Fleiri fréttir

Leitar álits Umboðsmanns Alþingis

Helga Jónsdóttir borgarritari ætlar að leita álits umboðsmanns Alþingis á ráðningu í embætti ráðuneytisstjóra félagsmálaráðuneytisins. Hún gefur lítið fyrir rökstuðning ráðherra um stöðuveitinguna.

Árni Johnsen vill jökulturn

Árni Johnsen, ráðgjafi Vesturbyggðar, kynnti bæjarstjórn á miðvikudag tillögur sínar um átak í ferðaþjónustu og atvinnumálum í Vesturbyggð. Bæjarstjórn er bundin trúnaðar vegna efnis tillagna þingmannsins fyrrverandi en á meðal þeirra er að finna einstaklega nýstárlega hugmynd um að reist verði háhýsi í Flókalundi í Vatnsfirði.

Kennir lögreglu um dauðsfallið

Anna Þorbergsdóttir, móðir Keflvíkingsins Bjarka Hafþórs Vilhjálmssonar, segir lögregluna í Keflavík bera ábyrgð á því að Bjarki lést í fyrradag.

Neyðaropnanir standa með lásasmiði

"Ég stend með Gústa en það næst ekki í hann," segir Grétar Eiríksson lásasmiður sem rekur Neyðaropnanir ehf. Gústi er maður á hans vegum sem hleypti blaðamanni DV inn í íbúð sem hann átti ekki án þess að biðja hann um sannanir fyrir því að hann byggi þar.

Setur skilyrði fyrir sölu Símans

Framsóknarflokkurinn setur það skilyrði fyrir sölu Landssímans að lokið verði uppbyggingu dreifikerfisins þannig að landsbyggðin öll hafi aðgang að nútímafjarskiptum. Þá er rætt um að byrjað verði á því að bjóða almenningi að kaupa hlutabréf í Símanum. Þetta kom fram á fundi framsóknarmanna í Borgarnesi í dag.

Gatnakerfi Reykjavíkur sprungið

Gatnakerfið í Reykjavík er sprungið og annar ekki hratt vaxandi umferðarþunga. Þetta hefur leitt til stöðugrar fjölgunar umferðarslysa ár eftir ár, að mati Sjóvár-Almennra. Lélegar merkingar á svæðum þar sem viðgerðir standa yfir auka slysatíðni mjög.

Ekki misst úr réttir í 80 ár

Loftur Eiríksson bóndi í Steinsholti í Gnúpverjahreppi hefur ekki misst úr réttum síðan hann var þriggja eða fjögurra ára. Hann verður 83 ára í mánuðinum.

Afstýrði verkfalli í Hjallastefnu

Ekki kemur til verkfalls í Barnaskóla Hjallastefnunnar við Vífilsstaðaveg í Garðabæ. Fulltrúar Félags grunnskólakennara og Hjallastefnunnar ehf. framlengdu fyrri kjarasamning með grunnhækkun á launum í gær.

Börn á biðlista eftir daggæslu

Börnum er mismunað þar sem þau komast ekki öll að í daggæslu á frístundaheimilum Íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkur eftir skóla, segir móðir sjö ára drengs. Æskulýðsfulltrúi ÍTR segir starfsfólk skorta sem sé eina fyrirstaða þess að börnin komist að.

Bush með gott forskot

Bush Bandaríkjaforseti mælist með nokkuð öruggt forskot á keppinaut sinn, John Kerry, í nýrri fylgiskönnun vegna forsetakosninganna sem birt var í Bandaríkjunum í dag. Bush fengi fimmtíu og tvö prósent atkvæða samkvæmt henni en Kerry fjörutíu og þrjú prósent. Fylgisaukning Bush er þökkuð flokksþingi repúblikana í fyrri viku.

Átak gegn innbrotum

Algengast er að innbrotsþjófar láti til skarar skríða í Árbæjar- og Höfðahverfi. Innbrot í bíla eru algengust og þjófarnir oftast ungir karlar. Þetta er meðal þeirra upplýsinga sem Lögreglustjórinn í Reykjavík hefur aflað í tengslum við átak um að fækka innbrotum.

