Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hjartalyf við HIV Hópur lækna á Spáni segir ýmislegt benda til þess að lyf sem notuð eru til þess að meðhöndla hjartasjúkdóma geti hjálpað til við að halda niðri HIV veirunni. Læknarnir gáfu sex HIV smituðum einstaklingum tiltekið hjartalyf í einn mánuð og í ljós kom að styrkleiki veirunnar minnkaði til muna á meðan lyfið var tekið. 17.8.2004 00:01
Sala dagvöru eykst Sala á dagvöru var 6,9 prósentustigum hærri á föstu verðlagi í júlí í ár en í sama mánuði árið 2003 samkvæmt nýrri smásöluvísitölu Samtaka Verslunar og þjónustu og IMG-Gallups. Smásala áfengis jókst um heil 17% og sala lyfjaverslana um 6,2% í júlímánuði á milli ára. 17.8.2004 00:01
Nýr forstjóri LSH Jóhannes M. Gunnarsson, skurðlæknir hefur verið settur forstjóri Landsspítala Háskólasjúkrahúss frá 1. september, en þá hefst 8 mánaða námsleyfi Magnúsar Péturssonar, forstjóra LSH. 17.8.2004 00:01
Kafnaði á poppkorni Þriggja ára drengur lést eftir að hafa borðað poppkorn í kvikmyndahúsi í New York í Bandaríkjunum. 17.8.2004 00:01
Fótboltakappar í verkfall Danskir knattspyrnumenn hófu í gær verkfall og er það í fyrsta sinn í sögunni sem slíkt gerist í Danmörku. 17.8.2004 00:01
Ákærðir fyrir hryðjuverk Átta grunaðir hryðjuverkamenn hafa verið ákærðir fyrir samsæri um morð og önnur hryðjuverk. Tveir þeirra voru ákærðir fyrir að hafa undir höndum njósnagögn um fjármálastofnanir í New York, Washington og New Jersey í Bandaríkjunum. Níundi maðurinn var handtekinn fyrir ólöglega vopnaeign. 17.8.2004 00:01
Hóta gagnárásum á kjarnorkuver Íranar hóta því að ráðast á kjarnorkuver Ísraela í Negeveyðimörkinni ef Ísraelar ráðast á kjarnorkuver í Íran. 17.8.2004 00:01
Aftur á leið í ferðalag Þrátt fyrir að Jóhannes Páll páfi annar hafi augljóslega verið mjög hrumur á ferðalagi sínu til Lourdes um síðustu helgi kemur það ekki í veg fyrir að næsta ferðalag hans hafi þegar verið skipulagt. 17.8.2004 00:01
Kom upp um eigin morð Smáskilaboð sem átján ára belgísk stúlka sendi föður sínum rétt áður en hún var myrt urðu til þess að upp komst um morðingja hennar. 17.8.2004 00:01
Má hirða fangelsin Fari svo að alríkisdómari taki völdin af Kaliforníu og færi fangelsiskerfi ríkisins undir stjórn alríkisstjórnarinnar virðist einum manni vera alveg sama. Sá heitir Arnold Schwarzenegger og er ríkisstjóri Kaliforníu. 17.8.2004 00:01
Kínverjar missa toppsætið Kínverjar verða ekki lengur fjölmennasta þjóð veraldar þegar öldin er hálfnuð ef ný spá um fólksfjöldaþróun gengur eftir. Samkvæmt henni fjölgar Kínverjum um hundrað milljónir á tímabilinu og verða 1,4 milljarðar árið 2050. Indverjum fjölgar hins vegar mun meira eða um hálfan milljarð og telja 1,6 milljarða um miðja öldina samkvæmt spánni. 17.8.2004 00:01
Schröder ættleiðir Gerhard Schröder Þýskalandskanslari og eiginkona hans Doris hafa ættleitt þriggja ára gamla rússneska stúlku, að sögn þýskra dagblaða. Bild og Süddeutsche Zeitung greindu frá því í gær að ættleiðingin hefði átt sér stað fyrir nokkrum vikum. Stúlkan heitir Viktoría og býr á heimili þeirra hjóna í Hannover. Fyrir eiga þau hjón þrettán ára dóttur. 17.8.2004 00:01
