United-menn fengu frí eftir sigurinn á Gylfa og félögum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. janúar 2016 21:15 Juan Mata. Vísir/Getty
Louis van Gaal, knattspyrnustjóri Manchester United, náði loksins að stýra sínu liði til sigurs á móti Swansea í ensku úrvalsdeildinni um helgina og Hollendingurinn var í góði skapi eftir leikinn. Gylfi Þór Sigurðsson og félagar í Swansea City höfðu unnið þrjá leiki í röð á móti United þar 2-1 sigur á Old Trafford í fyrsta deildarleik United-liðsins undir stjórn Van Gaal. Manchester United var ennfremur ekki búið að vinna leik síðan í nóvember og hafði spilað átta leiki í röð í öllum keppnum án sigurs. Van Gaal ákvað að gefa sínum leikmönnum frí eftir leikinn en það voru langþráðir frídagar eftir mikið leikjaálag um jól og áramót. Guardian sagði frá þessu. Næst á dagskrá hjá leikmönnum Manchester United er bikarleikur á móti Sheffield United um næstu helgi. Leikmenn ættu að koma endurnærðir inn í þann leik og með meira sjálfstraust eftir góðan sigur um síðustu helgi. Juan Mata var ánægður með sigurinn og þá ákvörðun Louis van Gaal að gefa leikmönnum frí. „Við höfum sem betur fyrir byrjað nýtt ár af krafti og slæma gengið, sem var miklu lengra en við vildum, er nú gleymt og grafið," skrifaði Juan Mata á bloggsíðu sína. „Við vorum þarna að vinna erfiðan mótherja sem hefur gert okkur lífið leitt undanfarin tímabil. Nú tókst okkur að vinna þá og hefja árið 2016 á bestan mögulegan hátt," sagði Juan Mata. „Jólatörnin er að baki og eftir þrjá leiki á sjö dögum fáum við nú heila viku til þess að undirbúa okkur fyrir bikarleikinn á móti Sheffield United. Það var því góður tími til að fá smá frí og safna kröftum eftir mikið annríki," sagði Juan Mata.
Enski boltinn Mest lesið Hver verður fljótastur að hlaupa míluna? Sport Skaðbrenndur Hemmi fer ekki aftur í eldhúsið Íslenski boltinn Lygileg níu marka veisla í París Fótbolti Gerði umdeilda skiptingu: „100 prósent pirraður og ég skil hann vel“ Íslenski boltinn Uppgjörið: ÍBV - Haukar 36-31 | Eyjakonur tryggðu sér sæti í úrslitum Handbolti Knattspyrnukona missti fóstur á æfingu: „Þeir björguðu líklega lífi mínu“ Enski boltinn Stjörnurnar fá frí gegn Egyptum Handbolti Illa farið með Þórsara: „Þetta er bara rangt“ Íslenski boltinn Frank Booker fer yfir hnéskeljarbrotið: „Löppin bara hékk á eftir mér“ Körfubolti Reglum um gul spjöld á HM verði breytt Fótbolti Fleiri fréttir Ipswich sigri frá sæti í ensku úrvalsdeildinni Stones rifar seglin hjá City Knattspyrnukona missti fóstur á æfingu: „Þeir björguðu líklega lífi mínu“ Fernandes nálgast stoðsendingametið eftir sigur United Fá leyfi til að leika sér í fríinu Fékk sér tebolla með Ratcliffe Frá út leiktíðina og missir af HM Fernández kom Chelsea í bikarúrslit Vill skrúfa fyrir lekann eftir að rakarinn birti byrjunarliðið Mörkin úr enska: Skaut Arsenal á toppinn og dramatíkin allsráðandi á botninum Salah gæti hafa spilað sinn síðasta leik fyrir Liverpool Eze skaut Arsenal aftur á toppinn Manchester City tryggði sér farmiða í úrslitaleikinn Þriðji sigur Liverpool í röð Tottenham vann loksins en er enn í fallsæti Fulham vann og Liverpool getur komist upp fyrir Villa Andlát Jota notað sem barefli á leikmenn Liverpool Allt slökkt á Leikvangi ljóssins Hákon hefur bætt sig á öllum sviðum og framlengir við Brentford Segir Fabregas að halda sig fjarri „martröðinni“ hjá Chelsea Kallar eftir þjónustu: „Hver er annars tilgangurinn?“ Valtar yfir eigendur Chelsea og segir stuðningsmenn fyllast viðbjóði Sjáðu Haaland skjóta Manchester City á toppinn Furðaði sig á spurningu í viðtali eftir leik: „Fullkomlega ósammála“ Haaland skaut Manchester City á toppinn Rosenior rekinn frá Chelsea Hársnyrtir Cucurella lak upplýsingum úr herbúðum Chelsea Spila alla leiki á Brúnni og bjóða í botnlausan bröns Sjáðu hrylling Chelsea og stjórann bauna á leikmenn Leicester féll aftur og Coventry landaði titlinum Sjá meira