Flugturninum breytt í safn?

Það yrði menningarsögulegt stórslys ef gamli flugturninn á Reykjavíkurflugvelli yrði rifinn. Þetta segja breskir herflugmenn sem flugu á Íslandi á stríðsárunum. Þeir hvetja til þess að turninum verði breytt í safn. 

Fara þrjú til Aþenu

Landslið Íþróttasambands fatlaðra heldur til Aþenu í dag og á þriðjudaginn kemur, en þar fer fram Ólympíumót fatlaðra 17. til 28. september.

Sekt fyrir kannabisræktun

Tveir menn á þrítugsaldri voru í gær dæmdir til að greiða hvor um sig 200 þúsund krónur í sekt fyrir að rækta kannabisplöntur í Súðarvogi í Reykjavík. Lögreglan í Reykjavík lagði hald á plöntur, 8,39 grömm af maríjúana og 6,96 grömm af kannabisfræjum í húsnæði mannanna í byrjun júní í fyrra.

Reglur um smitgát brotnar

Embætti yfirdýralæknis hefur borist til eyrna að brotalamir kunni að vera í flutningum sauðfjár milli landshluta í sláturhús, segir Sigurður Sigurðarson, sérfræðingur embættisins í sauðfjársjúkdómum. Hann segir að vegið sé að vörnum við riðu, garnaveiki og ýmsum smitsjúkdómum sem embættið er að reyna að útrýma þegar óvarlega er farið í flutningunum.

Líklega Parvo-sýking

Út frá einkennum og niðurstöðum rannsókna á sýnum sem tekin hafa verið úr hundum sem fengið hafa illvíga niðurgangspest er líklegast að um smáveirusótt sé að ræða sem orsakast af parvo-veiru. Þetta var niðurstaða fundar sjálfstætt starfandi dýralækna, héraðsdýralækna og sérfræðinga frá Keldum í gær.

Segir fjölmiðla misnota vald sitt

Sveinbjörn Kristjánsson, fyrrverandi aðalgjaldkeri Símans, telur fjölmiðla hafa haft áhrif á niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur í Landssímamálinu. Í lesendabréfi sem hann skrifar í Fréttablaðið í dag segist hann sáttur við dóminn sem hann fékk. Hins vegar hafi aðrir hlotið harða dóma án þess að sekt þeirra væri sönnuð.

Leirbindiefni úr flugvél

Um 100 tonn af leir geta fokið af 40 ferkílómetra svæði í miðlunarlóni Kárahnjúkavirkjunar við verstu aðstæður, að sögn verkfræðings hjá Landsvirkjun. Meðal hugmynda sem eru á borði sérfræðinga til að hefta leirfokið, er að dreifa bindiefni úr flugvél yfir svæðið.

Deilt um samninga

Stjórn Sjómannasambands Íslands mótmælir í ályktun harðlega þeim vinnubrögðum sem forstjóri og eigandi útgerðarfyrirtækisins Brims hf. viðhefur gagnvart áhöfnum einstakra skipa sem fyrirtækið gerir út.

Niðurstaða ekki í sjónmáli

Samninganefnd kennara og launanefnd sveitarfélaganna funda um helgina í Karphúsinu. Finnbogi Sigurðsson formaður Félags grunnskólakennara segir á vef Kennarasambandsins viðræðurnar hafa verið gagnlegar en endanlega niðurstöðu ekki í sjónmáli.</< /> >

Rúmlega 130 börn bíða greiningar

Áætlaður biðtími eftir greiningu á Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins getur numið allt að tveimur árum. Á annað hundrað börn eru nú á biðlistum. Vonir standa til að fleiri stöðugildi fáist í nýtt viðbótarhúsnæði sem tekið var í notkun í gær. </font /></b />

Nýtt hlutverk hvalbátanna

Hvalbátarnir í Reykjavíkurhöfn gætu nýst í hvalskoðun. Það er ein hugmynda Sigurbjargar Árnadóttur og Steins Malkenes. Þau unnu skýrslu um strandmenningu sem grunn fyrir ferðaþjónustu í framtíðinni fyrir Húsafriðunarnefnd og samgönguráðuneytið.

