Fleiri fréttir

Heimildarmynd um heri

Tveir sjónvarpsmenn frá danska hernum hafa verið hér á landi undanfarna daga við tökur á heimildamynd um heri á Norðurlöndum. Þeir hafa m.a. heimsótt Varnarliðið á Keflavíkurflugvelli, dómsmálaráðuneytið, utanríkisráðuneytið og Landhelgisgæsluna.

Fálkinn styrkir fálka

Þjónustu- og tæknifyrirtækið Fálkinn ætlar að veita tveimur og hálfri milljón króna til styrktar villtum dýrum í hremmingum. Þetta er gert í tilefni af aldarafmæli fyrirtækisins. Samningur milli fyrirtækisins og Fjölskyldu- og húsdýragarðsins var undirritaður laust fyrir klukkan fimm og verður komið upp aðstöðu til þjálfunar og fleira í því skyni..

Uppfærslan boðin innanlands

Risastór hugbúnaðarviðbót við Windows XP stýrikerfið verður boðin sem innanlandsniðurhal. Viðbótin bætir öryggi stýrikerfisins og virkni Internet Explorer vafrans þannig að notendur geta slökkt á auglýsingagluggum. Þá er að ljúka íslenskun á uppfærslunni, en henni má hlaða niður síðar.

Ráðherramálið flokknum erfitt

Hópur kvenna í Framsóknarflokki þrýstir mjög á að hlutur kvenna í ráðherraliði flokksins verði ekki skertur. Vísað er í lög flokksins sem kveða á um 40 prósenta hlutfall kvenna. Formaðurinn hefur rætt við þingmenn flokksins og ákvörðunar að vænta fljótlega.

Hyggst beita Impregilo dagsektum

Staðfest hefur verið að ennþá er tvímennt í svefnskálum ítalska verktakafyrirtækisins Impregilo þrátt fyrir að herbergisstærð sé undir 8 fermetrum. Slíkt er skýlaust brot á reglugerðum og hyggst Heilbrigðisnefnd Austurlands leggja á sektir ef úrbætur verða ekki gerðar fljótlega.

Milljarða verðmæti í húfi

Íslensk stjórnvöld undirbúa nú málaferli á hendur norskum stjórnvöldum vegna yfirstandandi deilu þjóðanna um aðgang og fiskveiðirétt innan lögsögu Svalbarða. Núverandi deila snýst þó fyrst og fremst um aðgang íslenskra skipa að svæðinu og telja Íslendingar að Norðmenn brjóti þann stofnsamning sem gerður var um Svalbarða árið 1920.

Skriða í Skotlandi

Nokkrir bílar í Skotlandi hafa skolast af vegi í flóðbylgju. Allt að 20 bílar eru fastir í skriðu á svipuðum stað. Tvær þyrlur eru komnar á staðinn en miklar rigningar í Skotlandi virðast hafa hrundið skriðunni af stað. Ekki virðast þó hafa orðið nein dauðsföll í hamförunum.

Engir demantar í Eyjum

Sigurður Steinþórsson prófessor í jarðfræði í Háskóla Íslands segir að fréttir um demantafund í Vestmannaeyjum séu sennilega grín. "Vestmannaeyingar eru svo gamansamir," segir hann.

Ríkið hefur þurft að borga bætur

Ríkissjóður hefur þurft að greiða bætur vegna mistaka við útgáfu veðbókarvottorðs. Ekki var getið um á vottorðinu að jörðin væri óðalsjörð. Sýslumaðurinn í Reykjavík getur ekki útilokað að á embættið hans gætu fallið ábyrgðir vegna veðsetninga á óðalsjörðinni Brautarholti á Kjalarnesi.

Ákærður fyrir þrettán brot

Tuttugu og fjögurra ára maður sem meðal annars er ákærður fyrir rán í verslun á Laugarvatni sagðist við aðalmeðferð í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær ekki hafa beitt ofbeldi eða hótunum þegar hann framdi ránið. Maðurinn er einnig ákærður fyrir fjölda brota svo sem bílþjófnaði, fjársvik, innbrot, skjalafals, umferðarlagabrot og fíkniefnabrot.

Miðborgin á Menningarnótt

Búast má við umferðtöfum í miðborginni og nágrenni vegna dagskrár Menningarnætur á laugardag. Götum verður lokað og er fólk hvatt til að nýta sér almenningsvagna. Menningarnótt er nú haldin í níunda sinn.

