Enski boltinn

Dunne áfram hjá City

Elvar Geir Magnússon skrifar
Richard Dunne.
Richard Dunne.

Richard Dunne, fyrirliði Manchester City, hefur skrifað undir nýjan fjögurra ára samning við félagið. Þessi 28 ára varnarmaður hefur verið valinn leikmaður ársins hjá City síðustu fjögur tímabil.

Dunne er írskur landsliðsmaður en hann átti aðeins eitt ár eftir af samningi sínum. Portsmouth, Newcastle og Tottenham vildu öll fá hann í sínar raður en Mark Hughes náði að sannfæra Dunne um að vera áfram.

Í tilkynningu frá Dunne segist hann hæstánægður með nýja samninginn og segir að efst í huga sér hafi alltaf að vera áfram.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×