reyndi enn á ný að ná tali af Rannveigu Rist, formanni stjórnar Símans, í dag vegna kaupa fyrirtækisins á hlut í sjónvarpsstöðinni Skjá einum. Ritari Rannveigar hjá Álverinu í Straumsvík segir að hún vísi öllum spurningum vegna málsins til forstjóra eða upplýsingafulltrúa Símans.

Vara við borgarastríði

Ísrael er á barmi borgarastríðs vegna áforma Ariels Sharon forsætisráðherra um að flytja ísraelska landtökumenn frá Gaza-svæðinu að sögn forystumanna landtökumanna.

Létust í lestarslysi í Svíþjóð

Tveir létust og 47 slösuðust, þar af fjórir alvarlega, þegar lest lenti í árekstri við flutningabíl í Nosaby skammt frá Kristianstad í Suður-Svíþjóð. Einum af þremur vögnum lestarinnar hvolfdi við áreksturinn og var í fyrstu óttast að fólk kynni að hafa lent undir vagninum. Síðar um daginn kom þó í ljós að svo hafði ekki verið.

Málaliði sakfelldur

Breski málaliðinn Simon Mann, sem stjórnvöld í Miðbaugs-Gíneu sökuðu um að leiða hóp málaliða sem áttu að steypa þeim af stóli, hefur verið dæmdur í sjö ára fangelsi fyrir að reyna að kaupa vopn ólöglega. Dómurinn var kveðinn upp í fangelsi í Simbabve en í honum var ekkert tekið á ásökunum um fyrirhugað valdarán.

Lést í höndum lögreglunnar

"Ég sá lögreglubíla og fór út á götu til að athuga hvað væri að gerast, þá sá ég hvar löggan veitti manninum hjartahnoð og reyndi að lífga hann við," segir Linda Björk Gylfadóttir nágranni 33 ára gamals manns sem lést í átökum við lögregluna í Keflavík um klukkan hálf sex á sunnudag. Lögreglan í Reykjavík rannsakar málið.

Fjölmenni á slóð lykilsins

Spennusagan Da Vinci lykillinn selst ekki bara eins og heitar lummur heldur hafa margir lesendur hrifist svo mjög að þeir leggja á sig löng ferðalög til að sjá staðina sem koma við sögu í bókinni. Nú er svo komið að nokkur fyrirtæki bjóða upp á skipulagðar ferðir fyrir þá sem vilja komast að því hversu mikið í bókinni á við rök að styðjast.

Heimurinn öruggari en enn er hætta

"Við búum enn í hættulegu umhverfi. Það er enn til fólk sem vill vinna Bandaríkjunum mein," sagði Colin Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna. Hann segir Bandaríkjamenn þó öruggari nú en um það leyti sem hryðjuverkaárásirnar voru gerðar í New York og Washington fyrir þremur árum.

Ráðherra sakar hagfræðinga um rugl

Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra brást öndverður við sparnaðarhugmynd hagfræðings við háskóla Íslands og bað kennara við viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands að "vera frekar í hagfræði en pólitík.

Sjá næstu 50 fréttir