Eldur í Ormi og Víglundi

Eldur var tilkynntur í vélsmiðju Orms og Víglundar í Hafnarfirði, rétt fyrir sex í kvöld. Eldur hafði komið upp í þaki hússins en ekki er enn vitað um eldsupptök. Tvö lið slökkviliðsins fóru á staðinn og réðu fljótt og vel niðurlögum eldsins. Ekki er vitað til hvort mikið tjón hefur hlotist af.

Ísland sigrar Ítali

Íslendingar sigruðu landslið Ítala í knattspyrnu í vinnáttuleik þeirra á Laugardalsvelli í kvöld. Eiður Smári Guðjohnsen skoraði fyrsta markið og Gylfi Einarsson annað markið þremur mínútum síðar þegar 20 mínútur voru liðnar af leiknum.

Gaman að vera skútuskipstjóri

Skemmtilegasta starf í heimi er að vera skipstjóri á skólaskútu sænska sjóhersins segir Mikael Hjarthammar sem þekkir það af eigin raun. Hann segist hafa gripið tækifæri til að fara til Íslands því hingað sé svo óskaplega gaman að koma.

218 ára afmæli Reykjavíkur

Reykjavíkurborg er 218 ára í dag. Þess sáust þó ekki víða merki í höfuðborginni. Hins vegar var boðið upp á tertu í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum. Þar var saman kominn dágóður fjöldi borgarbúa, sem nutu bæði góða veðursins, og annars sem garðurinn hefur uppá að bjóða.

Klink og Bank áfram í Hampiðjunni

Allt útlit er fyrir að listamennirnir í Klink og Bank verði með aðstöðu í gamla Hampiðjuhúsinu í að minnsta kosti eitt ár í viðbót. Reynslan af samstarfinu í þessum suðupotti íslenskrar listar hefur verið afar góð. Listamennirnir segja að það eina sem vanti upp á sé að fá fyrir salti í grautinn af og til.

Virkjunin fljót að greiða upp land

Það tæki Kárahnjúkavirkjun aðeins nokkra mánuði að greiða upp virði þess lands sem fer undir virkjunina, segir Landsvirkjun, ef það er tveggja milljarða króna virði eins og rannsóknir þýsks hagfræðidoktors sýna fram á.

Sadr samþykkir frið

Harðlínuklerkurinn Múktada al-Sadr hörfaði í dag ásamt fylgismönnum sínum frá mosku í borginni Najaf og lýsti því yfir að skæruliðasveitir hans ætluðu að leggja niður vopn. Harðir bardagar hafa staðið í helgu borginni Najaf í um hálfan mánuð.

Sagðist verða flokknum erfið

Siv Friðleifsdóttir hótaði því á fundi með þingkonum Framsóknarflokksins í janúar að ef hún missti ráðherrastólinn yrði hún ekki lengur hluti af liðsheildinni í flokknum. Þingflokksfundur hefur verið ákveðinn á morgun.

Mótmæla byggingu blokkar

Andstæðingar íbúðablokka, sem á að reisa á Seltjarnarnesi, saka bæjarstjórnina um sjónhverfingar við kynningu á legu blokkanna. Þeir segja að blokkirnar, sem reisa á á knattspyrnuvelli bæjarins, muni eyðileggja fallegt útsýni.

Taugaveiklun veldur olíuhækkun

Taugaveiklun er talin ein meginástæða síhækkandi olíuverðs. Sérfræðingar segja að verðið á olíufati geti enn hækkað en verðlækkun sé ekki í sjónmáli. Síðdegis var verðið á olíufatinu komið vel yfir 47 dollara og svo virðist sem það sé enn að hækka.

Uppselt á leikinn

Uppselt var á vináttulandsleik Íslands og Ítalíu í kvöld. 22.204 miðar voru seldir og er þetta aðsóknarmet eins og stefnt var að. Á annað hundrað manns sinnir öryggisgæslu á vellinum. Ítalskir fjölmiðlar gera kröfu um stórsigur hjá sínum mönnum en landsliðsþjálfari Íslands segir að strákarnir okkar eigi eftir að standa í Ítölum.

Clintonhjónin til Íslands

Bill og Hillary Clinton koma hingað til lands í heimsókn í næstu viku. Þau koma með þingnefnd sem John McCain fer fyrir. Nefnd bandarískra þungavigtarþingmanna er væntanleg hingað til lands á þriðjudaginn kemur.