Sægreifar Evrópu fjölmenntu

Mikið fjölmenni var á ráðstefnu Íslandsbanka um sjávarútveg á Akureyri í gær. Fulltrúar fjölmargra stórra fyrirtækja voru meðal gesta og hlýddu meðal annars á ræðu utanríkisráðherra þar sem hann fann fiskveiðistefnu Evrópusambandsins allt til foráttu.

Á brattann að sækja fyrir Kerry

Ef draga má lærdóm af forsetakosningunum fyrir átta og tólf árum er demókratinn John Kerry búinn að tapa forsetakosningunum fyrir George W. Bush Bandaríkjaforseta.

Einkavæðing Símans hafin að nýju

Einkavæðingarnefnd kom saman til fundar í gær til að hefja undirbúning að sölu ríkisins á Landssímanum. Ólafur Davíðsson, formaður nefndarinnar segir að þetta hafi verið fyrsti fundur nefndarinnar frá því í byrjun sumars.

Spánverjar fengu mest frá ESB

Spánverjar fengu allra þjóða mesta styrki frá Evrópusambandinu í fyrra en Hollendingar greiddu mest hlutfallslega í sjóði sambandsins. Fjárlög sambandsins námu alls 7.900 milljörðum króna í fyrra en af þeim fór nær fimmtungur, eða 1.400 milljarðar króna, til Spánar.

Rafeindabúnaði stolið

Brotist var inn í tvö íbúðarhús í Vesturborginni og eitt í Austurborginni í gærkvöldi og í öllum tilvikum stolið stafrænum myndavélum og öðrum dýrum rafeindabúnaði. Í einu tilvikanna var fartölvu líka stolið og hleypur andvirðið á hundruðum þúsunda króna, að mati lögreglu.

Selfluttu áttatíu nemendur

Björgunarsveitarmenn frá Hellu og Hvolsvelli selfluttu yfir áttatíu nemendur úr Rimaskóla yfir Steinholtsá í Þórsmörk í gærkvöldi, eftir að hópurinn varð innlyksa í átta klukkustundir á milli Hvannár og Steinholtsár.

Bíll franskra ferðamanna á kaf

Tveir franskir ferðamenn komust í hann krappann á Gæsavatnaleið í gær þegar bílaleigubíll þeirra fór á kaf í vatn í miklum vatnavöxtum í svonefndum Tungum, um fimmtán kílómeta austur af Nýjadal.

Fimm milljón dollara brúðkaup

Demantar og djásn voru í boði í Brúnei í nótt þar sem krónprinsinn Al-Muhtadee Billah Bolkiah gekk að eiga unnustu sína. Krónprinsinn er þrítugur en brúðurin aðeins sautján ára. Sex þúsund manns var boðið í brúðkaupsveisluna sem fór fram í aðalhöll konungsfjölskyldunnar í Brúnei, en þar er aðeins að finna 1788 herbergi.

Ók á þrjá bíla í Vesturbæ

Ölvaður ökumaður ók utan í að minnsta kosti þrjá bíla í Vesturborginni í nótt áður en lögreglan handtók hann fyrir utan heimili hans. Tilkynnt var um eina ákeyrsluna og á vettvangi fannst númeraplata af bíl mannsins, sem dottið hafði af við áreksturinn.

Rautt á sykurgums

Danir hafa nýstárlegar hugmyndir um hvernig auðvelda mætti almenningi að borða hollan og góðan mat. Neytendaráðherra Danmerkur, Henrietta Kjær, vill að matvörur verði framvegis merktar með lituðum límmiðum sem gefa eiga til kynna hversu hollur eða óhollur viðkomandi varningur er.

9 látast í bílsprengingu

Níu féllu þegar öflug bílsprengja sprakk við sendiráð Ástralíu í Jakarta í Indónesíu í morgun. yfir hundrað særðust og óttast er að tala fallina muni hækka. Lögregluyfirvöld segja þessa sprengju hafa verið mun öflugru en sprengjuna sem sprakk fyrir utan Marriott-hótelið í Jakarta í fyrra, en þá fórust tólf.

