Þurfa að skafa af rúðum og hálka á götum Atli Ísleifsson skrifar 13. október 2022 07:10 Svona var um að litast á bíl sem lagður var í götu í Laugardal í Reykjavík í morgun. Vísir/Atli Íbúar á höfuðborgarsvæðinu þurfa margir að skafa bílrúður sínar áður en þeir halda út í morgunumferðina. Hálka er á götum.
Á vef Veðurstofunnar segir að það verði fremur hæg breytileg átt er allvíða um landið. Skýjað á Norður- og Austurlandi en yfirleitt bjart sunnan- og vestantil og þar megi búast við hálku í morgunsárinu. „Síðar snýst í austlæga átt 3-8 m/s og léttskýjað en stöku skúrir eða slydduél fyrir norðan og á Suðausturlandi. Hiti 1 til 7 stig yfir daginn, mildast syðst á landinu. Á morgun verður norðaustanátt 5-13 en heldur hvassara norðvestan- og suðaustantil. Él og slydduél fyrir norðan en bjart með köflum sunnan heiða. Hiti um eða yfir frostmarki en allt að 6 stigum við suðurströndina Hvöss norðlæg átt á laugardag með snjókomu eða slyddu á norðanverðu landinu en þurrt að kalla sunnantil. Hiti breytist lítið. Dregur hægt úr ofankomu og vindi á sunnudag en kólnar, hiti víða um eða yfir frostmarki,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á föstudag: Norðan 8-15 m/s, hvassast norðvestan- og suðaustantil. Él á norðanverðu landinu, en bjartviðri sunnanlands. Hiti 0 til 5 stig. Á laugardag: Vaxandi norðaustan- og norðanátt, 10-18 síðdegis. Rigning eða snjókoma á norðurhelmingi landsins, en þurrt að kalla á sunnanverðu landinu. Hiti 1 til 7 stig, mildast við suðurströndina. Á sunnudag: Norðan 10-18 með snjókomu eða éljum norðan- og austantil á landinu, en úrkomulítið sunnan- og vestanlands. Dregur úr vindi og úrkomu undir kvöld. Hiti um og undir frostmarki, en frostlaust nærri suðurströndinni yfir daginn. Á mánudag: Breytileg átt og yfirleitt léttskýjað. Hiti í kringum frostmark en allt að 6 stigum við suðurströndina. Á þriðjudag: Suðvestanátt og skýjað en bjart austanlands. Hlýnandi veður, hiti 2 til 7 stig seinnipartinn. Á miðvikudag: Útlit fyrir suðvestlæga átt og skýjað með dálítilli rigningu vestantil en bjart með köflum á austanverðu landinu. Hiti 3 til 8 stig.
Veður Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu Innlent CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Innlent Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Erlent Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Erlent Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Erlent „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Innlent Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Innlent Fleiri fréttir Víða skúrir en hiti gæti skriðið yfir tólf stig Norðaustan strekkingur og rigning Hæg austlæg átt en skilabakki nálgast Smálægðir á sveimi og hvessir á morgun Hviður þvert á Vesturlandsveg á Kjalarnesi Oftar en ekki viðvörun í gildi í mars Má búast við mikilli úrkomu á Austfjörðum Útlit fyrir vorveður á næstu dögum Minnkandi vindur og stöku él Víða skúrir og hvessir eftir hádegi Allhvass vindur og rigning Önnur lægð nálgast landið Fylgstu með óveðrinu ganga yfir Vaktin: Austanbylur annan í páskum Loka Holtavörðuheiði í hádeginu og um Suðurlandið strax í fyrramálið Viðvaranirnar appelsínugular og hviður yfir 40 metrum á sekúndu Logn í dag á undan storminum á morgun Mæla með að fólk leggi fyrr af stað Gul viðvörun vegna austan stórhríðar annan í páskum Þungfært víða um land Kalt í veðri miðað við árstíma Snjóflóð skammt frá borginni líklega af mannavöldum Þungbúið fyrir norðaustan en heiðskírt víða annars staðar Gular viðvaranir taka gildi í enn eitt skiptið Gular viðvaranir vegna storms í kvöld og á morgun Hæðarhryggur yfir landinu í dag og stormur í nótt Lægð með snjókomu fer hratt yfir landið Snýst í austan og suðaustan í kvöld með snjókomu og slyddu Slydduél og snjókoma í kortunum Gular veðurviðvaranir í kortunum Sjá meira