Allt gekk upp

Rúmlega 20 þúsund manns sáu Íslendinga vinna stórglæsilegan sigur á landsliði Ítala á Laugardalsvelli. Aðsóknarmetið frá 1968 féll. "Það gekk allt upp," sagði Eggert Magnússon formaður Knattspyrnusambands Íslands. </font /></b />

Mikið magn vopna

Lögreglan í Reykjavík lagði í nótt hald á töluvert magn vopna og skotfæra, sem fundust við húsleit í íbúð í austurhluta Reykjavíkur. Nokkru eftir miðnætti hafði lögreglan afskipti af mönnum sem áður hafa komið við sögu hennar, þar sem þeir voru á ferð í bíl í borginni.

Árni Ragnar Árnason látinn

Árni Ragnar Árnason alþingismaður lést á líknardeild Landspítalans í gær, mánudaginn 16. ágúst, 63 ára að aldri. Árni Ragnar var fyrst kosinn á Alþingi árið 1991 sem þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Reykjaneskjördæmi.

Þriggja bíla árekstur

Harður þriggja bíla árekstur varð við gatnamót Kringlumýrabrautar og Miklubrautar á tíunda tímanum í gærkvöldi. Fjórir voru fluttir á slysadeild, þar af þrír úr einum og sama bílnum, en meiðsl þeirra reyndust minniháttar. Hins vegar varð mikið tjón á bílum og þurfti að draga þá af slysstað. Tildrög slyssins eru ókunn.

Flóð á Englandi

Hellirigning olli skyndiflóðum í Cornwall á Englandi síðdegis í gærdag með þeim afleiðingum að bjarga varð tugum manna frá heimilum þeirra, þar sem beljandi straumur umlék þau. Björgunarþyrlur sveimuðu yfir bæjum á svæðinu og björguðu fólki af þökum húsa.

Óeirðir í Venesúela

Óeirðir brutust út í Caracas, höfuðborg Venesúela í gær, eftir að ljóst varð að forseti landsins, Hugo Chaves, bar sigur úr bítum í kosningu um hvort reka ætti hann úr embætti. Svo virðist sem bæði andstæðingar og stuðningsmenn Chaves hafi gengið berserksgang í sumum hverfum borgarinnar í gær

Sprengikúluregn í Bagdad

Uppreisnarmenn skutu sprengikúlum á fjölfarinni götu í Bagdad í morgun með þeim afleiðingum að minnst fjórir létust og 24 særðust. Áður var talið að bílsprengja hefði sprungið í götunni sem er staðsett í miðborginni.

Eldur í heyrúllum

Slökkviliðið á Egilstöðum réð rétt fyrir klukkan sjö, niðurlögum elds sem upp kom í heyrúllum fyrir utan bæinn Hjaltastaði við Hjaltastaðaþinghá nú í morgunsárið. Eldurinn kom upp skammt fyrir utan fjósið á bænum á sjötta tímanum, en náði ekki að húsum við bæinn. 30 heyrúllur brunnu, en eldurinn olli ekki öðru tjóni.

Tvö ný tungl fundust

Tvö ný tungl hafa verið uppgötvuð við plánetuna Satúrnus með hjálp Cassini geimfarsins. Tunglin eru um þrjá og fjóra kílómetra að þvermáli og eru í um 200 þúsund kílómetra fjarlægð frá miðju plánetunnar. Þar með eru þekktir fylgihnettir Satúrnusar orðnir 33. Tunglin eru kölluð S/2004 S1 og S/2004 S2, til bráðabirgða en þeir eru staðsettir milli tveggja tungla, Mimas og Enceladus.

Dagný Jónsdóttir ekki sammála

Ekki eru allar framsóknarkonur sammála aðferðum hóps kvenna sem birtu í dag heilsíðuauglýsingu í Fréttablaðinu. Þar skora þær á þingflokk Framsóknarflokksins um að virða lög flokksins um jafnrétti. Þetta gera þær vegna þeirrar umræðu að Siv Friðleifsdóttir, umhverfisráðherra, muni láta af embætti þegar formaður flokksins tekur við forsætisráðuneytinu í september.

