Vaktin: Austanbylur annan í páskum Agnar Már Másson skrifar 6. apríl 2026 07:21 Svona lítur vindaspáin út klukkan 21 í kvöld. Veðurstofa Íslands Veðurviðvaranir hafa þegar tekið gildi í nokkrum landshlutum í dag, annan í páskum, en austan hvassviðri eða stormi og hríð er spáð. Í vaktinni hér að neðan verður fylgst með nýjustu vendingum. Fyrstu viðvaranir tóku gildi klukkan 7 í morgun á Suðurlandi þar sem djúp lægð nálgast úr suðvestri og veldur austan byl í dag, fyrst sunnan heiða. Veðurviðvaranir munu ná til allra landshluta þar sem búast má við austanvindi upp á 15-28 m/s með snörpum vindhviðum. Einnig má búast við snjókomu eða skafrenningi með slæmu skyggni og versnandi færð. Er þetta varasamt ferðaveður. Upp úr hádegi verða viðvaranirnar á Suðurlandi færðar upp á appelsínu gult og um klukkan 13 taka gular viðvaranir gildi á höfuðborgarsvæðinu og síðan á Norðurlandi, Vesturlandi og Austurlandi. Faxaflói verður færður upp á appelsínugult klukkan 14. Það á samt að hlýna smám saman, samkvæmt hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands. Seint í dag fer úrkoman yfir í slyddu eða rigningu sunnantil og í nótt styttir upp norðanlands. Ef þú vilt koma á framfæri frétt eða ábendingu vegna austanbylsins geturðu sent okkur fréttaskot hér. Ef vaktin birtist ekki hér að neðan er ráð að endurhlaða síðuna (Ctrl. + R).
Fyrstu viðvaranir tóku gildi klukkan 7 í morgun á Suðurlandi þar sem djúp lægð nálgast úr suðvestri og veldur austan byl í dag, fyrst sunnan heiða. Veðurviðvaranir munu ná til allra landshluta þar sem búast má við austanvindi upp á 15-28 m/s með snörpum vindhviðum. Einnig má búast við snjókomu eða skafrenningi með slæmu skyggni og versnandi færð. Er þetta varasamt ferðaveður. Upp úr hádegi verða viðvaranirnar á Suðurlandi færðar upp á appelsínu gult og um klukkan 13 taka gular viðvaranir gildi á höfuðborgarsvæðinu og síðan á Norðurlandi, Vesturlandi og Austurlandi. Faxaflói verður færður upp á appelsínugult klukkan 14. Það á samt að hlýna smám saman, samkvæmt hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands. Seint í dag fer úrkoman yfir í slyddu eða rigningu sunnantil og í nótt styttir upp norðanlands. Ef þú vilt koma á framfæri frétt eða ábendingu vegna austanbylsins geturðu sent okkur fréttaskot hér. Ef vaktin birtist ekki hér að neðan er ráð að endurhlaða síðuna (Ctrl. + R).
Ef þú vilt koma á framfæri frétt eða ábendingu vegna austanbylsins geturðu sent okkur fréttaskot hér.
Veður Mest lesið Vaktin: Austanbylur annan í páskum Veður Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Innlent Lilja mætt aftur á Alþingi Innlent Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Innlent Vanalega óttist fólk að eitthvað hræðilegt sé að gerast Innlent Óveðrið hefur áhrif á flugáætlun Icelandair Innlent Féll fyrir borð í Norðursjó í ofsaveðri Erlent Loka Holtavörðuheiði í hádeginu og um Suðurlandið strax í fyrramálið Veður Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Innlent Viðvaranirnar appelsínugular og hviður yfir 40 metrum á sekúndu Veður Fleiri fréttir Vaktin: Austanbylur annan í páskum Loka Holtavörðuheiði í hádeginu og um Suðurlandið strax í fyrramálið Viðvaranirnar appelsínugular og hviður yfir 40 metrum á sekúndu Logn í dag á undan storminum á morgun Mæla með að fólk leggi fyrr af stað Gul viðvörun vegna austan stórhríðar annan í páskum Þungfært víða um land Kalt í veðri miðað við árstíma Snjóflóð skammt frá borginni líklega af mannavöldum Þungbúið fyrir norðaustan en heiðskírt víða annars staðar Gular viðvaranir taka gildi í enn eitt skiptið Gular viðvaranir vegna storms í kvöld og á morgun Hæðarhryggur yfir landinu í dag og stormur í nótt Lægð með snjókomu fer hratt yfir landið Snýst í austan og suðaustan í kvöld með snjókomu og slyddu Slydduél og snjókoma í kortunum Gular veðurviðvaranir í kortunum Gul viðvörun á höfuðborgarsvæðinu á morgun Lægðin heldur áfram að angra landsmenn Skólahaldi ekki aflýst en raskanir boðaðar Vaktin: Þjóðin býr sig undir illviðri Appelsínugular viðvaranir og yfir 45 metrar á sekúndu á Kjalarnesi Köldu lofti beint til landsins og djúp lægð nálgast Spá nú enn verra veðri á fimmtudag Gefa út gula viðvörun fyrir allt landið Ein lægð fjarlægist en önnur djúp nálgast Breiðholtsbraut lokað vegna umferðaróhapps Leiðindaveður um land allt, gular viðvaranir og óvissustig Gular viðvaranir aftur á kreik Viðvaranir að falla úr gildi en meira óveður í nánd Sjá meira