5 féllu í Fallujah

Loftárásir Bandaríkjahers á borgina Fallujah í Írak í nótt kostuðu í það minnsta fimm lífið. Læknar segja fjórtán hafa særst, þar á meðal börn undir fjögurra ára aldri. Talsmenn Bandaríkjahers segja árásirnar hafa verið gerðar á bækisstöðvar stuðningsmanna Abu Musabs al-Zarqawis, leiðtoga al-Qaeda í Írak.

Vilja herða tökin

Ísraelskar hersveitir réðust inn í palestínskar flóttamannabúðir í morgun og er stefnt að því að herða tökin þar í því augnamiði að koma í veg fyrir eldflaugaárásir á Ísrael. Tugir byssumanna börðust við hersveitirnar í Jabalya-búðunum, og er einn sagður fallinn.

Hnúfubakur aflífaður

Yfirvöld á Grænlandi hafa látið aflífa særðan Hnúfubak, sem til sást fyrir utan Uprenavik nýverið, en hnúfubakar eru al friðaðir. Skotsár var á hvalnum og töldu kunnugir að hann kveldist, svo gripið var til líknardráps. Lögregla leitar nú skyttunnar, sem særði hvalinn. </font />

Landhelgisgæslan fær nýja aðstöðu

Varðskipið Týr flutti nýtt varðskýli Landhelgisgæslunnar frá Njarðvík til Reykjavíkur í dag. Landhelgisgæslan fær nýja hafnaraðstöðu á Faxagarði þar sem varðskýlinu var komið fyrir. Fyrirhugað er að varðskýlið og nýja hafnaraðstaðan verði tekin í notkun um mánaðarmótin september-október næstkomandi.

Fleiri hryðjuverk í Rússlandi?

Lögreglan í Rússlandi fann fyrir stundu bæði sprengiefni og skammbyssu í kvikmyndahúsi í Pétursborg. Húsið var lokað vegna viðgerða og eru aðstæður að mörgu leyti svipaðar og í barnaskólanum í Beslan. Óttast er að hryðjuverkamenn hafi þar verið að undirbúa aðra árás. </font />

50 uppreisnarmenn felldir

Í það minnsta 50 íslamskir uppreisnarmenn voru drepnir af herliði Pakistana við landamæri Afganistan í dag. Herþyrlur og þotur Pakistana réðust á það sem herinn taldi vera þjálfunarbúðir fyrir erlenda hryðjuverkamenn. Búist við að tala látinna muni hækka.

Blair stokkar upp í ríkisstjórn

Tony Blair, forsætisráðherra Breta hefur stokkað upp í ríkisstjórn sinni, að því er virðist til að reyna að styrkja stöðu sína innan stjórnarinnar og ekki síður innan Verkamannaflokksins. Blair hefur fengið einn helsta stuðningsmann sinn; Alan Milburn sem áður gegndi embætti heilbrigðisráðherra, til að móta stefnu flokksins fyrir næstu kosningar.

Vilja föst mörk á þjóðgarðinn

Náttúruverndarsamtök Íslands sendu frá sér ályktun í dag þar sem þau fagna framkominni tillögu umhverfisráðherra um að fyrsti áfang í stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs verði stækkun þjóðgarðsins í Skaftafelli.

Keyrir framhjá slysstað daglega

Að minnsta kosti ellefu féllu og nokkur hundruð særðust þegar öflug bílsprengja sprakk við sendiráð Ástralíu í Jakarta í Indónesíu í morgun. Bílasprengjan sprakk við fjölfarna umferðagötu í miðborg Jakarta og til marks um það hvað sprengjan var öflug myndaðist fjögurra metra djúpur gígur þar sem bíllinn stóð.

Ný heildarþýðing biblíunnar

Ný heildarþýðing á Biblíunni kemur út eftir tvö ár. Það er heljarinnar verk að þýða Biblíuna úr frummálinu og hafa fjölmargir unnið að því síðustu tvo áratugi. Biblíufélagið hefur séð um útgáfu og dreifingu Biblíunnar allt frá árinu 1815.

Sjá næstu 50 fréttir