Gerðir upptækir vegna ölvunar

Danska dómsmálaráðuneytið vill gera upptæka bíla þeirra sem aka undir áhrifum áfengis. Dönsk yfirvöld hafa miklar áhyggjur af ölvunarakstri, sem er vaxandi vandamál, í landinu. Dómsmálaráðuneytið skipaði nefnd til þess að fjalla um málið og hefur hún nú lagt fram tillögur sem fela í sér stórlega hertar refsingar við ölvunarakstri.

Páfinn miðlar málum í Najaf

Sjítaklerkurinn Múktada al-Sadr hefur þegið boð Jóhannesar Páls páfa um að miðla málum í átökum uppreisnarmanna og Bandaríkjamanna, í hinni helgu borg Najaf. Boð um milligöngu í þessari deilu barst frá Páfagarði, í gær.

Betra að taka skipin frá Svalbarða

Friðrik Arngrímsson, formaður LÍÚ, segir að ástæðulaust hafi verið að halda skipum á Svalbarðasvæðinu í gær og láta nema þau á brott, úr því að íslensk stjórnvöld ákváðu að fara með málið fyrir dómstóla ef samningar næðust ekki.

Skilur ekki aðferðafræðina

Hjálmar Árnason, þinflokksformaður Framsóknarflokksins skilur ekki hvers vegna hópur framsóknarkvenna kemur skilaboðum sínum á framfæri á síðum dagblaða, fremur en að óska eftir fundi með tiltölulega fámennum þingflokki.

Mörg hundruð fá ekki skólavist

Mörg hundruð nemendur fá ekki vist í framhaldsskólum landsins í haust. Aðstoðarskólameistari Fjölbrautaskólans í Ármúla segir ástandið grafalvarlegt og vill að framhaldsskólar séu opnir jafnt nýnemum sem eldri nemum.

15 saknað í Cornwall

Fimmtán manna er enn saknað eftir skyndiflóð í Cornwall, í Englandi, síðdegis í gær. Hundruð manna tepptust í flóðunum. Flóðin komu öllum að óvörum, eftir miklar úrhellis rigningar. Vatnsflaumurinn var svo mikill og bráður, að björgunarþyrlur flughersins voru kallaðar út, til aðstoðar.

Stórstjörnur í Leifsstöð

Íslenskir ferðalangar í Leifsstöð skildu ekkert í látunum þegar ljósmyndarar stukku að tveimur farþegum í tollinum. Í ljós kom að þar voru á ferð Hollywood-stjörnur sem komnar eru hingað til lands til að leika í nýrri mynd Baltasars Kormáks. 

Menningarnæturkort

Menningarnótt verður haldin í Reykjavík á laugardaginn næstkomandi og hefur dagskráin sjaldan verið viðameiri en nú. Hátíðahöldin hefjast klukkan 11 um morguninn og líkur með flugeldasýningu á Hafnarbakkanum klukkan ellefu um kvöldið.Reykjavíkurmaraþon er haldið á sama degi.

Tvær íslenskar kvikmyndir á hátíð

Tvær íslenskar kvikmyndir taka þátt í kvikmyndahátíðinni í Edinborg sem hefst 18. ágúst og er ein af virtari kvikmyndahátíðum heims. Myndirnar sem um ræðir eru heimildarmyndin, Love is in the Air, í leikstjórn Ragnars Bragasonar og stuttmyndin, Síðasti bærinn, sem Rúnar Rúnarsson leikstýrir.

Átta ákærðir fyrir hryðjuverk

Átta hryðjuverkamenn, sem lögreglan í Bretlandi hefur haft í haldi í tvær vikur, voru í dag ákærðir fyrir að eiga aðild að morðum og öðrum hryðjuverkaglæpum. Níundi maðurinn var ákærður fyrir ólöglega vopnaeign. Hins vegar var fjórum mönnum sleppt vegna málsins.

Þúsund íbúðir á Vesturbakkann

Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, hefur fallist á tilboð verktaka um að byggja 1000 nýjar íbúðir á Vesturbakkanum. Málinu hafði verið slegið á frest til þess að styggja ekki Bandaríkjamenn.

Stórfyrirtæki loka vegna hótana

Nokkur stórfyrirtæki í Nepal hafa hætt starfsemi vegna hótana maóískra uppreisnarmanna. Uppreisnarmennirnir nota þess leið til að þrýsta á stjórnvöld að koma á úrbótum varðandi meint arðrán stórfyrirtækja á starfsfólki.

Sjá næstu 50 fréttir