Ýtt við stjórnvöldum Bandarísk stjórnvöld hafa ákveðið að senda sendinefnd á Vesturbakkann til að rannsaka ólöglegar landnemabyggðir Ísraela á svæðinu. Bandarískir embættismenn hafa lýst óánægju með að Ísraelar skuli ekki vera teknir til við að rífa nokkrar smærri landnemabyggðir langt inni á svæðum Palestínumanna eins og þeir höfðu lofað. 17.8.2004 00:01
Flóðið ruddi öllu á undan sér Gríðarleg rigning hleypti af stað flóðum sem settu allt á annan endann þegar þau ruddust um götur enska bæjarins Boscastle í Cornwall. Fimmtán manns var saknað í gær og hafði ekkert heyrst til þess. Lögregla hélt þó í vonina um að fólkið hefði farið í ferðalag án þess að láta nokkurn vita. 17.8.2004 00:01
Áhorfandi stakk sér í laugina Þrátt fyrir að aldrei hafi verið lagt meira fé í öryggisgæslu á ólympíuleikum en nú tókst kanadískum áhorfanda að stinga sér í sundlaugina þar sem keppni fer fram í Aþenu. 17.8.2004 00:01
36 milljónir til Íraks Íslensk stjórnvöld ætla að leggja jafnvirði 36 milljóna íslenskra króna í fjölþjóðlegan sjóð sem fjármagnar verkefni vegna enduruppbyggingar í Írak. 17.8.2004 00:01
Hýsa mikið magn ólöglegra skráa Full ástæða er til að telja að hérlend fyrirtæki og stofnanir hýsi mikið magn ólöglegra kvikmynda- og tónlistarskráa, að sögn Hallgríms Kristinssonar, framkvæmdastjóra Samtaka myndrétthafa á Íslandi. 17.8.2004 00:01
Scheving hlýtur lýðheilsuverðlaun Magnús Scheving hlýtur Norrænu lýðheilsuverðlaunin í ár. Jón Kristjánsson, heilbrigðisráðherra afhenti verðlaunin nú síðdegis á Egilsstöðum á fundi heilbrigðis-og félagsmálaráðherra Norðurlanda. 17.8.2004 00:01
Hver að verða síðastur í berjamó Mikið er um aðalbláber, en lítið um bláber og krækiber. Mikill þurrkur kann að spila inn í sprettu, sem þó varð snemma mikil í ár. Birkifeti herjar á berjalyng og skilur eftir sig heilu breiðurnar af skorpnu lyngi. 17.8.2004 00:01
Framkvæmdaleyfi tekið fyrir Framkvæmdaleyfi til handa Landsvirkjun vegna lagningar Fljótsdalslína 3 og 4 verður tekið fyrir á fundi umhverfisráðs Austur-Héraðs á Egilsstöðum í dag. Kallað var eftir viðbótarupplýsingum frá Landsvirkjun vegna máls bóndans á Eyrarteigi í Skriðdal sem telur íbúðarhús sitt verðlaust vegna nálægðar við línustæðið. 17.8.2004 00:01
Vindmylla sem stingur í augu Tvítug vindmylla grotnar niður í Grímsey. Sumum er hún þyrnir í augum, meðan aðrir líta á hana sem minnisvarða. Myllan er gömul tilraun Raunvísindastofnunar til að hita vatn með vindorku. Óljóst virðist hver ber ábyrgð á mannvirkinu. 17.8.2004 00:01
Fótbrotinn flóðhestur Nashyrningskálfur, í dýragarði í Berlín, er á batavegi eftir að hafa fótbrotnað þegar móðir hans steig ofan á hann. Það getur verið ókostur að eiga þungavigtarmömmu. Kálfurinn Patnas var aðeins tveggja daga gamall þegar mamman steig óvart ofan á hann, og hann hlaut opið fótbrot. 17.8.2004 00:01
Gamla landssímahúsið rifið Stórvirkar vinnuvélar jafna nú gamla Landssímahúsið, við jörðu. Húsið sem var byggt árið 1942 og stendur við Sölvhólsgötu 11 í Reykjavík, hýsti Landssímann lengst af. Síðustu ár hafa Þjóðleikhúsið, Listaháskólinn og Lögreglan haft það til afnota. 17.8.2004 00:01
Njála á tölvutæku formi Nýrri útgáfu Brennu Njálssögu er ætlað að glæða áhuga ungs fólks á þessari vinsælustu sögu Íslendingasagnanna. Í henni sameinast bók, bíó og kennsluforrit. Þessari nýju útgáfu Brennu Njálssögu fylgir geisladiskur fyrir tölvur. 17.8.2004 00:01
