Íslendingar stjórni veiðunum 10. september 2004 00:01 MYND/E.Ól
Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, stærsta sjávarútvegsfyrirtækis landsins, segir algert skilyrði fyrir inngöngu í Evrópusambandið að Íslendingar stjórni algerlega veiðum á eigin fiskimiðum. Hann segist ekki sjá þess nein merki að Evrópusambandið verði við þeirri kröfu og hann tekur undir gagnrýni Halldórs Ásgrímssonar á Evrópusambandið á sjávarútvegsráðstefnu sem haldin var á Akureyri í fyrradag. Þorsteinn segist sjá fyrir sér að forræðið yfir stjórnun fiskveiða fari frá Íslendingum ef þeir ganga í ESB og því komi innganga ekki til greina á þessu stigi. Hann segir fiskveiðistjórn samdandsins eiginlega tvískipta. Annars vegar sé um að ræða stjórnun uppsjávar- og strandveiða þar sem hvatt hefur verið til að menn stækki flotann, aðallega í síðarnefnda flokknum, þótt hann væri of stór fyrir. Þorsteinn segir þetta hafa orsakað eilíft rifrildi á milli landanna. Hins vegar sé um að ræða veiðar utan lögsögu ESB, sem Samherji hefur meðal annarra tekið þátt í, og þar hefur sambandið stjórnað veiðunum ágætlega að sögn Þorsteins. Aðspurður hvað þurfi að breytast svo ásættanlegt sé fyrir Íslendinga að setjast að samningaborði með hugsanlega aðild í huga segir Þorsteinn að Íslendingar verði hreinlega að hafa stjórn á sjávarútveginum í landinu vegna mikilvægis hans fyrir þjóðina. Hann sér ekki fyrir sér að afstaða ESB muni breytast í þeim efnum. Hægt er að hlusta á viðtal við Þorstein Má Baldvinsson úr hádegisfréttum Bylgjunnar með því að smella á hlekkinn hér að neðan.
Fréttir Innlent Mest lesið Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Erlent „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Innlent Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Orbán hættir á þingi Erlent Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Innlent Fleiri fréttir Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Sjá meira