Íslenski boltinn

Virðast hafa náð að fylla skarð Margrétar Láru

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Margrét Lára í faðmi samherja sinna á síðustu leiktíð.
Margrét Lára í faðmi samherja sinna á síðustu leiktíð. Vísir/Daniel

Markadrottningin Margrét Lára Viðarsdóttir, leikmaður Íslandsmeistara Vals, lagði skóna á hilluna frægu í vetur eftir magnaðan feril. Sóknarleikur Vals hefur þó ekki borið skaða af ef marka má Íslandsmótið til þessa. 

Í 180 leikjum hér á landi skoraði Margrét Lára 255 mörk. Þá skoraði hún 79 mörk í 124 leikjum fyrir Íslands hönd ásamt því að leika sem atvinnumaður til fjölda ára. Sumarið 2007 skoraði Margrét 38 mörk í aðeins 16 leikjum. 

Hún var vissulega ekki nálægt því á síðustu leiktíð en að því sögðu var hún aðeins einu marki frá markahæstu leikmönnum deildarinnar. Skoraði Margrét 15 mörk ásamt því að reynsla hennar hjálpaði Val að vinna sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil síðan árið 2010. 

Það var því eðlilegt að halda að sóknarleikur Vals myndi aðeins hiksta í upphafi móts þar sem liðið væri enn að jafna sig á brotthvarfi Margrétar. Þó svo að Valur – og raunar deildin sjálf – sakni að sjálfsögðu leikmanns og persónu á borð við Margréti Láru þá hefur liðið hafið Íslandsmótið af gífurlegum krafti.

Raunar svo miklum að Margrét – sem er einn af sérfræðingum Pepsi Max Markanna – velti því fyrir sér hvort Pétur Pétursson, þjálfari liðsins, væri farinn að byrsta sig í búningsklefanum.

Margrét Lára fagnar Íslandsmeistaratitlinum síðasta sumar með systur sinni Elísu.Vísir/Daniel

Svo virðist ekki vera en eins og áður sagði hefur liðið byrjað tímabilið af krafti og er með fullt hús stiga eftir fjóra leiki – líkt og á síðustu leiktíð. Íslandsmeistararnir hófu titilvörn sína á heimavelli gegn erkifjendum sínum úr KR og unnu þær þægilegan 3-0 sigur. Ef til vill of þægilegan en í næsta leik þurftu þær að fara fyrir hlutunum gegn nýliðum Þróttar.

Lokatölur í Laugardalnum 2-1 og í kjölfarið var valtað yfir Þór/KA á Hlíðarenda. Gestirnir sáu aldrei til sólar en leiknum lauk með 6-0 sigri Vals. Í kjölfarið vannst góður 3-1 sigur í Vestmannaeyjum. Eftir fjóra leiki er liðið því með fullt hús stiga og markatöluna 14-2. Á sama tíma í fyrra var liðið einnig með fullt hús stiga en einu marki lakari markatölu, 13-2.

Elín Metta Jensen hefur byrjað tímabilið einstaklega vel en hún hefur skorað helming marka Vals til þessa, sjö mörk í heildina. Ef við yfirfærum þá tölfræði á tímabilið í heild er ljóst að Elín Metta mun bæta sitt besta tímabil varðandi markaskorun. Landsliðsframherjinn skoraði 18 mörk sumarið 2012.

Vissulega er þetta stórt ef en Íslandsmeistararnir eiga enn eftir að mæta helstu keppinautum sínum; Breiðablik, Fylki og Selfoss.

Þá er hin tvítuga Hlín Eiríksdóttir að verða ein af bestu leikmönnum deildarinnar. Hún gerði 16 mörk síðasta sumar og er nú þegar komin fjögur mörk. Þá á landsliðskonan Fanndís Friðriksdóttir enn eftir að komast á blað sem og hin efnilega Ásdís Karen Halldórsdóttir.

Margrét Lára fagnar með Fanndísi, Hallberu og Dóru Maríu gegn Þór/KA síðasta sumar.Vísir/Bára

Vopnabúr Íslandsmeistaranna er því vel í stakk búið til að verja Íslandsmeistaratitilinn þó svo að liðið muni alltaf sakna Margrétar Láru að einhverju leyti. Stærsta spurningin er því hvað Breiðablik, Fylki og Selfoss hafa að segja um titilvörn Vals.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×