Fischer í það heilaga Japönsk heitkona Bobbys Fischers segir að þau hafi haldið sambandi sínu leyndu, jafnvel fyrir nánustu vinum, þartil hann var handtekinn í Japan, í síðasta mánuði. Það kom mörgum á óvart þegar tilkynnt var að Bobby Fischer myndi ganga að eiga Míókó Wataí, sem er formaður japanska skáksambandsins 17.8.2004 00:01
Útför fyrrverandi lögreglustjóra Útför Sigurjóns Sigurðssonar, fyrrverandi lögreglustjóra, var gerð frá Hallgrímskirkju í dag. Lögreglumenn stóðu heiðursvörð og fóru fyrir líkfylgd. Sigurjón var lögreglustjóri í Reykjavík í 38 ár, frá 1947 til ársloka 1985. 17.8.2004 00:01
Þjóðverjar vilja halda í herinn Þjóðverjum er mjög brugðið vegna þeirrar ákvörðunar Bandaríkjamanna, að fækka stórlega í herliði sínu í Þýskalandi. Þeir sjá fram á að tugþúsundir manna muni missa vinnu sína. Það eru um 70 þúsund bandarískir hermenn í Þýskalandi, og langstærstur hluti þeirra verður fluttur á brott 17.8.2004 00:01
Hagsmunir Íslendinga miklir Sjávarútvegsráðherra segir hagsmuni Íslendinga vegna síldveiða á Svalbarðasvæðinu skipta milljörðum. Ríkisstjórnin samþykkti í dag að hefja undirbúning að því að vísa deilunni við Norðmenn til Alþjóðadómstólsins í Haag. 17.8.2004 00:01
Kárahnjúkasvæðið milljarða virði Landið sem fer undir Kárahnjúkavirkjun er að minnsta kosti tveggja milljarða króna virði. Þetta er niðurstaða þýsks hagfræðidoktors sem rannsakað hefur málið. Náttúruverndarsamtök hafa dregið í efa arðsemi Kárahnjúkavirkjunar og bent á að tekjur mætti hafa af ferðaþjónustu á þeim fallegu stöðum sem hverfa undir vatn 17.8.2004 00:01
Vill ekki tjá sig um uppsagnir Eimskipafélagið hefur eignast Skipafélag Færeyja. Viðskiptin eru metin á rúma tvo milljarða króna. Forstjóri Eimskipa segir mikil samlegðaráhrif og hagræðingu fylgja samruna fyrirtækjanna, en vill ekki tjá sig um uppsagnir á næstunni. 17.8.2004 00:01
Mennirnir aldrei komið við sögu Lögreglan í Reykjavík lagði hald á mikið af vopnum, skotfærum og bareflum, við húsleit í íbúð í austurhluta Reykjavíkur í nótt. Þrír menn á þrítugsaldri eru í haldi lögreglu vegna málsins, en athygli vekur að enginn þeirra hefur áður komið við sögu lögreglu. 17.8.2004 00:01
Breyttar áherslur í Evrópumálum Halldór Ásgrímsson, verðandi forsætisráðherra, segir að aðild Íslands að Evrópusambandinu verði áfram skoðuð með opnum huga. Hann segir að forsætisráðuneytið hafi ávallt frumkvæði í stórum málum. Áherslumunur formanna Sjálfstæðistæðisflokks og Framsóknarflokks í afstöðu til aðildar Íslands að Evrópusambandinu hefur ekki farið leynt. 17.8.2004 00:01
Meirihluti vill að Siv hætti Mikill meirihluti þingflokks Framsóknarflokksins er þess fylgjandi að Siv Friðleifsdóttir verði látin taka pokann sinn þegar Framsókn lætur ráðherrastól umhverfismála af hendi til Sjálfstæðisflokksins. Hópur framsóknarkvenna berst fyrir stöðu Sivjar og formaður landssamtaka Framsóknarkvenna segir mikla ólgu innan flokksins. 17.8.2004 00:01
Vilja semja við umdeildan verktaka "Ég veit ekki til þess að Impregilo eða þessir verktakar hafi tilskyld leyfi til að reka sjúkrabifreiðar," segir Vernharð Guðnason, framkvæmdastjóri Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna. Ítalska verktakafyrirtækið Impregilo á nú í viðræðum við íslenskt verktakafyrirtæki um að taka að sér allan akstur og eftirlit með sjúkrabifreiðum á Kárahnjúkum. 17.8.2004 00:01
Hægir verulega á útgjaldaaukningu Rekstrarkostnaður embættis Ríkislögreglustjóra var rúmar 710 milljónir í fyrra og jókst um 19 milljónir frá árinu áður. Verulega dró úr útgjaldaaukningu embættisins eftir samfellda útþenslu frá árinu 1998. 17.8.2004 00:01
Skiptimynt í fíkniefnaviðskiptum Lögreglan í Hafnarfirði hugðist fara fram á húsleit í sama húsi og lögreglan í Reykjavík fann fjölda vopna og skotfæra í fyrrinótt. Vopnin voru þýfi sem notuð höfðu verið í fíkniefnaviðskiptum. </font /></b /> 17.8.2004 00:01
Sýslumaður útilokar ekki ábyrgð Rúnar Guðjónsson, sýslumaður í Reykjavík, segist ekki útiloka að á embættið geti fallið verulegar ábyrgðir vegna veðsetninga á óðalsjörðinni Brautarholti á Kjalarnesi. Hann stöðvaði uppboð meðan málið er kannað. 17.8.2004 00:01
Stefnir í harða milliríkjadeilu "Það var einróma fallist á tillögu utanríkisráðherra að undirbúa málsókn á hendur Norðmönnum," segir Árni M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra eftir stjórnarráðsfund í gær. Allir ráðherrar ríkisstjórnarinnar voru einhuga um að grípa til aðgerða gegn Norðmönnum vegna Svalbarða enda þykir lagalegur grundvöllur þeirra til svæðisins afar hæpinn. 17.8.2004 00:01
Vantaði alla kvenráðherra "Það er algjör tilviljun að hér vantaði nokkra ráðherra í dag," sagði Halldór Ásgrímsson, utanríkisráðherra og starfandi forsætisráðherra, eftir ríkisstjórnarfund í gær. Aðeins sjö ráðherrar ríkisstjórnarinnar voru þar saman komnir og í hópinn vantaði alla kvenráðherra þjóðarinnar. 17.8.2004 00:01
Samningar um vatnsvernd Samningaviðræður milli fulltrúa ríkisins og eigenda hluta hverasvæðisins í Haukadal snúast fyrst og fremst um að tryggja vatnsvernd fyrir Geysi og raunar á svæðinu öllu. 17.8.2004 00:01
Bjóða al-Sadr sakaruppgjöf Átta manna sendinefnd frá þjóðarráðstefnunni í Írak mætti til borgarinnar Najaf í gær og lagði sáttartillögu fyrir sjítaklerkinn Moqtada al-Sadr. </font /> 17.8.2004 00:01
Farþegamet hjá Flugleiðum Flugleiðir hafa aldrei flutt jafn marga farþega í einum mánuði og í nýliðnum júlí. Farþegar Flugleiða voru 183 þúsund í mánuðinum. 17.8.2004 00:01
Kögun með kjölfestu í Opnum kerfum Hugbúnaðarfyrirtækið Kögun hefur keypt ríflega þriðjungs hlut í Opnum kerfum Group. Seljendur eru Straumur fjárfestingarbanki, sem átti 27 prósent í Opnum kerfum, og Lífeyrissjóður sjómanna. Straumur er stærsti eigandi Kögunar. Gengið í viðskiptunum var 26,5. 17.8.2004 00:01
Atorka og Afl sameinast Fjárfestingarfélagið Atorka tryggði sér í gær yfir helming atkvæða í Afli fjárfestingarfélagi. Sterk eignatengsl hafa verið milli félaganna og segir Styrmir Þór Bragason, framkvæmdastjóri Atorku, að sameiningin hafi verið rökrétt miðað við þróun mála. 17.8.2004 00:01
Yukos fær engan frest Dómstólar í Rússlandi höfnuðu í gær kröfu olíufyrirtækisins Yukos um að innheimtu á skattskuldum fyrirtækisins yrði frestað á meðan engin niðurstaða væri í ýmsum dómsmálum tengdum málaferlunum. 17.8.2004 00:01